The Country: Travel

Að „ganga vel“ á fjöllum

Nú á sér stað gífurleg vakning á meðal fólks um gönguferðir í náttúrunni og fjallgöngur. Enginn er maður með mönnum nema hann gangi á Hvannadalshnúk, þúsundir manna ganga Laugaveginn á ári hverju og á góðviðrisdögum er röðin af fólki upp á Kerhólakamb nánast samfelld frá bílastæðunum og upp á topp.

Þetta er auðvitað jákvæð þróun og stórkostlegt að fólk sé að vakna til vitundar um þá óendanlega möguleika í gönguferðum, gönguleiðum og stórkostlegu umhverfi sem hægt er njóta hér. Á Íslandi getum við jafnvel gengið dögum saman án þess að rekast á annað fólk, sem eru algjör forréttindi m.v. það sem göngu- og útivistarfólk í öðrum löndum upplifir víðast hvar á sínum ferðum.

En stöldrum nú aðeins við og skoðum hvar við erum að ganga?

Því miður virðist allt of margt göngufólk, ef ekki stór meirihluti, huga lítið að hvar gengið er. Vissulega er það að fara um landið fótgangandi einn umhverfisvænasti ferðamáti sem hægt er að hugsa sér, en engu að síður getur göngufólk valdið margvíslegum spjöllum á landinu. Vissulega viljum við ekki upplifa það að hér verði settar strangar hömlur á það hvar ganga má og ekki, eins og víða er í þjóðgörðum og útivistarsvæðum erlendis. Því þurfum við að vakna til vitundar um það hvar við erum að ganga. Allt of víða má sjá ljótar slóðir sem myndast eftir göngufólk á meðan hægt hefði verð að komast hjá þessari slóðamyndun með að fólk gerði sér grein fyrir því að sporin marka slóð.

Allt of margir æða hugsunarlaust áfram í beinni stefnu og gæta ekki að því að sneiða hjá viðkvæmum gróðri og jarðmyndunum. Sorglegt er að sjá fótspór í einmana mosaþembu sem ef til vill er eini gróni bletturinn á stóru svæði. Svona umgengni má því miður sjá allt of víða. Hvað þá sporin í fallegri sandhlíð, sem einhver þurfti að fara þvert yfir í stað þess að sneiðan hjá. Svona getum vil lengi talið upp dæmi, þar sem göngufólk getur spillt landi og spillt ásýnd þess með tíð og tíma.

Því er löngu kominn tími til að göngufólk vakni til vitundar um mikilvægi þess að við hugum betur að leiðavali, gróðurvernd og að ganga með aðgát um viðkvæmar jarðmyndanir.

Sumar fjölfarnar gönguleiðir eru orðnar stórskemmdar af þeim mikla fjölda göngufólks sem þar fer um og dettur mér þá fyrst í hug nokkur svæði á Laugaveginum, t.d. í Jökultungum og mikill skaði hefur orðið sunnan við Ljósá. Þar er löngu orðið tímabært að skylda ferðafélög sem byggt hafa upp aðstöðu á þeirri leið að fara að huga að því að bæta þann skaða sem orðið hefur og huga að aðgerðum til að fyrirbyggja frekari landskemmdir en orðnar eru nú þegar.

Allavega þarf hugarfarið varðandi gönguferðir og áhrif þeirra á landið að fara að breytast, áður en settar verða hömlur og takmarkanir á það dásamlega ferðafresli sem við göngufólk höfum mátt njóta hér hingað til .

Ljósmynd: Göngustígur í Landmannalaugum, ljósm. Árni Tryggvason.


details

Árni Tryggvason
23. May 2013 08:58
Origin: Náttúran.is
Share with friends

Málþing um ferðamennsku á háhitasvæðum

Landvernd

Landvernd efnir til tveggja málþinga um sjálfbæra ferðamennsku á háhitasvæðum, annarsvegar í Reykjavík og hinsvegar í Mývatnssveit (sjá hér að neðan). Háhitasvæði eru eitt helsta einkenni íslenskrar náttúru og eftirsóttir ferðamannastaðir. Mikilvægt er að tryggja vernd þessara einstöku auðlinda okkar þannig að núlifandi og komandi kynslóðir geti notið þeirra áfram.

