Tegund bús: Sauðfjárbú. Ferðaþjónusta.
Til sölu/þjónusta: Boðið verður upp á lambakjöt í neytendapakkningum á næstunni.
Starfsemi hefst: Sala á lambakjöti í neytendaumbúðum hefst haustið 2009.
Tökum á móti: Hópum og einstaklingum.
Opnunartími árs: Allt árið. Lambakjöt frá hausti 2009.
Aðstaða: Öll venjulega aðstaða sem fylgir meðalstóru hóteli.
Annað: Á staðnum er starfandi hótel. Í veitingasal er boðið upp á lambakjöt frá býlinu. Fjölbreytt ferðaþjónusta og afþreying er í næsta nágrenni.


Smyrlabjörg 3
781 Höfn í Hornafirði

Á Græna kortinu:

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Fuglaskoðun

Fuglaskoðunarskýli á öllu landinu og þjónustuaðilar sem standa fyrir skoðunarferðum á svæði þar sem hægt er að fylgjast með fuglum í náttúrulegu umhverfi sínu. Þessi svæði geta verið viðkvæm varpsvæði eða kjörlendi, og því er brýnt að umgangast þau af varfærni.

Vottanir og viðurkenningar:

Afurð úr Ríki Vatnajökuls WOW!

Í Ríki Vatnajökuls ehf. er ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasi Suð-Austurlands. Hlutverk klasans er markaðssetning svæðisins með áherslu á veturinn, vöruþróun og uppbyggingu á innviðum og samstarfi. Markmið er að bæta nýtingu, afkomu og arðbærni í ferðaþjónustu á Suð-Austurlandi og markaðssetja matvæli og ferðaþjónustuna undir sameiginlegu vörumerki; Í Ríki Vatnajökuls WOW!.

Matvælaframleiðendur í klasanum geta merkt framleiðslu sína með þessu upprunamerki; Afurð úr Ríki Vatnajökuls.

Í Ríki Vatnajökuls WOW!

Ríki Vatnajökuls ehf. er ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasi Suð-Austurlands. Hlutverk klasans er markaðssetning svæðisins með áherslu á veturinn, vöruþróun og uppbyggingu á innviðum og samstarfi. Markmið er að bæta nýtingu, afkomu og arðbærni í ferðaþjónustu á Suð-Austurlandi og markaðssetja matvæli og ferðaþjónustuna undir sameiginlegu vörumerki; Í Ríki Vatnajökuls WOW!.

Beint frá býli

Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.

Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

Skilaboð: