Tegund bús: Blandað bú, þ.e. kýr, sauðfé og hross. Kornrækt. Skógrækt.
Til sölu: Alikálfakjöt. Folaldakjöt. Broddmjólk.
Tökum á móti: Smærri hópum og einstaklingum.
Opnunartími árs: Sumar og haust.
Annað: Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta og afþreying. Stutt er á flugvöllinn á Bakka, Vestmannaeyjaflug.

Lágafell
861 Hvolsvöllur

Á Græna kortinu:

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Vottanir og viðurkenningar:

Beint frá býli

Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.

Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

Skilaboð: