The Community: Organisations
SEEDS kynnir spennandi verkefni á Ítalíu fyrir ungt fólk
Hefur þú áhuga á að ferðast, kynnast nýrri menningu og láta gott af þér leiða? Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS kynna spennandi verkefni á Ítalíu fyrir ungt fólk í samstarfi við ungmennaáætlun Evrópusambandsins (Youth in Action).
Þátttakendur fá hluta ferðakostnaðar endurgreiddan, auk þess sem þeim er séð fyrir fæði, húsnæði og skoðunarferðum á meðan að verkefninu stendur.
Dagna 21. - 29. júní næstkomandi mun SEEDS taka þátt í ungennaskiptum sem fara munu fram i Torre Pallavicina á Ítalíu. Þema þessa ungmennaskiptanna er nýsköpun, vöruþróun og framfarir í matvælaframleiðslu, einna helst í bændasamfélögum. Þátttakendur á aldrinum 18-25 ára munu koma saman í Lombardy héraðinu í norður Ítalíu og læra um nýsköpun og vöruþróun meðal ungra bænda á svæðinu, hitta talsmenn samtaka innan geirans auk þess að fá tækifæri til að kynna afurðir sinna eigin heimahaga. Þátttakendur munu ræða saman um landbúnað og matvælaframleiðslu í sínum heimalöndum og kynna þjóðlegan mat sinna landa.
SEEDS á frátekin 9 sæti í þessi ungmennaskipti en þátttakendur munu fá allt að 70% af ferðakostnaði endurgreiddan eftir heimkomu.
Athugið að mögulegt er að senda 1-2 þátttakendur á aldrinum 25-30 ára í þetta verkefni.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessu verkefni kynntu þér þá málið á heimasíðu SEEDS:
www.seeds.is/ungmennaskipti-youth-exchange
Tekið er við fyrirspurnum og umsóknum á netfangið outgoing@seeds.is til 27. maí næstkomandi.
details
Anna Lúðvíksdóttir
21. May 2013 09:59
Origin: SEEDS - Sjálfboðaliðar umhverfis landið
Aðalfundur Samtaka lífrænna neytenda
Laugardaginn 25. maí nk. halda Samtök lífrænna neytenda aðalfund sinn í ReykjavíkurAkademíunni Hringbraut 121. Húsið opnar kl. 13:30 en dagskráin er sem hér segir:
- 13:30 Húsið opnar
- 14:00 Aðalfundarstörf
- 14:30 Guðfinnur Jakobsson bóndi í Skaftholti heldur fyrirlestur um lífræna ræktun.
- 15:00 Skúli Helgason fv. þingmaður fjallar um Græna hagkerfið.
- 15:15 Hlé
- 15:30 Afhending heiðursverðlauna SLN.
- 15:45 Guðrún Hallgrímsdóttir stjórnarformaður Vottunarstofunnar Túns fjallar um stöðu lífrænnar ræktunnar á Íslandi í dag.
- 16:15 Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor á verkfræði- og náttúruvísindasviði HÍ fjallar um heimsókn sína til Bhutan en Bhutan er fyrsta landið sem tekur alfarið upp lífrænt vottaða ræktun.
- 16:45 Umræður
- 17:00 Fundi slitið
Sjá viðburðinn á Facebook.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka með sér nýja félaga.
Léttar lífrænar veitingar verða í boði fyrir fundargesti.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
20. May 2013 20:50
Origin: Náttúran.is / Samtök lífrænna neytenda
Búrfellshraun - Málþing til minningar um Guðmund Kjartansson jarðfræðing
Þriðjudaginn 21. maí 2013 verður haldið í Náttúrufræðistofnun Íslands við Urriðaholt í Garðabæ, málþing tileinkað minningu Guðmundar Kjartanssonar jarðfræðings en síðasta rannsóknarverkefni hans var aldursgreining og kortlagning Búrfellshrauns sem er samheiti á mörgum hraunum í Garðabæ og Hafnarfirði og runnið hafa frá Búrfellsgíg til sjávar. Guðmundur lést árið 1972.
