Gas í ílátum undir þrýstingi (2 bar eða meira).

Dæmi:
Flöskur með fljótandi gasi, logsuðugas, súrefnishylki.

Varúðarreglur:
Gas undir þrýstingi verður að geyma á vel loftræstum stað sem varinn er gegn sólarljósi. Gangið úr skugga um að allar slöngur og tengihlutir séu þéttar.

Hætta:
Athugið: Gas undir þrýstingi getur sprungið við hitun. Hættugerðin er sýnd á merkimiðanum og getur verið mjög breytileg allt eftir því hvort gasið er eldfimt, eldnærandi, eitrað eða tærandi. Gashylki getur einnig innihaldið kælt gas sem getur valdið kali.

Vefsíða: http://www.ust.is/einstaklingar/graenn-lifsstill/laerdu-ad-thekkja-merkin/haettumerki/

Skilaboð: