Frá og með febrúar á næsta ári mun H&M verslunarkeðjan taka við notuðum og gölluðum fötum til endurvinnslu í öllum þeim 48 löndum þar sem keðjan er starfandi, óháð vörumerkjum og því hvar fötin voru upphafleg keypt. Þessi nýbreytni er liður í viðleitni fyrirtækisins til að stuðla að sjálfbærri þróun. Þeir sem skila inn fötum fá afsláttarmiða frá H&M í staðinn.
(Sjá frétt á heimasíðu Svenska dagbladet í gær).

Birt:
7. desember 2012
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „H&M tekur við notuðum fötum“, Náttúran.is: 7. desember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/12/09/hm-tekur-vid-notudum-fotum/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. desember 2012
breytt: 10. desember 2012

Skilaboð: