Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur staðfest stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Vatnajökulsþjóðgarður er umfangsmesta verkefni á sviði náttúruverndar sem ráðist hefur verið í hérlendis en hann nær yfir 13% landsins og er stærsti þjóðgarður Evrópu. Stjórnunar- og verndaráætlunin felur í sér stefnu, markmið og framtíðarsýn þjóðgarðsins hvað varðar náttúruvernd, útivist og byggðarþróun. Þar er kveðið á um skipulag samganga í þjóðgarðinum, þjónustu ...
Þann 2. mars mun Sól á Suðurlandi boða til samstöðufundar gegn virkjunum í neðri hluta Þjórsá. Lagðar verða fram kröfur um aðvirkjanaáform í neðri hluta Þjórsá verði slegin af og sátt sköpuð í samfélögum sem hafa um árabil verið klofin vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda.
Auk talsmanna Sólar á Suðurlandi munu uppistandsstúlkurnar Saga Garðarsdóttir og Ugla Egilsdóttir stíga á stokk, hljómsveitin Mukkaló ...
Umhverfismál er málaflokkur sem okkur öllum kemur við. Mikið hefur verið rætt um díoxin-mengunina bæði frá sorpbrennslustöðinni Funa og frá öðrum sorpbrennslustöðvum undanfarið og vonandi er sú umræða ekki búin. Hér hefur nefnilega enn eitt umhverfisslysið átt sér stað, og það með vitund mjög margra aðila, aðallega sveitarstjórnarmanna og heilbrigðisfulltrúum sveitarfélaga. Það hlýtur að vera mjög alvarlegt mál þegar fólk ...
Jógastöðin Selfossi stendur fyrir námskeiðinu „Lát mat þinn vera meðal þitt“ um mataræði og lífstíl en námskeiðið hefst þ. 10. mars og stendur í tvö kvöld; fimmtudagana 10. og 17. mars frá kl. 19:30-21:30
Farið verður m.a. yfir:
- Hverju hægt er að breyta til hins betra
- Hvernig minnka má sykurþörf
- Hvernig þú heldur orkunni út daginn
Kennari ...
Stofnuð hafa verið samtökin Grænn apríl sem hafa það að markmiði að hvetja ríkisstjórnina, sveitarstjórnir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að vinna saman að því að gera apríl að „grænum mánuði“.
Sá mánuður var meðal annars valinn vegna þess að Dagur jarðar er haldinn hátíðlegur víða um heim 22. apríl og hinn íslenski Dagur umhverfisins er 25. apríl. Jafnframt er ...
Í dag verður undirritað samkomulag milli Garðyrkjufélags Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands um prófun á ræktun á norðlægum yrkjum af ávaxtatrjám við íslenskar aðstæður með það fyrir augum að í framtíðinni verði hægt að leiðbeina um val og ræktunaraðferðir.
„Verkefnið fór af stað í kjölfar fræðsluerinda sem Jón Þ. Guðmundsson, garðyrkjufræðingur hefur flutt að undanförnu á vegum Garðyrkjufélagsins víða um land ...
Mengun í hvölum og örnum.- Hvað með mengun í þorskinum?
- Er mengun í blóði íslenskra kvenna?
- Fær maður nokkuð í magann af því að baða sig í Nauthólsvík?
- Er sjórinn við landið að verða hættulega súr?
- Er rigningin góð?
- Er Ísland hreinasta land í heimi?
Þessum spurningum og fleiri verður reynt að svara á ráðstefnu um mengun á Ísland.
Ráðstefna ...
Plöntusjúkdómafræðingurinn Don Huber sem starfaði við Prude háskóla í Bandaríkjunum hefur ritað Tom Vilsack lanbúnaðarráðherra Bandaríkjanna bréf þar sam hann varar við hættu sem stafar frá Roundup, illgresiseyði frá Monsanto. Hann telur að örsmáar örverur sem fundust nýlega séu ástæða sjúkdóma í plöntum, dýrum og að öllum líkindum fólki megi rekja til efna í Roundup. Þessar örverur séu mjög útbreiddar ...
Gestir vefsins náttúran.is hafa í morgun og fram eftir degi orðið varir við bilun. Líklega má rekja hana til bilunar eða galla í hugbúnaði eða diskastæðu. Náttúran.is biðst velvirðingar á þessum óþægindum en vefurinn var fluttur á aðra vél til öryggis.
Kristbjörg Kristmundsdóttir jógakennari með meiru er að fara af stað með jógakennaranám að Sólheimum í Grímsnesi sem hefst þ. 18. mars nk. og stendur í hálfan mánuð.
Kristbjörg býður áhugasömum að koma í opið hús á matsölustaðinn Gló í Listhúsinu í Laugardal, nk. sunnudag, þ. 27. febrúar frá kl. 14:00 - 15:00. Þar mun hún fjalla um fyrirkomulag jógakennaranámsins ...
Opinn málfundur um íslenskar snyrtivörur og fæðubótaefni verður haldinn miðvikudaginn 2. mars frá kl. 09:15 – 12:15 í húsakynnum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Keldnaholti (austurhús).
Dagskrá málfundar
- Setning - Magnús Orri Scram alþingismaður
- Virkni íslenskra jurta og þörunga - Sesselía Ómarsdóttir lyfjafræðingur
- Heilsuvörur - fæðubótaefni og snyrtivörur: Staðan á markaðnum - Örn Svavarsson fjárfestir
- Að markaðssetja nýtt vörumerki - Ása Brynjólfsdóttir lyfjafræðingur, Bláa Lónið
- Fæðubótarefni ...
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað Björn Karlsson forstjóra Mannvirkjastofnunar frá og með 1. mars til fimm ára. Björn starfaði sem forstjóri Brunamálastofnunar árin 2001 til 2010 og var settur forstjóri Mannvirkjastofnunar frá 1. janúar 2011.
Sex sóttu um starf forstjóra Mannvirkjastofnunar en umsóknarfrestur rann út 21. janúar síðastliðinn. Umhverfisráðuneytið skipaði þriggja manna nefnd til að fara yfir og leggja mat ...
Þann 7. mars næstkomandi verður haldinn stofnfundur Samtaka lífrænna neytenda. Dagskrá fundarins og markmið samtakanna eins og þau koma fram á Facebook síðu undibúningshópsins
19:30 - Inngangsorð: Oddný Anna Björnsdóttir
19:40 - Kjör fundarstjóra og ritara
19:45 - Fundurinn formlega settur
19:50 - Erindi um mat og heilsu í iðnvæddum heimi: Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ ...
Sem betur fer er umræða um erfðabreytta ræktun lífvera farin af stað í fjölmiðlum í kjölfar þingsályktunartillögu um að banna útiræktun erfðabreyttra lífvera og síðan birtingu athugasemdabréfs nokkurra sérfræðinga á vef Háskóla Íslands. Þriðjudaginn 15. febrúar var einn sérfræðinganna Eiríkur Steingrímsson gestur Kastljóssins. Margt kom þar fram og hefur verið kallað eftir meiri upplýsingum í kjölfarið.
Fljótlega í málflutningi Eiríks ...
Nú um helgina verður haldin Heilsuveislu í Súlnasal Hótel Sögu. Veislan er í formi fyrirlestra, kynninga, sýnikennslu og skemmtiatriða. Gestir fá heilsumat og ógrynni af upplýsingum og uppskriftum. Einnig verður heilsumarkaðstorg þar sem fyrirtæki er starfa innan þessa ramma kynna vörur sínar og þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á llífrænar vörur.

Einar Bergmundur og Guðrún Tryggvadóttir frá Náttúran.is verða ...
Á undanförnum mánuðum hefur hópur fólks á Facebook síðu, sem stofnuð var til að kanna áhuga á því að stofna samtök lífrænna neytenda, farið sívaxandi. Ljóst er að mikill áhugi er á að stofna formleg samtök eða hreyfingu sem að vinna mun að því að efla allt sem viðkemur lífrænni ræktun, framleiðslu og neyslu út frá sjónarhóli neytandans.
Í síðustu ...
Þjónustustöð og verkstæði N1 við Bíldshöfða fékk í dag afhenda staðfestingu á vottun skv. ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðlinum. N1 Bíldshöfða er því fyrsta fjölorkustöðin á Íslandi sem fær staðfestingu á vottun samkvæmt ISO 14001. Stöðin selur bæði metan- og bíódísel sem og hefðbundið eldsneyti en bifvélaverkstæði N1 ber einnig vottunina. N1 áformar að fá ISO 14001 vottun á þrjár stöðvar til ...
Umhverfisráðuneytið og sveitarstjórn Skaftárhrepps hafa náð samkomulagi um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs innan lögsögu sveitarfélagsins. Samkvæmt samkomulaginu mun verða unnið að friðlýsingu á Langasjó, hluta Eldgjár og nágrennis eins og lagt er til í Náttúruverndaráætlun 2009-2013. Innan þessa svæðis eru náttúruminjar sem taldar eru hafa mikið gildi á heimsvísu, auk hins háa útivistar, fræðslu og vísindagildis svæðisins.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir samkomulagið ...
Neytendasamtökin hafa fjórum sinnum lagt fram tillögur til stjórnvalda um að láta taka norræna hollustumerkið Skráargatið upp hér á landi. Fimm þingmenn lögðu fram þingsályktunartillögu um málið í vikunni og nú íhugar Matvælastofnun (MAST) að taka merkið upp.
Skráargatið er hollustuvottun á matvörur sem gefur til kynna að viðkomandi vara sé sú hollasta í sínum flokki. Til að fá Skráargatið ...
Matvælastofnun heldur fræðslufund um erfðabreytt matvæli þriðjudaginn 22. febrúar kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um reglugerð um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og fóðurs. Fjallað verður um hvaða matvæli og fóður falla undir reglugerðina, hverjar eru algengustu erfðabreyttu nytjaplönturnar og tekin verða dæmi um erfðabreytt matvæli unnin úr þeim.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í ...
Dómurinn sem féll í héraðsdómi í morgun er málamyndadómur. Hann er í engu samræmi við þær alvarlegu ákærur sem við höfum setið undir síðasta árið. Hann er nógu mildur til að sefa mögulega reiði fólks en þó það harður að hann fullnægir refsiþörf ríkisvaldsins, breiðir yfir skömm þess og ýtir stoðum undir áframhaldandi ofsóknir í garð pólitískra andstæðinga þess.
Við ...
Bílaumferð í Reykjavík stendur nánast í stað milli áranna 2009 og 2010. Hún dregst saman á tilteknum stöðum en eykst annars staðar. Niðurstaðan í heild er tæplega 1% aukning. Hjólreiðar hafa einnig aukist í borginni.
Árlega er umferðarmagn kannað í Reykjavík með því að telja umferð á völdum stöðum. Umferð er skráð handvirkt í 12 klst. á hverjum stað, frá ...
Þann 9. febrúar sl. úthlutaði Landsvirkjun 56 milljónum króna í styrki til framhaldsnáms og rannsóknarverkefna á sviði umhverfis- og orkurannsókna. Þetta er í fjórða sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en markmið hans er að efla rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála.
Fjórir doktorsnemar hlutu styrki að upphæð ein milljón króna og átján meistaranemar hlutu styrki að upphæð 500 þúsund ...
Blásið er til Heilsuveislu í Súlnasal Hótel Sögu dagana, 19. - 20. febrúar 2011. Veislan er í formi fyrirlestra, kynninga, sýnikennslu og skemmtiatriða. Gestir fá heilsumat og ógrynni af upplýsingum og uppskriftum. Einnig verður heilsumarkaðstorg þar sem fyrirtæki er starfa innan þessa ramma kynna vörur sínar og þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á llífrænar vörur.
