Tegund bús: Sauðfjárrækt. Skógrækt. Ferðaþjónusta, þ.e. gisting og hestaferðir.
Til sölu: Reykt sauðakjöt og lambakjöt.
Tökum á móti: Hópum og einstaklingum. Í fjárhús á veturna og á sauðburði.
Opnunartími árs: Allt árið.
Aðstaða: Öll venjuleg aðstaða sem fylgir ferðaþjónustu, ásamt gistingu, heitum potti, göngu- og reiðleiðum frá bænum. Stutt er í Þjórsárdal.
Annað: Náttúrufegurð. Veiði í ánni. Sundlaug í næsta nágrenni (10 km).

Fossnes C
800 Selfoss

Á Græna kortinu:

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Vottanir og viðurkenningar:

Beint frá býli

Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.

Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

Skilaboð: