News

Óskað eftir tilnefningum til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru

Umhverfisráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tveggja verðlauna, sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, sem haldinn verður hátíðlegur öðru sinni þann 16. september næstkomandi. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins og hins vegar náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins voru veitt í fyrsta skipti á Degi íslenskrar náttúru í fyrra. Verðlaununum er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á einstakri náttúru landsins eða benda á þær ógnir sem steðja að íslenskri náttúru og mikilvægi þess að varðveita hana og vernda til framtíðar.

Verðlaunin verða veitt fjölmiðli, ritstjórn, blaða- eða fréttamanni, dagskrárgerðarfólki eða ljósmyndara sem hafa skarað fram úr með umfjöllun sinni um íslenska náttúru. Til greina koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um íslenska náttúru.

Fyrsti handhafi Fjölmiðlaverðalaunanna var Ragnar Axelsson, ljósmyndari á Morgunblaðinu, sem hlaut þau fyrir að beina sjónum að náttúruvernd og samspili manns og náttúru í verkum sínum.

Þá verður náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Sigríður Tómasdóttir, fæddist 24. febrúar 1871 í Brattholti. Sigríður var baráttukona og  náttúruverndarsinni sem lagði mikið á sig í baráttu gegn virkjun Gullfoss. Hún var því brautryðjandi á sviði náttúruverndarmála hér á landi og hefur æ síðan verið íslenskum náttúruverndarsinnum fyrirmynd.

Viðurkenningin var í fyrsta sinn veitt árið 2010. Það ár og árið á eftir var hún afhent á Degi umhverfisins en frá og með árinu í ár verður afhending viðurkenningarinnar á Degi íslenskrar náttúru.

Fyrri viðurkenningarhafar eru Sigrún Helgadóttir sem hlaut viðurkenninguna árið 2010 fyrir framlag sitt til fræðslu barna og ungmenna, og Þóra Ellen Þórhallsdóttir sem hlaut viðurkenninguna árið 2011 fyrir vísindastörf sín í þágu íslenskrar náttúru.

Óskað er eftir tilnefningum til beggja viðurkenninga fyrir 15. ágúst 2012. Tilnefningar með rökstuðningi sendist Umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, eða á netfangið postur@umhverfisraduneyti.is




Related events


Síðasti dagur til að tilnefna til fjölmiðlaverðlauna og náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti
14. aug. 2012 23:59


Share with friends

0 Comments made

Comment

Name:

Comments:


Please solve the mathematical question above and enter the result in the field.
Made to guaranty human origin of the words.

Everyone is free to write under her/his own name or use an alias if they choose. The idea is to offer an independent podium for discussion on sustainable development and to increase environmental awareness and help environmental goals be established and met in the business environment as well as in the common household. Nature.is reserves the right to delete entered comments or cut content. IP-adresses are kept for reference.
Categories:

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Products
  • Departments
  • Cart
  • Prod.Search
  • Guidelines
  • Discl.
Indicator

Related articles:

Institutions: Administration - Environment and Nature [178]

Institutions: Environment [130]

Nature Conservation Prize: Nature Conservation Prize Sigríður from Brattholt [7]

The Community: Ecological [1269]

Environmental awards: Media Prize of the Ministry for the Environment [9]

Green Pages:

Administration - Environment and Nature [14]

Environment [15]

Nature Conservation Prize Sigríður from Brattholt [2]

Ecological [36]

Media Prize of the Ministry for the Environment [1]

Recent comments

Spergilkál
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Grænkál og hvítkál
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Spergilkál
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Grænkál og hvítkál
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.