Tegund bús: Loðdýrabú.
Opnunartími: Opið í júní– október eftir pöntunum.
Við tökum á móti: Hópum á öllum aldri. Gott vald á ensku og dönsku.
Leiðsögn: Tekið er á móti gestum og leiðsögn veitt um búið.
Aðstaða: Kaffi eftir samkomulagi, salernisaðstaða og hægt að fá sér sæti.
Annað: Stutt í Varmahlíð, sundlaug og Byggðasafn Skagfirðinga, Glaumbæ.


Syðra-Skörðugil, Seyluhreppur
560 Varmahlíð

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: