Kitchen Garden: Bed

Eldhúsgarðurinn - kartöflubeðið

Eldhúsgarður skilti 16

Kartöflur [Solanum tuberosum].

Íslensku afbrigðin (yrkin) eru þrjú; rauðar íslenskar, gular íslenskar og bláar íslenskar.

Vaxtarrými: 33X33cm
Dýpt: Fer eftir yrki, 5-10 cm
Gróðursetning: Maí
Uppskera: Ágúst-september

Kartöflugrös eru viðkvæm og falla við fyrsta frost. Talið er þó að kartöflurnar sjálfar geti þroskast í moldinni í eina tíu daga eftir að grösin eru fallin svo það er engin ástæða til að óttast. Sumir þurrka kartöflurnar úti, en þó ekki beint í sól, og geyma síðan óþvegnar, en helst í kulda. Aðrir þvo kartöflurnar, þurrka og láta í kassa og geyma við 12–14 gráðu hita í um 12 daga svo hýðið geti skurnað áður en þær eru settar í kalda geymslu.

Sjá meira efni um kartöfluna hér á vefnum með  því að slá inn orðið „kartöflur“ í leitarreitinn hér til hægri á síðunni.

Mynd: Gróðurreitir í Eldhúsgarðinum eru í stærðinni 1 m2, í reitinum má rækta upp af 8-9 móðurkartöflum, 8 ef valið er að láta jurtirnar víxlast sem gefur að vissu leiti betra svigrúm fyrir jurtina og rótarávextina.

Í Eldhúsgarðinum er ætíð miðað við lífræna ræktun en lífræn rætkun gefur eilítið minni uppskeru, að umfangi, en bragðgóða og eiturefnafría næringu í staðinn.


this article continues, read more...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Hildur Hákonardóttir
19. May 2013 09:22
Origin: Náttúran.is
Share with friends

Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er

Ef þú hefur aðeins lítið pláss til umráða eða getur fengið smá pláss á svölum eða holað þér niður hjá vini eða kunningja gætir þú komið þér upp Eldhúsgarði í örlitlu útgáfunni. Góð stærð til að miða við er einn fermeter 1m2 en á einum fermeter má rækta ýmislegt og hafa gaman af. Ef reiturinn er ekki plægður fyrir getur þú skellt niður einföldum fjórhliða botnlausum kassa. Hann má gera úr mótatimbri eða bara einhverjum viðarafgöngum sem finnast víða. Hornin má festa saman með gúmmíbút, skósólum af ónýtum strigaskóm eða gömlum stígvélum. Heftibyssa eða nokkrar skrúfur hjálpa þér síðan við að festa heimatilbúnu „lamirnar“ á timbrið. Um að gera að kosta sem minnstu til og nota það sem til er. Auðvitað má einnig nota fínar lamir, skrúfa eða negla spýturnar saman.

Grasflötur fundinn fyrir Eldhúsgarðinn litla! Rúmur fermeter dugar til, nauðsynlegt er þó að hafa pláss til að komast þægilega að kassanum á alla vegu.
Eldhússgarðskassanum hefur verið fisjað saman úr fjórum eins metra löngum spýtum, fjórum gúmmípjötlum og sextán skrúfum
Í botninn leggur þú síðan nokkur lög af dagblöðum, gras og illgresi vex ekki í gegnum dagblöðin og þau jarðgerast ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir 2-3 ár.
Ofan á dablöðin skellir þú síðan mold, sæmilega góðri eða bætir slappa mold með hrossaskít, hænsnaskít, þaramjöli eða öðru góðum lífrænum áburði því Eldhúsgarðurinn á að sjálfsögðu að vera umhverfis- og mannvænn. Nú getur þú hafist handa við að sá því sem þú vilt í garðinn eða planta út forræktuðum plöntum. Ef þú byrjar strax er betra að skella plasti eða akríldúk yfir kassann því ennþá er ansi kalt á nóttunni. Ef þú hefur miklu meira pláss, tíma og setur markið á stærri garð, þá hinkrar þú við og fylgist með á næstu dögum, vikum og mánuðum!

this article continues, read more...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. May 2013 09:35
Origin: Náttúran.is
Share with friends

1

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mar   apr   may  

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Products
  • Departments
  • Cart
  • Prod.Search
  • Guidelines
  • Discl.
Indicator

Recent comments

Göngum gegn Monsanto
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:

+ More comments

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.