Tegund bús: Kúabú og fjárbú. Lausagöngufjós með mjaltabás. Gamalt fjárhús með görðum.
Opnunartími: Opið eftir pöntunum allt árið með áherslu á árstíðabundna viðburði. Sauðburður í maí og kálfar að fæðast í október til janúar. Hægt að panta tíma við kvöldmjaltir frá júní til ágúst.
Við tökum á móti: Hópum upp að 30 manns og einstaklingum á öllum aldri. Skólafólk velkomið. Ágæt ensku- og sænskukunnátta.
Aðstaða: Kaffi eftir samkomulagi, salerni, aðstaða fyrir fatlaða og hægt að fá sér sæti.
Leiðsögn: Tekið er á móti öllum gestum og hægt að panta leiðsögn um búið.
Annað: Á bænum er snuddutré fyrir lömb. Þar geta börnin gefið lömbum snuð og fylgst með atferli lambanna.


Helluvað, Rangárvellir
850 Hella

Á Græna kortinu:

Vatnsból

Opinber vernduð vatnsból fyrir drykkjarvatn.

Vottanir og viðurkenningar:

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Skilaboð: