News

Lýðheilsan batnar í grænni Reykjavík

Ræðumenn á málþinginu Myndum borg voru sammála um að berjast fyrir grænni borg til að bæta  lýðheilsu borgarbúa og gera borgina skemmtilegri. „Samgöngurnar eru sóknarfæri Reykvíkinga í grænu málunum, lýðheilsa eykst og umhverfið batnar,“ sagði Jón Gnarr borgarstjóri þegar hann setti málþingið á Samgönguviku og að Reykjavíkurborg yrði áfram í fararbroddi umhverfismála á Íslandi.

Jón Gnarr dró upp mynd af borginni þar sem 40% borgarbúa færu til og frá staða gangandi, hjólandi, í strætó eða samferða öðrum í bíl. „Hvernig yrði þá um að litast?“ spurði hann. „Við borgarbúar ráðum hvernig borgin er - við sköpum hana,“ svaraði Magnús Jensson arkitekt og fundarstjóri. Ræðumenn voru sammála um að ef göngu- og hjólreiðafólk yrði áberandi stór hópur í borginni myndi það breyta ásýnd hennar, auka gæðin og draga úr mengun. Jöfnuður í samgöngum milli ólíkra hópa yrði meiri með betri loftgæðum og fjölbreyttari ferðavenjum.

„Taka þarf upp hverfaskipulag, færa skipulagsvinnuna út í hverfin, nær notandanum sem jafnframt er greiðandinn,“ sagði Ólafur Mathiesen arkitekt og lagði jafnframt áherslu á að allir þyrftu að vinna saman, þvert á flokka, þvert á öll svið. Hugtakið hverfaskipulag er verkfæri til að vinna að sjálfbærni og nefndi Ólafur nokkra þætti sem í því felast t.d. ferðamynstur, tenging við opin rými og torg, starfsemi og hvernig tekið er tillit til óska og þarfa íbúa. „Árangursríkt hverfaskipulag byggir á gagnvirku samráði við íbúa og markvissri samvinnu „þvert“á sérfræðigreinar,“ sagði Ólafur.

„Verkefnið Myndum borg sýndi okkur svart á hvítu hversu mikið pláss mismunandi ferðamátar taka. Ef við greiðum ekki götu þeirra sem vilja ferðast á hjóli eða í strætó, þá er ekkert val um samgöngumáta í borginni,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi sem kynnti nýtt myndband og veggspjald sem sýnir ljóslega áhrif breyttra ferðavenja á borgina. Um það bil 100 manns tóku þátt í þessu verkefni og eru 70 þeirra á ljósmyndinni á veggspjaldinu og myndbandinu. Samtök um bíllausan lífsstíl stóðu að þessu verkefni og málþinginu á Samgönguviku í samvinnu við Reykjavíkurborg. Hægt er að panta veggspjaldið hjá samtökunum.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ræddi á málþinginu um áhrif vistvænna samgangna í hnattrænu samhengi og um nýja samgöngusamninga við starfsfólk í Umhverfisráðuneyti og Páll Hjaltason formaður skipulagsráðs Reykjavíkur fjallaði m.a. um almenningsrými. Sigrún Helga Lund frá Samtökum um Bíllausan lífsstíl og Bergur Ebbi Benediktsson lögfræðingur fluttu einnig erindi á málþinginu.

Myndbandið Myndum borg

Veggspjaldið

Samtök um bíllausan lífsstíl

Glærur úr fyrirlestir Ólafs Mathiesen





Share with friends

0 Comments made

Comment

Name:

Comments:


Please solve the mathematical question above and enter the result in the field.
Made to guaranty human origin of the words.

Everyone is free to write under her/his own name or use an alias if they choose. The idea is to offer an independent podium for discussion on sustainable development and to increase environmental awareness and help environmental goals be established and met in the business environment as well as in the common household. Nature.is reserves the right to delete entered comments or cut content. IP-adresses are kept for reference.
Categories:

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Products
  • Departments
  • Cart
  • Prod.Search
  • Guidelines
  • Discl.
Indicator

Related articles:

Transport: Bicycling [70]

Transport: Eco-friendly motor vehicles [97]

Events: Meetings and Conferences [538]

Recent comments

Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.