Ásmundarsafn er helgað verkum Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) og var formlega opnað árið 1983. Safnið er til húsa í einstæðri byggingu sem var heimili og vinnustofa listamannsins. Í Ásmundarsafni er ávallt sýning á verkum Ásmundar sem ánafnaði Reykjavíkurborg stóru safni listaverka sinna auk byggingarinnar eftir sinn dag. Þá eru reglulega haldnar sýningar á verkum annarra listamanna í safninu sem hafa gjarnan vísun í list Ásmundar.

Ásmundur var einn af frumkvöðlum höggmyndalistar hér á landi og hannaði bygginguna að mestu leyti sjálfur á árunum 1942-59. Hann byggði m.a. bogalaga byggingu aftan við húsið sem var bæði hugsuð sem vinnustofa og sýningarsalur. Arkitektinn Mannfreð Vilhjálmsson hannaði síðar viðbyggingu sem tengir aðalhúsið og bogabygginguna saman. Formhugmyndir hússins eru sóttar til Miðjarðarhafsins, í kúluhús araba og píramída Egyptalands. Í garðinum við safnið er að finna mörg verka Ásmundar sem hafa verið stækkuð eða unnin sérstaklega til að standa utandyra.


Á Græna kortinu:

Menningarsetur

Hér eru skráð öll menningarsetur á Íslandi. Þau eiga á ýmsan hátt snaran þátt í sjálfsmynd þjóðarinnar, umhverfi, menningu og ímynd borga og sveita. Söfn, setur og minnisvarðar sem og staðir sem eru ekki endilega stofnanavæddir eru skráðir í þennan flokk.

Safn

Söfn um allt land.

List

Staðir tengdir list og menningu um allt land.

Skilaboð: