Tegund bús: Kúabú með mjaltabás, legubásum og sjálfvirku fóðurkerfi. Kornhlaða, verkstæði og vélageymsla, heimilisgróðurhús.
Opnunartími: Opið frá 6. júlí – 6. ágúst, alla daga frá kl 10:00 – 16:00. Eftir samkomulagi á öðrum tímum.
Við tökum á móti: Hópum og einstaklingum á öllum aldri, íslenskum og erlendum.
Leiðsögn: Tekið er á móti öllum gestum og leiðsögn veitt um búið.
Annað: Kynning á bygg- og hveitirækt. Gamlar dráttarvélar til sýnis. Koltunguvirkjun, raforka og jarðhiti (2 km).


Þorvaldseyri, A-Eyjafjöll
861 Hvolsvöllur

4875757
thorvaldseyri.is

Á Græna kortinu:

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Nýsköpun í heimabyggð

Nýsköpun þar sem náttúruafurðir og vistvænar/sjálfbærar framleiðsluaðferðir eru í hávegum hafðar.

Vottanir og viðurkenningar:

Beint frá býli

Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.

Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

Skilaboð: