Vottað lífrænt: Tún, haglendi og rabarbari
Vörumerki: Rabarbía
Vörur: Rabarbari, rabarbarakaramellur, síróp og sultur

Tegund bús: Sauðfjárbú. Rabarbararækt. Landnámshænur. Hross.
Til sölu: Lífrænn rabarbari, ferskur og frosinn. Rabarbarakaramellur. Rabarbarasultur. Fíflahunang. Lífrænt lambakjöt.
Starfsemi hefst: Vorið 2009.
Opnunartími árs: Rabarbaravörur allt árið.
Aðstaða: Söluaðstaða í uppbyggingu.
Annað: Fjölbreytt ferðaþjónusta og afþreying er í næsta nágrenni, s.s. sundlaug, hestaleiga, tjaldsvæði, gisting og veitingar. Stutt er í Skálholt, Gullfoss og Geysi.


Langamýri 2
801 Selfoss

rabarbia.is

Á Græna kortinu:

Vottað lífrænt

Undirstaða lífræns landbúnaðar er frjósemi jarðvegs, skiptiræktun, lífrænn áburður og velferð búfjár með nægri útivist, rými og lífrænu fóðri. Afurðir má selja með tilvísun til lífrænna aðferða ef óháð vottunarstofa  staðfestir að framleiðslan uppfylli staðla.

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Nýsköpun í heimabyggð

Nýsköpun þar sem náttúruafurðir og vistvænar/sjálfbærar framleiðsluaðferðir eru í hávegum hafðar.

Náttúruvöruframleiðandi

Frumframleiðandi vöru eða hráefnis sem unnið er úr íslensku náttúruefni.

Vottanir og viðurkenningar:

Beint frá býli

Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.

Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

Vottað lífrænt - Tún

Á Íslandi annast Vottunarstofan Tún eftirlit með lífrænni framleiðslu. Í lífrænni ræktun felst að varan hefur verið ræktuð með lífrænum aðferðum, án eiturefna, tilbúins áburðar, hormóna eða erfðabreyttra lífvera. Vottað er í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins um lífræna landbúnaðarframleiðslu og reglur Túns um lífræna snyrtivöruframleiðslu og matreiðslu. Samkvæmt þeim er óheimilt að markaðssetja landbúnaðarvörur sem lífrænar nema þær hafi verið framleiddar í samræmi við ákvæði þessara staðla. Vottunin staðfestir að lífrænum aðferðum hafi verið beitt en metur ekki umhverfisáhrif vörunnar eða umbúða hennar.

Skilaboð: