Hótel Gullfoss fyrirtæki
Hótel Gullfoss er á bökkum Hvítár skammt frá Gullfossi. Þar eru 16 tveggja manna herbergi með baði, heitum pottum og veitingarsalur fyrir allt að 60 manns. Á matseðlinum eru íslenskir réttir, fiskur, kjöt og grænmeti úr heimabyggð. Hótel Gullfoss býður upp á vinalegt viðmót, góðan mat og afslappað andrúmsloft.
Opið á sumrin og samkvæmt bókunum á vetrum.
Brattholt
801
Selfoss
4868979
http://www.hotelgullfoss.is
Á Græna kortinu:
Vottanir og viðurkenningar:
Matarklasi Suðurlands - hefðir úr héraði
Matarklasi Suðurlands og Vestmannaeyja hefur það að markmiði að varðveita og hefja til vegs og virðingar hefðir úr héraði í matargerð í anda hinna alþjóðlegu „Slow Food/Hægrar matarmenningar“ samtaka. Með því að nýta hráefni úr næsta nágrenni okkar svo sem unnt er styrkjum við matvælaframleiðslu og aukum fæðuöryggi þjóðarinnar. Það styttir auk þess flutningsleiðir, minnkar mengun og sparar flutningskostnað. Matarklasi Suðurlands hefur þó ekki verið virkur í nokkur ár.