Eins og nafnið bendir til þá eiga vetrarsólstöður sér andsvar í sumarsólstöðum. Þessar hátiðir hafa reyndar notið minni virðingar í seinni tíð borgarmenningar þar sem tengslin við náttúruna hafa minnkað. En þeir sem lifa í tenglsum við náttúruna eru mjög meðvitaðir um þessa póla á hringferli ársins. Við hér á Íslandi erum líka nákomin þeim þar sem þeir tákna hámark ...
Svansmekta prentsmiðjan GuðjónÓ fannst við hæfi að bjóða upp á umhverfisvænni jólapappír. Pappírinn er prentaður báðu megin. Á annarri hliðinni skoppar jólakötturinn um örkina og vitnað er í vísur Jóhannesar úr Kötlum um Jólaköttinn. Hin hliðin skartar litríkum teikningum af fatnaði og minnir á að sá fer í jólaköttinn sem ekki fær nýja flík!
Jólapappírinn er gerður í samstarfi við ...

Á áramótum er oft staldrað við, litið um öxl og fram á veg. Á þessum áramótum er full ástæða til að skoða baráttu umhverfis- og náttúrverndar og þann árangur sem náðst hefur. Sem er nokkur. Enn er þó langt í land með að ásættanleg niðurstaða fáist og líklega verður aldrei hægt að lýsa fullnaðarsigri þar sem ný ofnýting, eyðilegging og ...
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands fagna nýlegri ákvörðun Grindavíkurbæjar um stofnun jarðminjagarðs (Geopark) á Reykjanesi. Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa nú ákveðið að ganga til samstarfs um stofnun slíks garðs. Er það mikið fagnaðarefni þar sem slík ráðstöfun er vel til þess fallin að auka almenna vitund um mikilvægi náttúruverndar á svæðinu. Huga þarf vandlega að þeim málaflokki, t.d. með tilliti til virkjana ...
Nú fara sjálfboðaliðar og sveitarfélög um land allt að huga að áramótabrennum.
Hér á árum áður var allt týnt til og brennur jafnvel notaðar til að losa sig við allskonar hluti, sem fólki fannst hafa lokið nytjahlutverki sínu, algengt var t.d. að losa sig við báta af öllum stærðum á áramótabrennuna, heilu bílafarmar af dekkjum og úrgangsolía þótti hentugur ...
Greinargerð vegna fyrirhugaðrar ræktunar erfðabreyttra lífvera að Reykjum í Ölfusi, sbr. starfsleyfi Umhverfisstofnunar til handa Orf líftækni hf., fyrir starfsemi með erfðabreyttar lífverur í tilraunagróðurhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Hópur fólks, félaga og stofnana*, hefur skoðað hvaða áhrif leyfisveiting, fyrir ræktun erfðabreyttra lífvera í tilraunagróðurhúsum LBHÍ að Reykjum í Ölfusi, gæti haft í för með sér. Hópurinn ...
Náttúran.is óskar öllum lesendum sínum, nær og fjær, gleðiegrar og friðsællar jólahátiðar.

