News
Græn stóriðja við Hellisheiðarvirkjun
Orkuveita Reykjavíkur og Geogreenhouse ehf. hafa komist að samkomulagi sem felur í sér að byggt verði upp stórt ylræktarver á svæði sem skipulagt hefur verið fyrir slíka starfsemi vestan Hellisheiðarvirkjunar. Fyrirhugað er að framleiða þar tómata í gróðurhúsum og flytja á erlenda markaði. OR mun selja til starfseminnar rafmagn til lýsingar, heitt vatn til upphitunar og kalt vatn til vökvunar. Framleiðsla á þessum afurðum er þegar fyrir hendi í rekstri Hellisheiðarvirkjunar. Samningur þess efnis var undirritaður í dag.
Uppbyggingin er áformuð í þremur áföngum á næstu árum. Samningurinn, sem lagður var fyrir stjórn OR í dag, nær til fyrsta áfangans. Áætlað að hann skapi um 50 manns störf og verði tekinn í notkun haustið 2012. Hann er fjórðungur af áformaðri endanlegri stærð versins. Annar áfanginn, sem er jafnstór, á að vera tilbúinn haustið 2014 en sá síðasti, sem er jafnstór hinum tveimur til samans, er enn ótímasettur. Fyrsti áfanginn, sem felur í sér byggingu 50.000 fermetra ylræktarvers, krefst um 9 megavatta rafafls.
Geogreenhouse ehf. er fyrirtæki sem stofnað var sérstaklega um þetta uppbyggingarverkefni. Stærsti eigandi þess er Sölufélag garðyrkjumanna og aðrir stórir eigendur eru fjárfestingarfélagið Investum Holding og Nýsköpunarsjóður. Áætlað er að framleiða árlega nokkur þúsund tonn af tómötum aðallega fyrir Bretlandsmarkað. Fyrirtækið mun sjálft greiða fyrir tengingu við vatns- og hitaveitu auk rafmagnsins. Flutningaleiðir eru raunar stuttar þar sem verið mun verða rúman kílómetra frá stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar og liggur lóð þess rétt við kaldavatnsæðina til virkjunarinnar og heitavatnsæðina frá henni.
Samið er um orku- og vatnsverð í erlendri mynt og er það verðtryggt. Samningurinn er til 20 ára. Fjárfesting OR vegna samningsins er hverfandi og því eru áhrif teknanna á arðsemi Hellisheiðarvirkjunar bein. Væri byggð ný virkjun vegna verkefnisins, með um þriðjungs eiginfjárframlagi, næmi arðsemi samningsins um 13% á eigið fé. Miðað við byggingakostnað Hellisheiðarvirkjunar er arðsemin þó meiri.
Á síðustu misserum hefur Sveitarfélagið Ölfus unnið að skipulagi svæðis fyrir iðn- og tæknigarða á flatlendinu vestur af Hellisheiðarvirkjun. Í gildandi aðalskipulagi er nú gert ráð fyrir iðnaði á svæðinu. Við virkjunina eru nú þegar rekin nokkur vísindaverkefni tengd jarðhitanýtingunni. Umfangsmest þeirra er CarbFix verkefnið, sem nýverið hlaut myndarlegan fjárstyrk frá Evrópusambandinu. Ekki er loku fyrir það skotið að í framtíðinni geti ylræktarverið einnig fengið koltvísýring frá Hellisheiðarvirkjun.
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR:
Þessi samningur er mikilvægur og skemmtilegur áfangi á leið til fjölnýtingar háhitasvæða. Gróðurhúsið kaupir rafmagn, heitt vatn og kalt af Orkuveitunni og hefur einnig óskað eftir því að kaupa koltvísýring af okkur þegar við höfum náð tökum á því að vinna hann úr gufunni sem kemur frá Hellisheiðarvirkjun.
Þetta er jafnframt fyrsti stórnotendasamningur Orkuveitunnar þar sem rafmagnið er ekki nýtt til álvinnslu.
Ljósmynd: Hellisheiðarvirkjun, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Til glöggvunar er staðsetning fyrirhugaðs ylræktarvers sýnd á uppdrættinum sem gulir fletir á gráum. Stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar er guli flöturinn neðarlega til hægri á kortinu.
Comments made
- Energy
- Cultivation
Related articles:
Energy: Geothermal heat [38]
Energy: Water [20]
Cultivation: Geothermally heated Greenhouses [1]
Green Pages:
Geothermal heat [4]
Water [7]
Geothermally heated Greenhouses [1]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | may |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | may |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | may |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | may |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
saturday 25. may
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Óhagstætt
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013
06:00 - 23:00
Fatasöfnun Rauða krossins
See article: Fatasöfnunarátak Rauða kross Íslands
11:00 - 13:00
Kynning á ræktun mat- og kryddjurta
See article: Morgunn í matjurtagarði Grasagarðs Reykjavíkur
14:00
Aðalfundur SLN
See article: Aðalfundur Samtaka lífrænna neytenda
17:00
Gengið gegn Monsanto á Íslandi
See article: Göngum gegn Monsanto

Recent comments
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:


Náttúran.is á Facebook.





Fréttablaðiðð - jse - Friday 20. July, 2012 clock 09:33:07
Ár í gróðurhús á Hellsiheiði: Framkvæmdum við gróðurhús á Hellisheiði hefur verið frestað til ársloka en til stóð að þær hæfust í haust. Þetta var ákveðið á hluthafafundi Geogreenhouse síðastliðinn föstudag.
Stefnt er að því að gróðurhúsið verði svo tekið í notkun haustið 2013 að sögn Sigurðar Kiernan, stjórnarformanns Geogreenhouse. Hann segir enn fremur að fyrirtækið eigi í samningaviðræðum við fjárfesta og sér hann fram á að þeim viðræðum ljúki síðar á þessu ári.
Gróðurhúsið verður reist í þremur áföngum en strax í fyrsta áfanga
verður það fimm hektarar sem er meira en allt það svæði sem notað er til tómataræktunar á Íslandi. Árið 2015 verður gróðurhúsið síðan komið í tvöfalda stærð, það er að segja tíu hektara, en svo er óvíst enn hvenær lokaáfanga verður náð en þá verður gróðurhúsið stækkað upp í tuttugu hektara.
Fyrirtækið ræktar þrjár tegundir af tómötum og ef allt gróðurhúsið yrði notað undir þá tegund sem mest gefur af sér væri hægt að rækta um 4.000 tonn á ári strax eftir fyrsta áfanga, að sögn Sigurðar. Eftir að lokaáfanga er náð verður hægt að
rækta 18.000 tonn, en hann segir að ekki sé miðað við svo mikla nýtingu. Tómatarnir verða allir fluttir út á Bretlandsmarkað.