Hér verða meistarakokkar á borð við ...
Í einu sýni af Reykás niðursneiddum graflaxi frá Eðalfiski ehf. í Borgarnesi, sem matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur tók, greindist bakterían Listeria monocytogenes. Eðalfiskur ehf. hefur ákveðið að innkalla frá neytendum eftirfarandi vöru:
Ástæða innköllunar: Mengun af völdum Listeria monocytogenes.
Vöruheiti: Reykás graflax.
Afurðir: Flök, bitar og sneiðar.
Umbúðir: Lofttæmdar.
Framleiðandi: Eðalfiskur ehf., Sólbakka 4, Borgarnesi.
Geymsluskilyrði: Kælivara.
Best fyrir: 6.02 ...

Búsvæði tjarnaklukku á Hálsum við Djúpavog hefur verið friðlýst. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirritaði friðlýsinguna nýverið með samþykki sveitarstjórnar Djúpavogshrepps og landeigenda jarðarinnar Strýtu við Berufjörð. Með friðlýsingunni varð Djúpavogshreppur fyrst íslenskra sveitarfélaga til að samþykkja friðlýsingu svæðis til verndar smádýralífi. Samhliða friðlýsingunni gerði Umhverfisstofnun samning við sveitarfélagið um umsjón með hinu friðlýsta svæði.
Við þetta tilefni hrósaði umhverfisráðherra sveitarstjórn Djúpavogshrepps ...
Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um ræktun matjurta í eigin garði.
Á námskeiðinu verður sérstaklega skoðað hvernig standa skuli að lífrænni ræktun útimatjurta. Farið verður yfir mikilvægi jarðvegsins í ræktuninni og eins hvernig megi bæta þann jarðveg sem fyrir er. Komið verður inn á staðsetningu matjurtagarðsins á lóðum með tilliti til sólar og skjóls. Farið verður yfir hvers konar umhirðu ...
Um tugur manna vinna að því að dæla svartolíu upp úr sjónum við Örfirisey en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu tókst að hefta útbreiðslu olíunnar með flotgirðingum.
Þá er veður hagstætt en um tíu slökkviliðsmenn eru að störfum ásamt mannskap frá Reykjavíkurhöfn og Olíudreifingu. Togarinn, sem olían lak úr heitir Eldborg og er gerður út frá Litháen, en það var verið ...
Það var ekki einungis Svandís Svavarsdóttir sem sá að Landsvirkjun hygðist múta sveitarstjórn Flóahrepps!
![]()
Varðandi nýlegan úrskurð Hæstaréttar um að umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir hafi brotið lög með því að neita að samþykkja hluta aðalskipulags Flóahrepps á sínum tíma skal hér ryfjað upp hvernig þetta leit út og hvað olli því að jafn mikil andstaða varð við áætlanir um virkjanir við neðri hluta Þjórsár og raun bar vitni.
Í grein sem höfundur skrifaði eftir kynningu ...
Ályktun strætóhóps Samtaka um bíllausan lífsstíl vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á þjónustu Strætó.
Mótmælt er fyrirhugaðri skerðingu á þjónustu Strætó með styttingu aksturstíma á kvöldin og um helgar. Á tímum samdráttar þegar einkabílum fækkar er mikilvægt að bjóða upp á nothæfan valkost í samgöngum með Strætó. Þótt að skerðing þjónustunnar valdi væntanlega minnstum skaða þegar minnst eftirspurn er eftir henni minnkar ...
Umhverfisstofnun barst ábending þess efnis að hafnar væru framkvæmdir innan fólkvangsins í Óslandi í sveitarfélaginu Hornafirði. Sjónarvottur varð vitni að því að vörubíll keyrði þvert í gegnum fólkvanginn og sturtaði fimm bílförmum af grjóti í fjöruna innan friðlýsta svæðisins ásamt því að keyrt hafði verið utan vega á mýrarsvæði þar sem árlega verpir mikill fjöldi fuglategunda.
Umhverfisstofnun hafði umsvifalaust samband ...
Yfirlýsing frá Saving Iceland, skrifuð í kjölfar umfjöllunar breska dagblaðsins The Guardian, sem og annarra fjölmiðla, um breska lögreglunjósnarann Mark Kennedy og tengsl hann við íslensku náttúruverndarhreyfinguna.
Í nýlegri greinaröð Guardian og fleiri fjölmiðla um lögreglunjósnarann Mark Kennedy hefur minniháttar hlutverk hans innan íslensku umhverfishreyfingarinnar verið ýkt. Þessar ýkjur hafa jafnvel gengið svo langt að segja að hann hafi verið ...
Í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði sveitarstjóri Flóahrepps að framkvæmdir í sveitarfélaginu hefðu legið í láginni vegna ákvörðunar umhverfisráðherra að staðfesta ekki aðalskipulag sveitarfélagsins á sínum tíma. Sagði sveitarstjórinn að ekki hefði verið hægt að deiliskipuleggja, ekki hægt að byggja við hús, útihús og í raun ekkert hægt að gera. Svona hafi ástandið verið í tvör ár.
Í ákvörðun umhverfisráðherra frá janúar ...
Þann 7. mars næstkomandi verður haldinn stofnfundur Samtaka lífrænna neytenda. Dagskrá fudnarins og markmið samtakanna eins og þau koma fram á Facbook síðu undibúningshópsins
19:30 - Inngangsorð: Oddný Anna Björnsdóttir
19:40 - Kjör fundarstjóra og ritara
19:45 - Fundurinn formlega settur
19:50 - Erindi um mat og heilsu í iðnvæddum heimi: Dr. Kristín Vala
Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ ...
Vetrarhátíð hefur í áratug boðið borgarbúum upp á fjölbreytta menningarviðburði og líflegar uppákomur sem litað hafa skammdegið skærum og skemmtilegum litum.
Í ár verður Vetrarhátíð borin uppi af þremur styrkum stoðum; Safnanótt á föstudagskvöldinu 11. febrúar, Heimsdegi barna á laugardeginum 12. ferbrúar og Kærleikum á sunnudeginum 13. febrúar.
Opnunaratriði Vetrarhátiðar að þessu sinni er sköpunarverk listahópsins Norðurbáls. Saga þjóðar er ...
Kæru félagar.
Félagi okkar í náttúruverndarbaráttunni, Atie Bakker í Skaftholti við Þjórsá er látin. Langt fyrir aldur fram.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Atie stofnaði ásamt fleirum Sól á Suðurlandi til að berjast fyrir verndun Þjórsár. Atie var lífið og sálin í náttúruverndarbaráttunni við Þjórsá. Hún var eins konar framkvæmdastjóri fyrir þann hóp fólks ...
Nú líður að nýju Bláfánatímabili og rennur frestur til að sækja um Bláfánann fyrir árið 2011 út 28. febrúar nk. Sjá hér á Græna Íslandskortinu hverjir eru með Bláfánann og Bláfánaveifu og hvar þeir eru á landinu.Undanfarin ár hefur Landvernd, í samstarfi við hagsmunaaðila og –samtök, unnið að því að innleiða verkefnið á Íslandi. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem ...
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur beint þeirri ósk til sveitarstjórna Skaftárhrepps, Hornafjarðar og Vestmannaeyja að þær skoði alla möguleika til að hætta eða draga verulega úr sorpbrennslu þar til niðurstöður frekari rannsókna liggja fyrir. Bréf þess efnis var sent í dag. Óskin er sett fram í kjölfar mælinga á díoxíni úr búfjárafurðum og fóðri sem tekin voru á Vestfjörðum og í ...
Ferskar kjötvörur hafa fengið tilkynningu frá Sláturhúsi KVH á Hvammstanga um innköllun á nautgripum vegna hugsanlegrar díoxínmengunar í kjöti af þeim. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að gripunum hafi verið slátrað í september 2010 og október 2010 og kjöt af þeim nýtt í framleiðsluvörur Ferskra kjötvara.
„Samkvæmt upplýsingum fyrirtækisins frá Matvælastofnun hefur mengun í þessum gripum ekki verið staðfest," segir ...
Félag umhverfisfræðinga á Íslandi (FUMÍ) hvetur stjórnvöld til að tryggja vandaðri vinnubrögð í umhverfismálum með velferð almennings að leiðarljósi
Félag umhverfisfræðinga á Íslandi harmar niðurstöðu mælinga á díoxínmengun í búvörum á bæ í Skutulsfirði. Niðurstöðurnar afhjúpa nokkur atriði sem þarfnast tafarlausra úrbóta og endurskoðunar í umhverfismálum hér á landi, þar á meðal veikburða lagaumhverfi, slakt eftirlit, óljósa ábyrgð eftirlitsaðila og ...
Starri Heiðmarsson, fléttufræðingur á Náttúrufræðistofnun, flytur erindi sitt Íslenskar fjörufléttur af svertuætt á Hrafnaþingi miðvikudaginn 9. febrúar kl. 15:15.
Flestar fjörufléttur sem vaxa við strendur landsins eru af svertuætt. Þekktust þeirra er fjörusvertan (Hydropunctaria maura) sem myndar oft áberandi svart belti sem nær rétt upp fyrir mörk stórstraumsflóðs. Fleiri svertutegundir vaxa við sjóinn, sumar við svipaðar aðstæður og fjörusvertan ...
Nokkrir félagar í Vistfræðifélagi Íslands hafa á undanförnum dögum haldið uppi vörnum á síðum Fréttablaðsins og Vísi.is fyrir frumvarp til laga um breytingar á náttúruverndalögum, einkum þeim kafla laganna sem lýtur að ágengum framandi lífverum. Er þar m.a. staðhæft að frumvarpið, verði það að lögum, verði mikil réttarbót fyrir verndun lífríkis og að það byggi á „reynslu af ...
Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Alletiders frosnum hindberjum. Um er að ræða varúðarráðstöfun þar sem Aðföngum hefur borist tilkynning frá A Frost A/S í Danmörku um að þar hafi greinst nóróveira í vörunni. Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Tegund innköllunar: Mengun af völdum nóróveira.
Vöruheiti: Alletiders Frugt Hindbær (hindber).
Umbúðir: Poki.
Nettóþyngd ...
Þingsályktunartillaga um að ræktun erfðabreyttra lífvera fari einungis fram inni í lokuðum gróðurhúsum:
Sex þingmenn þriggja stjórn- málaflokka hafa lagt fram þingsályktunar- tillögu þar sem þess er farið á leit að ríkis- stjórnin skipi starfshóp til að vinna að breytingum á lögum og reglugerðum í þeim tilgangi að ...
Umhverfisstofnun tekur við ábendingum um akstur utan vega, bæði atvikum þar sem fólk hefur orðið vitni að akstri en einnig ef fólk telur sig hafa fundið nýleg för í náttúru landsins. Hafir þú ábendingu getur þú komið henni á framfæri við Umhverfisstofnun með tölvupósti á ust@ust.is eða með því að hafa samband í síma 591-2000.
Umhverfisráðuneytið boðar til opins kynningarfundar um helstu niðurstöður nýrrar skýrslu OSPAR um ástand Norð-Austur Atlantshafsins. Flutt verða erindi um ástand hafsins kringum Ísland, mengun, súrnun og fyrirhuguð verndarsvæði OSPAR. Fundurinn verður haldinn í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu, föstudaginn 4. febrúar kl. 12:00-13:00.
Erindi:
- Mengandi efni í hafinu umhverfis Ísland - niðurstöður ástandsskýrslu OSPAR. Helgi Jensson, ráðgjafi hjá Umhverfisstofnun.
- Súrnun hafsins ...

