Nourishment: Guidelines
Grænmetisætur stofna samtök
,
,Við erum ekki mörg , en við erum fólk með heita lífssýn og ríka þörf fyrir að umgangast aðra sem skilja okkur,” segir Sæunn I. Marinósdóttir en grænmetisætur ætla að stofna samtök á laugardag sem eiga að standa fyrir fræðslu og viðburðum og stuðla að auknu framboði vara sem henta þörfum grænmetisæta, auka þekkingu og skilning á lífsstíl grænmetisæta og stunda virka hagsmunagæslu.
Sæunn Ingibjörg segir að hópurinn Íslenskar grænmetisætur hafi lengi starfað á Facebook með um 700 meðlimi. Þeir eigi það sameiginlegt að telja að ýmislegt megi betur fara, varðandi framboð í verslunum og á veitingahúsum. ,,Við héldum undirbúningsfund í mars og lögðum línurnar,” segir Sæunn sem hætti að borða rautt kjöt þegar hún var sautján ára. ,,Smám saman tók ég fleiri fæðutegundir í burtu og núna er ég vegan og borða engar dýraafurðir, hvorki kjöt, egg né mjólkurafurðir. Þá kaupi ég ekkert úr dýraríkinu, hvorki ull né leður,” segir Sæunn og bætir við að það gangi ekki allir svona langt. ,,Það er pláss fyrir margskonar lífsstíl í okkar röðum.”
Sjálf er hún grænmetisæta af samviskuástæðum: ,,Það er út af dýravernd og umhverfismálum. Ég hef miklu betri samvisku nú en áður.”
Aðstandendur nýja félagsins vonast er til að starfsemi þess muni styrkja enn frekar það lifandi samfélag sem myndast hefur meðal grænmetisæta á Íslandi. Fundurinn verður haldinn í sal Lifandi markaðar í Borgartúni 24.
Sjá Facebooksíðu íslenskra grænmetisæta.
Ljósmynd: Nýuppteknar gulrætur, Guðrún A. Tryggvadóttir.
details
smugan.is
29. April 2013 23:45
Origin: Smugan
Ís og klakar
Eins og í sælgæti er ógrynni af litarefnum í ís og frostpinnum. Sum þessara litarefna eru unnin úr hráolíu eða kolatjöru. Brilljant blátt FCF (E-133) t.d. er að finna í ís. Efnið var lengi bannað í sumum löndum Evrópu en hefur nú verið leyft vegna reglna innan ESB. Efnið er unnið úr kolatjöru og það getur framkallað ofnæmisviðbrögð. Viss ótti er við að efnið geti verið krabbameinsvaldandi í miklu magni en það hefur þó ekki verið sannað nema hjá rottum. Önnur litarefni í sælgæti sem eru unnin úr hráolíu eru t.d. E-110 (Sunset Yellow FCF) og E-129 (Allúra rautt AC). Einnig eru ýmis bindiefni sem binda vatn í ísnum og gætu hugsanlega stuðlað að vökvasöfnun í líkamanum.
Af E efna tóli Náttúrunnar fyrir farsíma, skoða e.natturan.is hér.
Grafík: Ís og klakar, af E efna tóli Náttúrunnar, Guðrún A. Tryggvadóttir.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
23. April 2013 23:49
Origin: Náttúran.is
Hver eru umhverfisáhrif íslensks matvælaiðnaðar?
Matís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóli Íslands og Samtök iðnaðarins halda opið málþing um íslenskan matvælaiðnað, umhverfismál og vistvæna nýsköpun, laugardaginn 20. apríl kl. 13-17 í Háskólatorgi Háskóla Íslands. Þar verður fjallað um græna hagkerfið og stefnu stjórnvalda í þeim málum. Sagt verður frá Evrópuverkefnunum Ecotrofoods (www.ecotrophelia.eu) og Converge (www.convergeproject.org) og hvernig staðið er að því að minnka umhverfisáhrif í matvælaiðnaði á Íslandi. Þá verður efnt til sýningar og kynningar á verkefnum nemenda í vistvænni nýsköpun matvæla og afhent verðlaun fyrir besta verkefnið.
Dagskrá viðburðarins í heild er eftirfarandi:
13.00-15.00 Málþing
13.00-17.00 Sýning
15.00-16.00 Verðlaunaafhending í keppni nemenda um vistvæna nýsköpun matvæla
Dagskrá málþings:
13.00-13.20 Græna hagkerfið og íslensk matvælaframleiðsla. Skúli Helgason, formaður nefndar um eflingu græns hagkerfis á Íslandi.
13.20-13.40 Umhverfismál og íslenskur matvælaiðnaður. Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins
13.40-14.00 Verðmætasköpun og áskoranir í umhverfismálum, Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís
14.00-14.20 Vistvæn nýsköpun matvæla. Fanney Frisbæk, verkefnisstjóri orku- og umhverfistækni, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
14.20-14.40 Converge verkefnið. Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands
14.40-15.00 Umræður
Fundarstjóri: Guðjón Þorkelsson, sviðsstjóri, Matís.
Myndin er samklippa ljósmynda Guðrúnar Tryggvadóttur.
details
Matís
17. April 2013 11:16
Origin: Háskóli Íslands - HÍ / Matís ohf. / Nýsköpunarmiðstöð Íslands / Samtök iðnaðarins
Sælgæti
Börnin okkar verðskulda það besta og hreinasta sem völ er á. Líkami barna er mun minni en okkar fullorðnu, og börnin þola því minna af hættulegum efnum þar sem áhrif slíkra efna eru oft minni eftir því sem líkamsþyngd er meiri. Í sælgæti er ógrynni af litarefnum. Sum þessara litarefna eru unnin úr hráolíu eða kolatjöru. Brilljant blátt FCF (E-133) er t.d. að finna í sælgæti. Efnið var lengi bannað í sumum löndum Evrópu en hefur nú verið leyft vegna reglna innan ESB. Efnið er unnið úr kolatjöru og það getur framkallað ofnæmisviðbrögð. Viss ótti er við að efnið geti verið krabbameinsvaldandi í miklu magni en það hefur þó ekki verið sannað nema hjá rottum. Önnur litarefni í sælgæti sem eru unnin úr hráolíu eru t.d. E-110 (Sunset Yellow FCF) og E-129 (Allúra rautt AC). Mikilvægt er að framleiðendur hefji merkingar á hættulegum litarefnum, og að foreldrar séu upplýstir um hvað börnin eru að borða, þannig að fólk viti hvað það er með í höndunum þegar sælgæti er annars vegar.
Af E efna tóli Náttúrunnar fyrir farsíma, skoða e.natturan.is hér.
Grafík: Sælgæti, af E efna tóli Náttúrunnar, Guðrún A. Tryggvadóttir.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
6. April 2013 13:08
Origin: Náttúran.is
Asthma- and Allergy Association of the Nordic Countries
Merki Astma- og ofnæmisstamtaka Norðurlanda.
Landssamtök astma- og ofnæmissjúklinga á Norðurlöndum veita ofnæmisprófuðum og samþykktum vörum í viðkomandi landi leyfi til að bera merki Astma- og ofnæmissamtakanna til þess að auðvelda astma- og ofnæmissjúklingum að finna vörur sem prófaðar hafa verið á viðurkenndan hátt og ekki eru taldar valda ofnæmi.
details
Náttúran er
15. March 2013 11:13
Origin: Náttúran.is

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | may |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | may |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | may |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | may |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
monday 20. may
00:00 - 04:00
Sáðalmanak: Ávextir
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013
05:00 - 23:59
Sáðalmanak: Rót
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013

Recent comments
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:
+ More comments


Náttúran.is á Facebook.




