Efni eða efnablöndur sem erta húð og augu, valda ofnæmisviðbrögðum í húð, erta öndunarveg, valda syfju eða svima.

Dæmi:
Efni til að fjarlægja útfellingar, salernishreinsir, þvottaefni, frostlögur og sumar límtegundir.

Varúðarreglur:
Allt eftir hættunni hverju sinni þá mælt er með notkun hlífðarhanska og hlífðargleraugna. Forðist innöndun ef hætta er á ertingu öndunarvegs, syfju eða svima.

Hætta:
Sumar vörurnar valda ertingu í öndunarvegi við innöndun. Aðrar innihalda lífræn leysiefni sem valda syfju og svima við innöndun. Gufur geta valdið höfuðverk og vímu. Inntaka getur verið hættuleg eða einungis valdið óþægindum og ert slímhúð í munni og maga. Sumar vörurnar geta valdið ofnæmisviðbrögðum í húð eftir snertingu á meðan aðrar geta valdið ertingu í húð og útbrotum. Komist varan í augu geta það orsakað ertingu.

Vefsíða: http://www.ust.is/einstaklingar/graenn-lifsstill/laerdu-ad-thekkja-merkin/haettumerki/

Skilaboð: