Ráðstefnan er samstarfsverkefni Norrænu ráðherranefndarinnar, WorldWatch Institute í Evrópu, Norræna hússins og Reykjavíkurborgar. Ráðstefnan mun taka fyrir bæði almenna þróun og dæmi um grænar lausnir í arkitektúr, byggingariðnaði, skipulags- og samgöngumálum í Evrópu, á Norðurlöndunum og á Íslandi.

Dagskrá: 23. maí 2016 / 14:00-16:45  

14.00 – 14.05 Opnunarávarp
14.05 -14.15 Getur borg verið sjálfbær? State of the World Report 2016, Stephanie Loveless, WorldWatch Institute Europe
14.15 – 14.30 Í átt að minni kolefnanotkun í Evrópusambandinu, Peter Vangsbo, viðskiptaþróun fyrir Climate-KIC Nordic
14.30 – 14.45 Hvernig hönnum við sjálfbærari borg? Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar

14.45 – 15.00 Getur fyrirtækjarekstur verið sjálfbær? Ketill B. Magnússon, framkvæmdastjóri FESTU
15.00 – 15.15 Pallborðsumræður undir stjórn Auðar H. Ingólfsdóttur, lektors við Háskólann á Bifröst

15.15 – 15.30 Kaffihlé

15.30 – 15.45 Þátttökulýðræði í skipulagsmálum: dæmi frá Norðurlöndum, Liisa Perjo, Sérfræðingur hjá Nordregio
15.45 – 16.00 Nordic Built samkeppnin í Kópavogi 2016, Árni Geirsson ráðgjafi hjá Alta
16.00 – 16.15 Nýjungar í skipulagsmálum í Reykjavík, Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar
16.15 – 16.30 Pallborðsumræður undir stjórn Kristínar Lindu Árnadóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar
16.30 – 16.45 Samantekt og lokaorð

Dagskráin er á ensku.

Á hverju ári gefa alþjóðlegu umhverfissamtökin WorldWatch Institute (http://www.worldwatch.org/) út bók (State of the World Report) þar sem farið er yfir þau umhverfismál sem efst eru á baugi í heiminum hverju sinni. Til að hvetja til umræðu og miðlunar nýrra lausna í tengslum við þema ársins 2016 – getur borg verið sjálfbær? – hratt WorldWatch Instutute af stað norrænni ráðstefnuröð sem fram fer í höfuðborgum Norðurlandanna nú í maí. Fjórða og síðasta ráðstefnan fer fram í Norræna húsinu í Reykjavík 23. maí nk. kl. 14:00-16:45.

State of the World Report 2016
Í bókinni kynnast lesendur mikilvægustu áskorunum sem borgir og bæjarfélög um allan heim eiga við að etja í umhverfismálum og fjölda dæma um frábærar lausnir til að stuðla að sjálfbærari samfélögum.

Hér má finna nánari upplýsingar um bókina: https://canacitybesustainable.org/home-page/about/book/


Birt:
18. maí 2016
Höfundur:
Norræna húsið
Tilvitnun:
Norræna húsið „Geta borgir verið sjálfbærar?“, Náttúran.is: 18. maí 2016 URL: http://nature.is/d/2016/05/18/geta-borgir-verid-sjalfbaerar/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: