Technology: Sustainable
Rit um grunnþætti menntunar - Sjálfbærni
Fyrir tveimur árum staðfesti mennta- og menningarmálaráðneytið nýjar aðalnámskrár fyrir leik-, grunn og framhaldsskóla. Á heimasíðu ráðuneytisins segir að í aðalnámskrám,„birtist ný menntastefna sem hefur það meginmarkmið að rækta með markvissum hætti þá þekkingu, leikni og viðhorf sem styrkir getu einstaklinga í framtíðinni til að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi.
Kjarni menntastefnunnar er settur saman úr sex grunnþáttum: læsi, sjálfbærni, lýðræði, jafnrétti, heilbrigði og velferð og sköpun.“
Í framhaldi af þessari stefnumörkun hóf ráðuneytið og Námsgagnastofnun að gefa út lítil þemahefti um hvern af þessum grunnþáttum. Þau eru bæði gefin út á netinu og prentuð. Heftin eru fyrst og fremst ætluð kennurum og öðru skólafólki til að skerpa þekkingu sína á viðkomandi grunnþætti aðalnámskrár og fá hugmyndir um innleiðingu og kennslu á viðkomandi sviði.
Heftið um sjálfbærni er fjórða heftið af þessum sex sem nú kemur út og er enn aðeins á netinu en kemur út prentað á næstu dögum. Það er skrifað af Sigrúnu Helgadóttur, kennara og umhverfisfræðingi. Þótt það sé fyrst og fremst ætlað skólafólki nýtist það hverjum sem er sem langar til að kynna sér hugmyndafræði menntunar til sjálfbærni.
Mynd: Bókarkápa Sjálfbærniritsins, skoða bókina sem flettibók á vef Námsgagnastofnunar.
details
Sigrún Helgadóttir
6. April 2013 00:35
Origin:
PEFC
The Programme for the Endorsement of Forest Certification PEFC is an international non-profit, non-governmental organization dedicated to promoting Sustainable Forest Management (SFM) through independent third-party certification. PEFC labeled goods include products such as paper, charcoal, wood, wooden furniture, paper cups etc.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
19. March 2013 19:16
Origin:
Hringrás - Vistvænar byggingar
Upphitun og kæling
Leitast skal við að nota endurnýjanlega orku til upphitunar og kælingar. Á Íslandi eru hús hituð upp með endurnýjanlegri orku, þ.e. jarðvarma, en hann finnst einungis á fáum stöðum á jörðinni. Á Íslandi er jarðvarmi nýttur bæði til upphitunar á húsum og til rafmagns-framleiðslu. Um 90% Íslendinga hafa aðgang að hitaveitu en hinir nota rafmagnshitun.
Hægt er að lækka húshitunarkostnað með því að nota varmadælur. Þær njóta aukinna vinsælda á norðlægum slóðum og eru um 95% allra nýbygginga í Svíþjóð með slíkan útbúnað. Varmadælur skila frá sér varmaorku til upphitunar og þurfa til þess raforku sem er þó mun minni en þyrfti við hefðbundna rafmagnshitun. Þessi lausn er talin vænlegur kostur til upphitunar þar sem ekki finnst ódýr jarðvarmi.
Rafmagn
Í sjálfbæru samfélagi er notað rafmagn sem framleitt er með endur-nýjanlegum orkugjöfum eins og vatnsorku, vindorku og sólarorku. Ísland er ríkt af vatnsorku og jarðvarma og anna Íslendingar raforkuþörf sinni að 99,9% með þessum sjálfbæru innlendu orkugjöfum. Nýting á orku fallvatna hefur engin áhrif á afrennsli af landinu og því ekki hægt að ofnýta þessa orku. Vinnsla jarðhita er sjálfbær ef aðstreymi til jarðhitasvæðanna er í jafnvægi við vinnsluna.
Raforkunotkun á hvern íbúa á Íslandi er með því hæsta sem gerist í heiminum. Þetta má að mestu skýra með orkufrekri stóriðju en almenn orkunotkun íslenskra heimila er einnig mjög mikil. Þurfum við þá nokkuð að spara? Þó við búum svo vel hér á landi að eiga nægar orkulindir í fallvötnum og jarðhita er ekki þar með sagt að ekki þurfi að spara þær. Með því að nýta innlenda raforku betur sparast auðlindir landsins og meira fæst út úr þeim fjárfestingum sem liggja í orkumannvirkjum landsins.
Fráveita
Fráveita er leiðslukerfi fyrir fráveituvatn þ.e. skólp, ofanvatn og vatn frá upphitunarkerfum húsa. Til að stuðla að sjálfbærri þróun þarf að hreinsa fráveituvatn staðbundið og sjá til þess að næringarefnum sé skilað aftur til náttúrunnar. Frá árinu 1999 er skylt að hreinsa allt fráveituvatn á Íslandi. Hefðbundnar skólphreinsistöðvar hreinsa smitandi efni svo meðhöndlað vatn mengi ekki vötn og ár. Í náttúrlegum hreinsivirkjum er næringarefnum skólps að auki skilað aftur til náttúrunnar.
Hvað er í skólpi? Skólp getur bæði talist til auðlinda og mengunarefna. Auðlindahlutinn inniheldur næringarefni, lífræn efni, varmaorku og vatn en mengunarhlutinn smitandi efni, eins og bakteríur, vírusa og sníkjudýr, og þungmálma. Næringarefnin er helst að finna í þvagi. Náttúran, með mold, gróðri og örverum, býr yfir góðum hæfileika til að hreinsa skólpvatn. Þróuð hafa verið tilbúin náttúrukerfi til hreinsunar á skólpi eins og tjarnir og votlendi
this article continues, read more...
Varis Bokalders og Maria Block
18. January 2013 11:25
Origin: Varis Bokalders og Maria Block
Vistvænar byggingar og áhrif þeirra á hönnun, framkvæmd og heilsufar
Evrópumiðstöð á Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samvinnu við Vistbyggðarráð býður til opins vinnufundar á Hilton Reykjavík Nordica 2. h. föstudaginn 18. janúar frá kl. 9 - 12.
Dagskrá:
- Innleiðing og kynning á PRISM verkefni Enterprise Europe Network á Íslandi - Gauti Marteinsson, verkefnisstjóri Evrópumiðstöðvar á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Þurfum við vistvænar byggingar? - Erindi: Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdarsýslu Ríkisins - Markaður fyrir vistvænar byggingar - Vinnustofa
- Vistvænar byggingar og vellíðan - Erindi: Björn Marteinsson, verkfræðingur/arkitekt, Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Heilsufarsáhrif vistvænna bygginga - Vinnustofa
- Er hagkvæmara að byggja vistvænar byggingar? - Erindi: Guðríður Guðmundsdóttir, gæða- og öryggisstjóri VHE á Austurlandi
Hagkvæmni og vistvænar byggingar - Vinnustofa - Hvað þarf til að byggja vistvænar byggingar - Erindi: Björn Guðbrandsson, arkitekt, ARKIS - Vistvæn byggingarefni – Vinnustofa
- Umræður
- Hádegissnarl og tengslamyndun
Fundarstjóri er Gauti Marteinsson, verkefnisstjóri Evrópumiðstöðvar á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir!.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hér.
details
Sigríður Björk Jónsdóttir
11. January 2013 12:17
Origin: Nýsköpunarmiðstöð Íslands / Vistbyggðarráð
Opinn fundur um græna leigu og samkeppni um vistvæna endurhönnun
Þann 29.nóvember frá kl. 15:00 -16:00 stendur Vistbyggðarráð fyrir opnum fundi sem ber yfirskriftina, Græn leiga og samkeppni um vistvæna endurhönnun. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Eflu að Höfðabakka 9
Á fundinum verða svokallaðir grænir leigusamningar skoðaðir og hvaða áhrif þeir geti haft á íslenskan leigumarkað.
Einnig verður samkeppni Nordic Built um vistvæna endurhönnun kynnt og farið yfir helstu áhersluatriði og framkvæmd samkeppninnar.
Undanfarin ár hefur það færst í vöxt í nágrannalöndum okkar að gerðir séu svokallaðir ,,grænir leigusamningar“ um bæði íbúðar-og atvinnhúsnæði. En hvað felst í grænum leigusamningi? Eru þeir fyrst og fremst hugsaðir fyrir skrifstofubyggingar eða íbúðarhúsnæði og hvaða hagur er að því að gera grænan leigusamning. Er þetta e.t.v. eitthvað sem við getum tekið upp á Íslandi?
Markið með grænum leigusamningum er að bæði leigusalar og leigjendur vinni saman að því að auka sjálfbærni og draga með þeim hætti úr neikvæðum umhverfisáhrifum bygginga. Grænir leigusamningar geta verið mismunandi allt eftir aðstæðum hverju sinni. Í flestum tilvikum er um að ræða hefðbundna leigusaminga en inn í þá er bætt ákvæðum um m.a.
- Skyldur leigusala til að viðhalds húsnæðis til að tryggja hámarks skilvirkni kerfa og þar með að lágmarka orkunotkun.
- Skyldur leigjanda til að uppfylla ákveðnar kröfur um orkunýtni í notkun húsnæðis. (rétt notkun loftræstikerfa o.s.frv.)
Einnig geta samningarnir kveðið á um vistvænar áherslur varðandi ýmislegt annað tengt rekstri húsnæðisins s.s. almennt viðhald byggingar, förgun úrgangs, flutning, og aðra tengda þjónustu.
Leigusali og leigjandi gera með sér samkomulag eða e.k. sáttmála um að fylgja umhverfisstefnu t.d. viðkomandi fasteignafélags og þá fylgja oft hvatakerfi (t.d. lækkun leigu) fyrir þá leigjendur sem standa sig vel í þeim efnum, enda hagur fyrir fasteignafélög að lækka almennan rekstrarkostnað og að geta boðið upp á gæða húsnæði og góða þjónustu sem um leið getur aukið markaðsvirði þess bæði á leigu- og fasteignamarkaði.
Dagskrá:
15:00-15:20 Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, forstöðumaður eignaumsýslu hjá Reitum fasteignafélagi - Grænir leigusamningar á Íslandi.
15:20-15:40 Kynning á Nordic Built, norrænni samkeppni um vistvæna endurhönnun.
15:4o-15:50 Umræður/fyrirspurnir.
15:50-16:00 Veitingar.
details
Sigríður Björk Jónsdóttir
28. November 2012 15:32
Origin: Vistbyggðarráð

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | may |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | may |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | may |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | may |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
tuesday 21. may
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Rót
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013
13:15 - 16:15
Málþing um Búrfellshraun
See article: Búrfellshraun - Málþing til minningar um Guðmund Kjartansson jarðfræðing
17:30
Undirbúningsfundur fyrir gönguna gegn Monsanto
See article: Göngum gegn Monsanto

Recent comments
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:
+ More comments


Náttúran.is á Facebook.