Maðurinn er jarðfræðiafl og hreyfir árlega yfir 10 sinnum meira af efni en öll náttúruöfl. Sjötíu prósent þessa er vegna „hefðbundins“ landbúnaðar sem veldur jarðvegsrýrnun og rofi vegna vélvæðingar, eyðingu skjólbelta, vatnsrofs og ofbeitar. Lífrænn landbúnaður hins vegar, vinnur með náttúrunni, bindur kolefni, stuðlar að frekari frjósemi jarðvegsins um leið og stutt er að viðhaldi líffræðilegs fjölbreytileika.
Gefnar hafa verið ...
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu voru veitt í 17. sinn í fyrradag og komu þau að þessu sinni í hlut Hótel Eldhesta í Ölfusi fyrir markvissa umhverfisstefnu og sjálfbæran rekstur.
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt frá árinu 1995 til ferðaþjónustufyrirtækja eða einstaklinga í ferðaþjónustu sem þótt hafa skara framúr á sviði umhverfismála. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning og áminning til þeirra sem stunda ...
IKEA í Bretlandi hefur keypt 12MW vindorkubú og hefur í hyggju að setja upp 39 þúsund sólarrafhlöður á verslunum sínum og stefnir að því að nota 100% endurnýjanlega orku, úr eigin framleiðslu. Sænska húsbúnaðarrisakeðjan í Bandaríkjunum hefur nýlega aukið við sólarrafhlöður sínar í Kaliforníu og einnig á austurströndinni, og hefur gefið yfirlýsingar um, skv. Market Watch, að sólarrafhlöður muni vera ...
70 jólatré fylla nú Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur en Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður hefur haft umsjón með verkefninu. Í jólaskóginum er handverk frá hinum ýmsu hópum fatlaðra nemanda og umhverfisvænt jólaskraut m.a. frá nemendum textildeildar Myndlistaskóla Reykjavíkur. Jólaskraut úr ruslu, þ.e. endurvinnsluskraut, handprjónaðir jólasveinar og snjókarlar, jólatré úr eggjabökkum, og miklu meira.
Sjón er sögu ríkari!
Ljósmynd af vef Reykjavíkurborgar.
Erfðabreytt matvæli
Í grein sinni í Fbl 1. des. s.l. heldur Jón Hallsson áfram umræðu okkar um erfðabreytt matvæli og reynir að kasta rýrð á rannsókn franska vísindamannsins G.E. Seralini o.fl. frá 2009 sem ég vísaði til í grein 23. nóv. Niðurstaða Seralini var að gögn sem líftæknirisinn Monsanto afhenti ESB í því skyni að afla ræktunarleyfis ...
- Nýtt lagalega bindandi samkomulag um losun með þátttöku allra náist 2015
- Gengið verður frá 2. skuldbindingartímabili Kýótó en með takmarkaðri þátttöku
- Ísland tekur á sig sambærilegar skuldbindingar og önnur Evrópuríki
- Tillaga Íslands um endurheimt votlendis til að draga úr losun samþykkt
Samkomulag náðist aðfararnótt sunnudags á loftslagsráðstefnunni í Durban í Suður-Afríku um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Meginþættirnir ...
Tæplega 200 starfsmenn Landsbankans hafa nú undirritað samgöngusamning bankans frá því hann var samþykktur í júní. Þeir starfsmenn sem undirrita samninginn skuldbinda sig til að ferðast með strætó eða hjólandi til og frá vinnu og í vinnutengdum erindum ef möguleiki er á. Á móti greiðir bankinn útlagðan kostnað, að hámarki 40.000 krónur á ári, auk þess að greiða leigubílakostnað ...
Skógræktarfélög víða um land munu selja jólatré fyrir jólin í ár, eins og undanfarin ár. Það er öllum í hag að velja ferskt íslenskt jólatré af skógræktarfélögunum og styrkja með því skógræktarstarfið í landinu, en fyrir hvert selt jólatré geta skógræktarfélögin gróðursett 30-40 ný tré.
Núna um helgina verða eftirtalin skógræktarfélög með jólatrjáasölu:
- Skógræktarfélag Austurlands, Eyjólfsstaðaskógi, báða dagana kl. 12-16 ...
Á sýningu Norrænu ráðherranefndarinnar á COP17 loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Durban er vakin athygli á 14 bestu staðbundnu lausnunum á Norðurlöndum á sviði endurnýjanlegrar orku og loftslagsumbóta en 14 umhverfislausnir voru tilnefndar í samkeppni um norrænt orkusveitarfélag 2011 sem Norræna ráðherranefndin stóð fyrir með þátttöku fyrirtækja, einstaklinga, sveitarstjórna og svæða í hvetjandi aðgerðum til að stuðla að vistvænum breytingum.
Danska ...
Áhugavert myndband um notkun jarðefnaeldsneytis í heiminum og þann rússíbana sem sú þróun hefur verið. Nú er komið að stóra fallinu.
Vottunarstofan Tún hefur staðfest að lífræn aðlögun er hafin á þremur bújörðum í Dalvíkurbyggð. Um er að ræða jarðirnar Hnjúk í Skíðadal, Velli í Svarfaðardal og Krossa 1 á Árskógsströnd. Vottorð þessa efnis voru formlega afhent við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Bergi á Dalvík fimmtudaginn 1. desember s.l. Vottunin er áfangi í þróunarverkefninu „Lífræn framleiðsla í Dalvíkurbyggð“ sem Vaxtarsamningur ...
Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir bændur í Vallanesi í Fljótsdalshéraði hafa á undanförnum árum plantað um milljón trjám á landi sínu í Vallanesi, mikið af þeim stafafura [Pinus contora].
Allt sem Eymundur og Eygló framleiða hvort sem eru tré, kartöflur, bygg eða grænkál er ræktað með aðferðum lífrænnar ræktunar enda ber bú þeirra vottun frá vottunarstofunni Túni um 100 ...
Almanak SORPU fyrir 2012 er komið út. Almanakinu verður dreift á starfsstöðvar fyrirtækisins í kringum helgina og dreift ókeypis á stöðvunum á meðan birgðir endast.
Myndirnar sem prýða almanak SORPU árið 2012 eru verk nemenda í skólum og leikskólum sem eru þátttakendur í verkefninu Skólar á grænni grein. Verkefnið er alþjóðlegt umhverfismenntaverkefni sem Landvernd hefur umsjón með. Skólarnir eiga það ...
VOR gerir alvaregar athugasemdir við stefnu LBHÍ varðandi erfðabreytta ræktun og lífrænan búskap
VOR - Verndun og ræktun, félag framleiðenda í lífrænum búskap, hefur sent rektor Landbúnaðarháskóla Íslands bréf og mótmælt harðlega þeirri ákvörðun skólans að leigja út sérbyggt gróðurhús sitt að Reykjum í Ölfusi til starfsemi óskyldri garðyrkju og matvælaframleiðslu, en skólinn hyggst leigja húsið út til Orf Líftækni sem ætlar að rækta þar erfðabreyttar plöntur í þágu snyrtivöruiðnaðarins. Umrætt gróðurhús var reist ...
Bandaríska heimildamyndin Food Inc. fjallar um matvælaframleiðslu stórfyrirtækja þar í landi en myndin verður sýnd í ríkissjónvarpinu miðvikudaginn 7. desember kl. 22:20. Mest er lagt upp úr því að framleiða mat með sem minnstum tilkostnaði en minni áhersla lögð á aðbúnað dýra og starfsmanna og öryggi neytenda.
Höfundur myndarinnar er Robert Kenner.
Jólamatarmarkaður Búrsins og Beint frá býli verður haldinn á planinu fyrir framan Búrið og Nóatún þ. 10.desember 2011 frá kl. 12:00-16:00 og lengur ef veður, sala og stemmning leyfir.
Seljendur verða:
- Matarbúrið - Doddi og Lísa mæta með grasfóðrað holdanautakjöt (aberdeen angus og galloway) sem er bragðmikið og meyrt þar sem það fær að hánga í 3 vikur ...

Samningur Landverndar, umhverfisráðuneytisins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins um rekstur Grænfánaverkefnisins var undirritaður í dag. Samningurinn var undirritaður í Kvennaskólanum í Reykjavík, en hann er 200. skólinn sem hefur þátttöku í verkefninu hér á landi.
Með undirritun samningsins er rekstur Grænfánaverkefnis Landverndar tryggður til þriggja ára. Það voru Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sem ...

