Tegund bús: Húsdýragarður, blandað bú, hrossarækt.
Opnunartími: Opið frá 15. júní til 20. ágúst alla daga frá kl. 13:00-17:00.
Við tökum á móti: Hópum og einstaklingum á öllum aldri. Góð ensku- og dönskukunnátta.
Aðstaða: Mjög góð aðstaða, salerni, tjaldstæði, sælgætissala, gestum boðið til stofu í kaffi og kökur. Tekið á móti greiðslukortum.
Annað: Gisting, heimarafstöð, hægt að panta leiðsögn um hreppinn ef fyrirvari er góður. Hestaleiga á næsta bæ, afleggjari í eyðibyggðirnar í Fjörðum 2 km.


Hléskógar, Grýtubakkahreppur
601 Akureyri

Á Græna kortinu:

Dýragarður

Býli og garðar þar sem dýr búa og eru til sýnis. Þau geta verið verið af villtum uppruna, verið húsdýr eða fædd í garðinum.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: