The Community: Art & design

If you click on objects on the picture you'll access detailed information
The Bedroom - Photographs
Photographs and pictures play as an important role in each home as music and books. Whether we are talking about the works of renowned artists or family photographs, the placement, type of frame and the interplay of the picture with other things occupying the same space are important. Even fine art and artistic photographs will lose their appeal unless these same factors are carefully considered.
Usually reprints and fashion pictures do not last long because they are not of such good quality and it is only a question of time when they end up on the garbage heap. If you must buy cheap items, changing photographs and pictures regularly, remember that they should be made of materials that will not harm the environment for hundreds of years, once you’ve disposed of them.
details
Náttúran er
14. April 2013 10:35
Origin: Náttúran.is
HönnunarMars 2013
HönnunarMars fer fram í fimmta skiptið, dagana 14. - 17. mars 2013. Það eru íslenskir hönnuðir og arkitektar sem bera hitann og þungann af dagskrá hátíðarinnar sem spannar langa helgi og býður til ótal viðburða, innsetninga og sýninga.
HönnunarMarsinn spannar vítt svið, allt frá helstu hönnuðum þjóðarinnar sem sýna hvað í þeim býr, til nýútskrifaðra hönnuða sem eru stíga sín fyrstu skref. Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum.
HönnunarMars 2013 hefst eins og áður með spennandi fyrirlestradegi, á fimmtudeginum 14. mars þar sem framúrskarandi erlendir hönnuðir og arkitektar veita innblástur með þekkingu sinni og reynslu. Á föstudeginum verður kaupstefnumótið DesignMatch haldið í Norræna húsinu þar sem íslenskum hönnuðum gefst tækifæri á að hitta norræna kaupendur.
Frá opnun hátíðarinnar á fimmtudeginum fram á sunnudag eru sýningar hönnuða og arkitekta opnar. Á HönnunarMars býðst tækifæri að auðga andann og hljóta innblástur af hinni taumlausu sköpunargleði sem ríkir innan hönnunarsamfélagsins.
details
Hönnunarmiðstöð
11. March 2013 17:24
Origin: Hönnunarmiðstöð
Páskagreinar og skreytt egg
Vorið er seint á ferðinn hér á norðurslóðum og Páskarnir eru því oft það fyrsta sem að minnir okkur á að vorið sé að koma. Páskaundirbúningurinn er því kannski enn mikilvægari á Íslandi en t.d. í mið-Evrópu þar sem vorið er löngu farið að minna á sig hvort eð er.
Það er skemmtilegur siður að nota greinar af runnum, sem hvort eð er þarf að klippa um þetta leiti, taka þær inn í stofu og setja í vatn fyrir Páska. Ef þú hefur ekki garð til umráða er hægt að koma við hjá Sorpu og fá sér grein eða bara ganga um hverfið og líta eftir greinum sem eru brotnar eða liggja um á víðavangi.
Um Páskana ætti brumið á greinum sem nú eru settar í vatn að vera farið að opna sig og fyrstu laufblöðin að vera orðin sýnileg. Siðan er hægt að skreyta greinarnar með einhverju léttu og páskalegu eins og t.d. skreyttum eggjum. Egg, litlir ungar, greinar með nýjum laufblöðum og blóm eins og páskaliljur og túlipanar eru tákn um frjósemi Jarðar og minna um leið táknrænt á upprisuna fyrir kristna menn. Ýmsar aðferðir eru notaðar til að mála egg. Hægt er annað hvort að mála soðin egg, sem síðan eru borðuð á Páskadag, eða tóm egg sem blása þarf þá úr.
Að blása úr eggjum
Til að blása úr eggjum þarf títuprjón til að pota göt í eggin að ofan og neðan (aðeins stærra gat á breiðari enda eggsins). Götin þurfa ekki að vera stærri en 2-3 mm. Síðan er blásið úr grennri enda eggsins, yfir skál, þannig að eggjahvítan og eggjarauðan fái að seytla úr egginu í skálina. Þetta er erfitt og ekki á færi lítilla barna. Síðan eru eggin skoluð vel og lögð til þerris á klút þannig að allt fái að leka úr egginu.
Að nokkrum klukkutímum liðnum er hægt að byrja að mála eggin eða þegar að eggið er örugglega orðið þurrt. Eggjarauðuna og eggjahvítuna úr eggjunum má svo nota í bakstur eða aðra matargerð.
Nokkrar aðferðir til að mála egg
Í raun er hægt að mála egg eða skreyta á alla mögulega vegu og láta hugmyndaflugið leiða sig áfram. Klassísk aðferð er að mála þau með vatnslitum eða tússi með pensli, teikna á þau með vaxlitum eða kertum og mála svo yfir lag eftir lag eða að dýfa þeim í vatnsleysanlega liti og leyfa þeim að renna saman. Aðalatriðið er að allir hafi gaman af og fjölskyldan undirbúi Páskana sína, bjóði vorið velkomið, í sameiningu.
this article continues, read more...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
10. March 2013 19:48
Origin: Náttúran.is
Bolabítur - lífrænt vottaðir bolir með náttúrutengdri grafík
Bolabítur er ungt bolahönnunarfyrirtæki sem nýtir náttúruna sem innblástur í alla grafík. Bolabítur flytjur inn vandaða boli frá Anvil Knitwear úr 100% lífrænni bómull. Bolabítur handþrykkir allt sjálfur, notar umhverfisvænt blek og leysiefnalaus hreinsiefni.
Markmið Bolabíts er að bjóða upp á gott úrval af flottum og hugmyndaríkum bolum með framleiðslu sem hefur sem minnst áhrif á náttúruna.
Anvil er amerískt fyrirtæki (stofnað árið 1876) en bolirnir eru framleiddir í Honduras og Nikaragva. Anvil leggur mikið upp úr náttúruvernd og samfélagslegri ábyrgð - sjá nánar á anvilknitwearcsr.com.
Sjá nánar um Bolabít hér á Grænum síðum.



Myndir: Skjáskot úr kynningarmyndbandi um framleiðsluferli Bolabíts.
details
Bjarni Helgason
17. November 2012 14:18
Origin: Bolabítur - Organella ehf
Vatn í tónlist og myndlist
Vatn í listum er viðfangsefni hádegisfyrirlesturs í Þjóðminjasafninu, miðvikudaginn 7. nóvember kl. 12:10. Þar mun Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands fjalla um vatn í myndlist og Karólína Eiríksdóttir, tónskáld fjalla um vatn í tónlist.
Í fyrirlestrum fyrr á árinu hefur verið fjallað um stærð og eðli vatnsauðlindarinnar á Íslandi annars vegar og í Afríku hins vegar þar sem vatn er víða af skornum skammti. Þá hefur verið fjallað um samspil vatns og jarðvegs, vatnsnotkun Íslendinga og þá vá sem getur stafað af vatni.
Vatn hefur þó ekki eingöngu hagnýtt gildi fyrir manninn heldur hefur vatn í öllum mögulegum myndum verið listamönnum innblástur í gegn um tíðina. Þannig er vatn algengt viðfangsefni myndlistarmanna og heilu tónverkin hafa verið samin um vatn.
Á fyrirlestrinum verða sýndar myndir af listaverkum þar sem vatn kemur við sögu og tóndæmi leikin.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12:10 og er áætlað að hann standi til kl. 13:00. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
Þetta er síðasta erindið í röð hádegisfyrirlestra sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Umhverfisstofnun, Veðurstofa Íslands, Landgræðsla ríkisins og Íslenska vatnafræðinefndin efna til í tilefni af evrópsku ári vatnsins.
Ljósmynd: Vatnsgárur, Hugi Ólafsson. Umhverfisráðuneytið.
details
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
5. November 2012 12:51
Origin: Íslenska vatnafræðinefndin / Landgræðsla ríkisins / Umhverfis- og auðlindaráðuneytið / Umhverfisstofnun / Veðurstofa Íslands

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | may |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | may |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | may |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | may |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
sunday 19. may
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Ávextir
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013

Recent comments
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:
+ More comments


Náttúran.is á Facebook.