Dagskráin er eftirfarandi:

13:00 Setning málþings - Sveinbjörn Björnsson, fyrrv. rektor Háskóla Íslands

13:05 Geothermal developments, tourism and the environment - Trevor Hunt, jarðeðlisfræðingur, Nýja Sjálandi

13:45 Tourism impact on nature conservation areas - management objectives - Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri, Umhverfisstofnun

14:05 Sustainable tourism development in vulnerable volcanic environments: Idealism or realism? - Rannveig Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands

14:25 KAFFI

14:45 Sharing Special Places - Ensuring we protect what we value - Laura Dawson, meðlimur í Forest and Bird, Nýja Sjálandi

15:25 Strategy building for Iceland's sensitive tourist attractions - Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, Ferðamálastofu

15:45 Nature conservation as the cornerstone of tourism - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar

16:05 Pallborðsumræður

17:00 Málþingi lýkur

Fundarstjóri: Anna G. Sverrisdóttir, stjórnarkona í Landvernd.


details

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
7. May 2013 11:45
Origin: Landvernd
Share with friends

Skýrsla um ástand friðlýstra svæða kynnt í ríkisstjórn

Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í ríkisstjórn í morgun skýrslu Umhverfisstofnunar um ástand friðlýstra svæða. Sex svæði eru nú talin í verulegri hættu sem er fækkun um fjögur svæði ef miðað er við sambærilegan lista sem gefinn var út fyrir tveimur árum.

Svæðin sem fjallað er um í skýrslunni eru flokkuð í tvo hópa og lenda á rauðum eða appelsínugulum lista eftir því hversu alvarlegt ástand þeirra er talið. Svæði á rauða listanum metur Umhverfisstofnun undir svo miklu álagi að þar þurfi þegar að bregðast við. Svæði á appelsínugula listanum eru svæði sem stofnunin telur vera undir töluverðu álagi sem fylgjast þurfi grannt með og bregðast við eftir atvikum.

Sex svæði eru nú talin í verulegri hættu en þau eru Friðland að fjallabaki, Geysir, Helgustaðanáma, Reykjanesfólkvangur, Laugarás og verndarsvæði Mývatns og Laxár en tvö síðastnefndu svæðin voru áður á appelsínugulum lista. Árið 2010 voru svokölluð rauð svæði tíu talsins en frá því að fyrri skýrslan kom út hafa fjögur ný svæði, Skútustaðagígar, Skógafoss, Háubakkar og Rauðhólar bæst á appelsínugula listann. Nokkur svæði hafa flust milli flokka og tvö svæði, Dynjandi og Hraunfossar eru ekki lengur á lista yfir svæði í hættu. Staða svæða í skýrslunni er sýnd í töflunni hér fyrir neðan.

Rauðlituð svæði eru í verulegri hættu að tapa verndargildi sínu eða hafa tapað því að hluta til.
Appelsínugul svæði eru í hættu á að tapa verndargildi sínu og þarfnast aðgerða til að snúa þeirri þróun við.

Rauð svæði 2010
Dyrhólaey
Friðland að Fjallabaki
Geysir
Grábrókargígar
Gullfoss
Helgustaðanáma
Hveravellir
Reykjanesfólkvangur
Surtarbrandsgil
Teigarhorn

Appelsínugul svæði 2010
Dynjandi 
Eldborg í Bláfjöllum
Fossvogsbakkar 
Geitland
Hraunfossar
Kringilsárrani
Laugarás
Verndarsvæði Mývatns og Laxár

Rauð svæði 2012
Friðland að Fjallabaki
Geysir
Helgustaðanáma
Reykjanesfólkvangur
Laugarás
Verndarsvæði Mývatns og Laxár

Appelsínugul svæði 2012
Dyrhólaey
Grábrókargígar
Gullfoss
Hveravellir
Surtarbrandsgil
Teigarhorn
Eldborg í Bláfjöllum
Fossvogsbakkar
Geitland
Kringilsárani
Skútustaðagígar
Skógafoss
Háubakkar
Rauðhólar

Heimild: Ástand friðlýstra svæða, skýrsla Umhverfisstofnunar 2013, bls. 5

Mat sitt byggir Umhverfisstofnun á svokallaðri SVOT greiningu, en hún byggir á styrkleika, veikleika, ógnum og tækifærum viðkomandi svæðis.

Ástand friðlýstra svæða, skýrsla Umhverfisstofnunar.


details

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
16. April 2013 15:19
Origin: Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Share with friends

Ferðir með Landvernd og Ferðafélagi Íslands í sumar

Austurengjahver

Háhitasvæði á Reykjanesskaga, 23. júní 2013
Fararstjóri Sigmundur Einarsson jarðfræðingur
Ferð sem hefst á fyrirlestri um jarðfræði Reykjanesskagans og hugmyndir um jarðhitavirkjanir á svæðinu. Að því loknu er ekið með rútu frá Reykjanesbraut, um Afstapahraun að Höskuldarvöllum og Trölladyngju. Gengið verður upp á hæðina sem eftir stendur af Eldborg við Trölladyngju og horft yfir jarðhitasvæðið en gígurinn er hornpunktur í Reykjanesfólkvangi.

Háhitasvæði Mývatnssveitar og Öskju, 29. júní – 1. júlí 2013

Fararstjórar: Kristján Jónasson og Jón S. Ólafsson
Ferð um misfjölfarin en sérlega viðkvæm háhitasvæði, þar sem náttúruvernd snýr bæði að virkjunum og ferðamennskju, þ.e. að ferðamennska þróist þannig að hún komi ekki niður á gæðum svæðanna. Sérstaða íslenskra háhitasvæða lýsir sér í margbreytilegri jarðfræði og afar áhugaverðum aðlögunum lífvera að einstökum búsvæðum í hverum og affallslækjum háhitans.

Náttúruperlur í Vestur-Skaftafellssýslu: gengið með Hólmsá að Strútslaug, 4-7. júlí 2013
Fararstjórar: Vigfús Gunnar Gíslason, Gísli Már Gíslason og Þóra Ellen Þórhallsdóttir auk heimamanna.
Trússuð tjaldferð þar sem gengið er meðfram Hólmsá alla dagana. Ferðin hefst þar sem Hólmsáin, straumhart og mórautt jökulfljót, fellur í Flögulón. Ofar er hún vatnsmikið bergvatn með ótal fossum og hólmum og við Brytalæki er komið í tærar lindir. Ferðin endar við upptök árinnar í suðurhlíðum Torfajökuls. Alla daga þarf að vaða en aldrei djúpt eða straumþungt vatn. Tjaldsvæði og svefnpokagisting í boði í Tunguseli fyrir og eftir ferð en ekki innifalin í verði.

Ljósmynd: Austurengjahver, ©Árni Tryggvason.


details

Landvernd
17. March 2013 13:34
Origin: Ferðafélag Íslands / Landvernd
Share with friends

Óvinavæðing í útiveru

Freedom ÁT

Um langan aldur ferðuðust menn um landið í fullkominni sátt hver við aðra og umhverfið. Enda voru möguleikarnir til ferðalaga fábreyttir og fáir lögðu leið sína í auðnirnar. Hálendið var næstum lokaður heimur þeirra fáu sem áttu kost á að fara þangað.

Annað hvort fóru menn um ríðandi eða fótgangandi og aðrir möguleikar voru ekki í boði fyrr en langt var liðið fram á miðja seinustu öld þegar fáar bílfærar slóðir urðu til og hópurinn sem þar fór um taldi ekki marga.

Af þessum ástæðum voru árekstrar fáir og það var mönnum fagnaðarefni þessi fái skipti þeir sáu aðra á ferð og skipti þá litlu máli hver ferðamáti hinna var. Helstu áhyggjurnar fólust kannski í að fjárrekstsrar og hrossahópar gætu blandast. Að öðru leiti var ekki hætt við nokkrum ágreiningi.

Í grein sem ég birti hér nýlega fjallaði og nefndist „Ferðafrelsi og ferðavirðing" fjallaði ég um þá þróun sem orðið hefur í ferðamennsku hér á seinustu áratugum í kjölfar alls þess vaxandi fjölda fólks sem fer um landið. Jafnt í byggð sem óbyggðum, þó helst séu óbyggðir og miðhálendið sem mér er hugleikin í þessu samhengi. Þar er sá hluti landsins eða öllu heldur heimur sem var ósnortinn af mönnum langt fram á seinustu öld.

Lengst af ríkti friður á milli allra sem um landið fóru, burtséð frá hvaða ferðamáta þeir notuðu. Fáir voru á ferð og hávaði og ummerki eftir einn hópinn voru ekki líkleg til að ónáða aðra sem fóru um með öðrum aðferðum. Slíkt á einnig við að mestu í dag en þó með örlitlum breytingum eða kannski réttara sagt þróun sem við verðum að taka vaxandi tillit til. Gagnkvæm tillitssemi og breytt viðhorf munu fara vaxandi á næstu árum og áratugum. Þar verð að eiga sér stað breytinga  og ekki þarf nokkur maður að efast um að þær breytingar muni vekja gremju sumra.

Ég vil taka skýrt fram áður en lengra er haldið að lang stærstur hluti landsins á að vera flestum þeim ferðamátum sem við þekkjum í dag opinn á sama hátt og verið hefur. En þörfina fyrir að marka af viss svæði þar sem einn hópur getur stundað sína útiveru eða íþrótt óáreittur frá öðrum verðum við að fjölga, virða betur og draga þar skarpari línur. Nú eru til umfjöllunar á Alþingi ný Náttúruverndarlög sem vakið hafa upp reiðilöldu og umræðu í hópum þeirra sem stunda sk. mótorsport. Þar fara fremstir jeppamenn en af öðrum úr þeim hópi má nefna vélsleða-, fjórhjóla- og mótorhjólamenn.

Allt saman hópar sem eiga að hafa eðlilegan aðgang að landinu sem hentar þeirra útiveru og jafnvel þarf að huga að því að þeir hafi aðgang að svæðum sem þeir geta stundað sín áhugamál óáreittir fyrir öðrum hópum. Slík svæði eru nú þegar til, en þeim mætti að ósekju fjölga frekar.

Engu að síður eru vissir hópar útivistarfólks viðkvæmari fyrir truflun annarra. Hóparnir sem „trufla" líta oft ekki á sína umferð sem truflun. Jeppamaður sem ekki sá nauðsyn þess að leiðinni inn að Öskjuvatni frá Vikraborgum, hélt eitt sinn langa tölu yfir mér yfir heimsku leiðsgumannsins sem kærði hann fyrir athæfið. Slík dæmi eru ótal mörg.

Eitt af þeim atriðum sem hvað helst er deilt um varðandi ný náttúruverndarlög, eru einmitt þau ákvæði sem varða hömlur á einn ferðamáta umfram aðra á vissum svæðum. Vissulega er umræðan erfið og upphrópanir eins og „skert ferðafrelsi" heyrast. En því miður er löngu orðið tímabært að við tökum þessi mál til endurskoðunar. Vissum svæðum þarf að loka fyrir akandi umferð, jafnvel þó svo að akstur hafi verið heimill þar áður. Enda eru fordæmin ótal mörg og ég fullyrði að allir séu sáttir við þær lokanir í dag þó eitthvað hafi verið um þær deilt á sínum tíma. Þar dettur mér t.d. í hug lokun Almannagjár fyrir akstri (hver myndi krefjast þess að fá að aka þar í dag?). Lokun leiðar í Þjófadali, frá Kaldárseli að Helgafelli, frá Vikraborgum að Öskjuvatni, leiðin um Skófluklif að Strútslaug og síðast en ekki síst lokun Hvannadalshnúks og Öræfajökuls. Hér eru aðeins örfáar leiðir taldar af ótalmörgum sem lokað hefur verið. Sumum þeirra vegna harkalegs yfirgangs akandi umferðar eins og gerðist á Hvannadalshnúk um hvítasunnuna 2002.  Í námunda við skíðasvæði hefur yfirgangur sleðamanna t.d. verið til mikils ama og þeir ítrekað spillt aðstöðu til þeirrar íþróttar í sjáfhverfni sinni og jafnvel stefnt fólki þar í stórhættu með glæfraakstri. Þetta gerist á meðan allt um kring eru endalausar víðáttur til að aka um.

Því miður hefur það svo gerst á seinustu árum að þeir hópar sem notið hafa óhefts akandi aðgangs að náttúru landsins og upplifa það sem skerðingu á þeirra ferðafrelsi að svæðum sé lokað og stilli þá öðrum útivistarhópum upp sem einhverjum „óvinum" og hafa viðhaft stór orð í þeirra garð. Hér er komin upp slæm orðræða sem þarf að leiðrétta og snúa  aftur til betri vegar. Þó ég vilji upplifa kyrrð á vissum svæðum er það ekki af illgirni í garð vélamanna. Þó ég sé sjálfur vel akandi á ágætum jeppa hvarflar ekki að mér að aka um viss svæði. Á sama hátt og ekki hvarflar að mér að krefjast réttar til að fara fótgangandi eða á skíðum um svæði sem eru frátekin fyrir mótorsport. Gagnkvæm virðing þarf nefnilega að ríkja.

Þrátt fyrir vissar lokanir eru þetta aðeins örfá prósent alls þess landflæmis sem við höfum til að njóta útiveru á sem eru lokuð akandi umferð. En temji menn sér ekki aukna kurteisi, tillitssemi og ferðavirðingu, má gera ráð fyrir að slíkum svæðum fari fjölgandi í framtíðinni. Það er þróun sem ég bið ekki um.

Mynd:  Frelsis notið við Álftavatn á Syðra Fjallabaki.


details

Árni Tryggvason
5. March 2013 20:45
Origin: Náttúran.is
Share with friends

1234789

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mar   apr   may  

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Products
  • Departments
  • Cart
  • Prod.Search
  • Guidelines
  • Discl.
Indicator

Recent comments

Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:

+ More comments

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.