Málþingið verður frá kl. 13:15 til 16:15 og að því loknu verður farið að Bala, staðar á bæjamörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar og neðan Hrafnistu, þar sem bæjarstjórar Garðabæjar og Hafnarfjarðar, kynna sameiginlegt verkefni.
Að þessu málþingi standa auk Garðabæjar og Hafnarfjarðarbæjar, Náttúrufræðistofnun Íslands og félagið Hraunavinir.
Dagskráin verður þannig:
- Búrfellshraun og eldstöðvakerfi Krýsuvíkur: Kristján Jónasson jarðfræðingur
- Guðmundur Kjartansson og störf hans: Lovísa Ásbjörnsdóttir jarðfræðingur
- Faðir minn, Guðmundur Kjartansson: Solveig Guðmundsdóttir
- Örnefni í hraunalandslagi (Búrfellshraun) – hvaða máli skipta þau?: Reynir Ingibjartsson og Jónatan Garðarsson
- Fornminjar í Búrfellshrauni: Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur
- Verndun Búrfellshrauns: Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar
- Ógnir við hraun: Sigmundur Einarsson jarðfræðingur
Málþingsstjóri: Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi ráðherra.
Aðgangur verður ókeypis en æskilegt að skrá sig hjá Náttúrufræðistofnun: sími 590 0500, netfang: ni@ni.is.
Ljósmynd: Óbrinnishólar, af hraunavinir.net.
details
Eydís Franzdóttir
15. May 2013 08:18
Origin: Hraunavinir / Náttúrufræðistofnun Íslands - NÍ - Garðabæ
Samtök grænmetisæta stofnuð
Samtök grænmetisæta á Íslandi voru stofnuð laugardaginn 4. maí í sal Lifandi markaðar Borgartúni.
Um 70 manns sátu fundinn þar sem gengið var frá samþykktum félagsins, stjórn kosin og starfshópar myndaðir. Samþykkt var að tilgangur samtakanna yrði að stuðla að jákvæðri ímynd og fjölgun grænmetisæta, standa vörð um hagmuni þeirra og vinna að því að fjölga valkostum nauðsynja- og neysluvara án dýraafurða. Einnig var kynnt merki samtakanna sem hannað var af Ragnari Frey.
Tilgangi sínum hyggjast samtökin ná með eftirfarandi hætti:
- Standa fyrir fjölbreyttum viðburðum fyrir grænmetisætur, áhugamenn og velunnara, og stuðla að auknum tengslum og kynnum grænmetisæta.
- Standa fyrir virkri fræðslu og upplýsingagjöf til grænmetisæta og annarra með uppbyggingu vefsíðu, opnum viðburðum, útgáfu fræðsluefnis, fyrirlestrum, kynningu í fjölmiðlum, í skólum, á vinnustöðum o.fl.
- Gefa út hnitmiðað fræðsluefni fyrir matvælaframleiðendur, veitingastaði, matreiðslumenn o.fl. um þjónustu við grænmetisætur, og koma því markvisst á framfæri.
- Stunda virka hagsmunagæslu og aðhald t.d. með hvatningu eða jafnvel þrýstingi á framleiðendur, innflytjendur og verslanir, með fyrirspurnum og greinargerðum til hins opinbera, með álitsgjöf varðandi lagafrumvörp og reglugerðir, með fréttatilkynningum til fjölmiðla um brýn hagsmunamál o.m.fl.
- Finna leiðir til að aðstoða fólk við að gerast grænmetisætur, t.d. með því að búa til aðlögunarkerfi eða leiðbeiningar um fyrstu skrefin, með hvatningarfundum, fræðsluefni og öðrum leiðum.
- Leita leiða til að bæta og auka grænmetis- og veganmerkingar neysluvara og matseðla og athuga jafnframt forsendur þess að gerast vottunaraðili á Ísland.
- Félagið veiti athygli á því og viðurkenni það sem vel er gert sem samræmist markmiðum félagsins.
Kjörinn formaður samtakanna er Sigvaldi Ástríðarson en ásamt honum sitja í stjórn Sigurbaldur P. Frímannsson, gjaldkeri, Elísa Guðjónsdóttir, ritari, Helga María Ragnarsdóttir meðstjórnandi og formaður hagsmunagæsluhóps og Sæunn I. Marinósdóttir meðstjórnandi og formaður fræðslu- og fjölmiðlahóps.
Samtökin má finna á Facebook: https://www.facebook.com/Graenmetisaetur og þar verður tilkynnt um nýja vefsíðu samtakanna á næstu vikum.
Nánari upplýsingar veitir Sigvaldi Ástríðarson í síma 696-5444 eða á valli@graenmetisaetur.org
details
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir
11. May 2013 18:58
Origin: Samtök grænmetisæta á Íslandi
Fræðslu- og gönguferðir í Krýsuvík á Uppstigningardag
Næstkomandi fimmtudag, Uppstigningardag, mun náttúruverndarhreyfingin bjóða alla náttúruunnendur velkomna til Krýsuvíkur til viðburðar undir heitinu Verjum Krýsuvík!
Boðið verður upp á nokkrar léttar og fræðandi gönguferðir um svæðið. Geta þátttakendur valið þá göngu sem þeir vilja eða farið í allar göngurnar sem leiddar verða af staðkunnugum jarðfræðingum. Leitast verður við að svara spurningum um náttúru og sögu þess merkilega náttúru- og útivistarsvæðis sem Krýsuvík er. Af hverju er Grænavatn svona grænt? Af hverju eru hverasvæðin svona litrík? Hvað er svona merkilegt við jarðfræði Krýsuvíkur? Hvaða áhrif munu fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir hafa á svæðið?
Boðið verður upp á ókeypis sætaferðir með Kynnisferðum frá BSÍ kl. 10:15. Rútan mun einnig stoppa við N1 í Hafnarfirði kl. 10:30. Þeir sem ætla á einkabílum eru hvattir til að sameinast í bíla við N1 í Hafnarfirði kl. 10:30.
Dagskrá hefst í Seltúni kl. 11:00.
1. Hverasvæðið í Seltúni kl. 11:00
Gengið um litríkt hverasvæðið og fyrirbrigði þess skoðuð í fylgd jarðfræðinga.
Seltún hafnaði í orkunýtingarflokki í rammaáætlun.
2. Sveifluháls – Pínir kl. 11:30
Gengið verður upp að hvernum Píni ofan við Seltún. Örlítið ofar á hálsinum fæst
gott útsýni yfir fyrirhugað virkjanasvæði og næsta umhverfi.
3. Grænavatn – Austurengjahver kl. 12:15 – 13:30.
Frá hinu iðagræna Grænavatni og upp í Austurengjar er stutt en gefandi ganga. Austurengjahver var settur í biðflokk í rammaáætlun.
Að viðburðinum standa Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands, Náttúruvaktin, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Framtíðarlandið, Fuglavernd og fleiri náttúruverndarsamtök.
Ljósmynd: Við Kleifarvatn, Guðrún A. Tryggvadóttir.
details
Framtíðarlandið
8. May 2013 12:55
Origin: Framtíðarlandið / Fuglavernd - Fuglaverndarfélag Íslands / Landvernd / Náttúruvaktin / Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands / NSÍ - Náttúruverndarsamtök Íslands

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | may |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | may |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | may |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | may |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
tuesday 21. may
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Rót
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013
13:15 - 16:15
Málþing um Búrfellshraun
See article: Búrfellshraun - Málþing til minningar um Guðmund Kjartansson jarðfræðing
17:30
Undirbúningsfundur fyrir gönguna gegn Monsanto
See article: Göngum gegn Monsanto

Recent comments
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:
+ More comments


Náttúran.is á Facebook.




