
Má bjóða þér að ganga í bæinn á Menningarnótt? Kíkja í vöfflur í Þingholtunum, læra tangó á Hótel Borg, fara á tónleika í Hörpu, þiggja heimboð í Ráðhúsinu, dansa salsa á Lækjartorgi, fá faðmlag á Laugaveginum, fara í menningargöngu um Skólavörðuholtið, taka þátt í götu- og garðveislum eða litlum listahátíðum sem leynast víðsvegar í miðborginni? Kynntu þér dagskrána hér á ...


Íbúasamtök Laugardals standa fyrir árvissum útimarkaði laugardaginn 18. ágúst frá kl. 12:00-17:00. Í ár verður markaðurinn haldinn á „Laugatorgi“ á horni Laugalækjar og Hrísateigs þar sem boðið verður upp á sannkallaða götumarkaðsstemningu.