Education: Schools
Opið hús hjá Garðyrkjuskólanum Reykjum
Verið velkomin í Garðyrkjuskólann Reykjum í Ölfusi (við Hveragerði) á sumardaginn fyrsta þ. 25. apríl nk. frá kl. 10:00-18:00
Nú eru ríflega 50 nemendur við nám á garðyrkjubrautum LbhÍ að Reykjum, á fjórum brautum, blómaskreytingum, garð- og skógarplöntuframleiðslu, skrúðgarðyrkju og ylrækt. Hefð er fyrir því að bjóða vorið velkomið með hátíðardagskrá á sumardaginn fyrsta.
Á markaðstorgi verður til sölu grænmeti, blóm, grænmet s.s. brakandi ferskt hnúðkál, kryddjurtir o.fl. Kaffi og veitingar til sölu á kaffistofunni. Hægt að heimsækja hitabeltið í bananahúsinu og pottaplöntusafnið. Afhending Garðyrkjuverðlaunanna 2013 og andlitsmálning og leikir fyrir börnin.
Ljósmynd: Vorboðinn, Guðrún A. Tryggvadóttir.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
18. April 2013 11:42
Origin: Náttúran.is
Rit um grunnþætti menntunar - Sjálfbærni
Fyrir tveimur árum staðfesti mennta- og menningarmálaráðneytið nýjar aðalnámskrár fyrir leik-, grunn og framhaldsskóla. Á heimasíðu ráðuneytisins segir að í aðalnámskrám,„birtist ný menntastefna sem hefur það meginmarkmið að rækta með markvissum hætti þá þekkingu, leikni og viðhorf sem styrkir getu einstaklinga í framtíðinni til að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi.
Kjarni menntastefnunnar er settur saman úr sex grunnþáttum: læsi, sjálfbærni, lýðræði, jafnrétti, heilbrigði og velferð og sköpun.“
Í framhaldi af þessari stefnumörkun hóf ráðuneytið og Námsgagnastofnun að gefa út lítil þemahefti um hvern af þessum grunnþáttum. Þau eru bæði gefin út á netinu og prentuð. Heftin eru fyrst og fremst ætluð kennurum og öðru skólafólki til að skerpa þekkingu sína á viðkomandi grunnþætti aðalnámskrár og fá hugmyndir um innleiðingu og kennslu á viðkomandi sviði.
Heftið um sjálfbærni er fjórða heftið af þessum sex sem nú kemur út og er enn aðeins á netinu en kemur út prentað á næstu dögum. Það er skrifað af Sigrúnu Helgadóttur, kennara og umhverfisfræðingi. Þótt það sé fyrst og fremst ætlað skólafólki nýtist það hverjum sem er sem langar til að kynna sér hugmyndafræði menntunar til sjálfbærni.
Mynd: Bókarkápa Sjálfbærniritsins, skoða bókina sem flettibók á vef Námsgagnastofnunar.
details
Sigrún Helgadóttir
6. April 2013 00:35
Origin:
Guðni Elíssson Receives Gaia's Environment Award
Yesterday at noon, March 18th the Green days were formally launched at Háskólatorg. Green Days is a five day event were environmental issues are placed in the foreground with the aim of strengthening environmental awareness within the univeristy but also in the community as a whole.
Gaia, the student organization for the Environment and Natural Resources master‘s programme, has organized this event every year since 2008. In addition, Gaia awarded for the second time the Green Days Awards which is granted to an individual, group or department within the university who has in some way promoted and increased environmental awareness within the university and the Icelandic community at large. In 2012 the award was granted to the School of Engineering and Natural Sciences for their implementation of recycling centres in the university.
The receiver of the award this year was Guðni Elísson, a professor at the School of Humanities. Guðni has written a lot about environmental issues and in particular climate change. He has criticized the political dicourse in the country for ignoring and neglecting those imminent changes expected due to climate change not only in our ecosystems but also in our human society and the broader international sphere. Guðni has also pointed out how the political section has repeatedly derogated scientific research results in the field of environmental studies and disregarded the warning signs of scientists about the negative environmental impacts of human actions.
The commitee which decides on the award‘s recipient each year, states that Guðni‘s writings are important in the endeavor to increase environmental awareness and those goals which nations have set themselves to seek sustainable development and secure equal rights for future generations. Climate-induced changes will have a wide impact both in our country but also everywhere else in the world, so it is imperative for political parties from all persuassions to recognize these impacts and respond to them with concrete actions and not merely words. According to the commitee, environmental issues concern us all and Guðni‘s contribution to environmental awareness is an integral part of public education and information. Finally, his vigilant guard towards these authorities which are involved in the decision making on environmental issues is of outmost importance.
details
Davíð Fjölnir Ármannsson
19. March 2013 20:30
Origin: Gaia - félag meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands / Náttúran.is
Lífræn matjurtarækt á íslandi, þróun hennar og staða
„Lífræn matjurtarækt á íslandi, þróun hennar og staða“ er yfirsögn MS varnar Rögnu Dagbjartar Davíðsdóttur nema í Umhverfis og auðlindafræði við Háskóla Íslands en vörnin fer fram á morgun, miðvikudaginn 23. janúar kl 15:00 í VRII, Hjarðarhaga 6, stofu 157.
„Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi samþykkt tillögu þess efnis að auka lífræna landbúnaðarframleiðslu þannig að hún verði um 15% af landbúnaðarframleiðslu á Íslandi árið 2020 (Þingskjal 1020, 2011-2012), er ekki vitað hvert hlutfall hennar er í dag, hvorki hlutfall lífrænnar matjurtaræktar né hlutfall annarra lífrænna landbúnaðarvara. Markmið þessarar rannsóknar var kanna stöðu lífrænnar matjurtaræktar á Íslandi, fjalla um þróun hennar í náinni framtíð og áætla hlutdeild helstu matjurta af heildar matjurtauppskeru landsins. Í rannsókninni kom meðal annars í ljós að nú er lífræn grænmetisuppskera tæp 4% af heildarframleiðslu hérlendis og er búist við að hún aukist lítið næstu árin. Lífræn bygguppskera eykst hinsvegar úr 52% í tæp 69% af byggi ræktuðu til manneldis á tímabilinu. Auk þess var rekstrarumhverfi bænda í lífrænni matjurtarækt skoðað en bændur segjast almennt ekki anna eftirspurn og hún sé enn að aukast. Bændur sinna að mestu leyti öllu ferlinu frá ræktun þar til varan er komin í verslanir. Lögð var áhersla að fá þeirra sjónarmið varðandi hvað hindraði bændur í að fara í lífræna matjurtaræktun og hvað þyrfti að leggja áherslu á til að auka hana. Bændur telja að helsta hindrunin sé skortur á hvatningu frá þeim stofnunum er standa greininni næst eins og frá Landbúnaðarháskóla Íslands, Bændasamtökum Íslands og stjórnvöldum. Til að auka lífræna matjurtarækt þurfi meðal annars að auka styrki, ráðgjöf, tilraunir og kynningu. Í rannsókninni er aðallega stuðst við könnun sem gerð var á meðal bænda í lífrænni matjurtarækt og tilraunir er varða matjurtir á Íslandi. Auk þess var aflað heimilda hjá ýmsum stofnunum og einstaklingum er tengjast málaflokknum.“
Leiðbeinendur eru þau Brynhildur Davíðsdóttir og Ólafur Dýrmundsson. Prófdómari: Kristín Vala Ragnarsdóttir.
Allir eru velkomnir!
Ljósmynd: Kartöflugrös, hvítkál og bygg, lífræn eigin ræktun, Guðrún A. Tryggvadóttir.
details
Háskóli Íslands
22. January 2013 13:57
Origin: Háskóli Íslands - HÍ / Náttúran.is
Jólabasar í Lækjarbotnum
Waldorfleikskólinn Ylur og Waldorfskólinn í Lækjarbotnum halda sinn árlega jólabasar laugardaginn 17. nóvember frá kl. 12:00 -17:00.
Margir fallegir hlutir verða í boði bæði í umhverfi og stemmningu sem hverjum og einum er hollt að upplifa, m.a. brúðuleikhús, barnakaffihús, veiðitjörn, eldbakaðar pizzur, jurta apótek, tónlist á vegum nemenda, tívolí og munir þar sem hugur mætir sköpunarkrafti handanna.
Dagskrá:
Kaffi og kökur, handverk, jurta apótek kl. 12:00 - 17:00
Brúðuleikhús kl. 13:00 og 15:00
Eldbakaðar pizzur og tónlist kl. 12:00 - 15:00
- Veiðitjörn er í höndum 1. - 2.bekkjar en þar veiða börn pakka úr hafinu.
- 3.-4. bekkur sjá um barnakaffihús en þar fá fullorðnir einungis að versla í fylgd með börnum.
- 5.-6. bekkur er með tívolí.
- 7.-8. bekkur er með happdrætti.
- 9.-10. bekkur matreiðir eldbakaðar pizzur í Skemmunni.
- Menningaratriði nemenda eru í Skemmunni
- Brúðuleikhús er í höndum kennara skólans en þar er blandað saman brúðum, sögustund og tónlist.
- Börn og foreldrar allra bekkja skólans og leikskólans hafa unnið handverk og búið til jurta apótek.
Sjá staðsetningu Waldorfskólans í Lækjarbotnum hér á Græna kortinu.
Um Waldorfuppeldis- og kennslufræði:
this article continues, read more...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
14. November 2012 07:28
Origin: Waldorfskólinn Lækjarbotnum

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | may |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | may |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | may |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | may |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
saturday 18. may
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Ávextir
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013

Recent comments
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:
+ More comments


Náttúran.is á Facebook.




