Tegund bús: Sauðfjárbú. Endur.
Til sölu: Lambakjöt í sláturtíð. Andaregg.
Tökum á móti: Tökum eingöngu á móti hópum í fjárhús að vetri til frá 1. desember til maí. Tökum á móti öllum sem vilja kaupa andaregg, en þá er sett skilti við þjóðveg, en það er aðallega frá febrúar til september.
Opnunartími árs: Sjá opnunartíma hér að ofan.
Aðstaða: Fjárhús
Annað: Ferðaþjónusta er á Snorrastöðum, en þar er boðið upp á hestaleigu og gistingu. Þaðan er einnig gönguleið upp á Eldborg.

Ystu-Garðar
311 Borgarnes

Á Græna kortinu:

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Vottanir og viðurkenningar:

Beint frá býli

Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.

Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

Skilaboð: