Það sem skiptir mestu máli, miklu meira máli en að lesa ótal greinar um góð og græn ráð, er að breyta eigin hugsunarhætti. Nota græna heilahvelið, ef svo má að orði komast. Ef þú finnur ekki fyrir græna heilahvelinu í dag gætir þú þurft að þjálfa það aðeins upp. Þú getur byrjað að skoða hvað líf einnar manneskju, þín, þýðir ...
Manstu þegar þú fékkst heitt slátur með kartöflum, rófustöppu og uppstúf hjá ömmu og afa í gamla daga? Langar þig að endurskapa slíka stund en fallast þér hendur við hugmyndina um sláturgerð? Örvæntu ekki. Fylgdu þessum leiðbeiningum Hólmfríðar Helgu Sigurðardóttur og þú munt áreynslulaust skapa þér þjóðlegan sess í sætum minningum þinna eigin afkomenda.
1. Á sláturmarkaðnum
Það fyrsta sem ...

Reglugerð um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og erfðabreytts fóðurs (reglugerðar nr. 1038/2010) tók gildi hér á landi þ. 1. september 2012 og því er skilt að merkja hvort matvara og fóður innihaldi erfðabreytt efni og því á neytandinn nú val um hvort að hann sniðgangi erfðabreyttan kost eða ekki.
Í Bandaríkjunum er enn sem komið er ekki skilt ...
Nemdur við háskólann í Massachusetts (UMass) breyttu hluta af skólalóðinni í sjálfbæran permaculture garð sem færir þeim heilbrigða fæðu úr þeirra næsta umhverfi. Laust við langa flutniga og þau vita nákvæmlega við hvaða aðstæður maturinn er ræktaður. Hér getur að líta tvö fyrstu af þremur myndbönd um ferlið sem er enn í gangi:
Ýmsir velta fyrir sér hvaða áhrif virkjanir hafa á göngu laxfiska og hvaða árangur mótvægisaðgerðir beri.
Fimmtudaginn 3. nóvember 2011 kl. 11:50 verður haldinn í Sal 2 í Háskólabíó fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja.
Fyrirlesari er Dr. Margaret J. Filardo, sem hefur í tvo áratugi verið leiðandi í rannsóknum ...

Á dögunum kom út bókin Anna Rósa grasalæknir og íslenskar lækningajurtir notkun þeirra, tínsla og rannsóknir. Höfundur bókarinnar, Anna Rósa, er grasalæknir og nuddari að mennt, og hefur, auk þess að skrifa þessa fallegu bók um íslenskar lækningajurtir á síðastliðnum tveimur árum, þróað eigin vörulínu úr lífrænum jurtum, einnig undir eigin nafni og starfsheiti Anna Rósa grasalæknir. Sjá grein.
Af ...

Í vikunni sem leið (43. viku 2011) náði vefur Náttúrunnar 32. sæti í samræmdum vefmælingum Modernus. Einstaka gestir voru 10.621 og 26.262 síðum var flett. Í vikunni þar á undan (42. viku 2011) var Náttúran í 43. sæti og vikunni þar á undan (41. viku 2011) í 45. sæti.
Við skynjum gríðarlegan áhuga á málefnum umhverfisins en vefurinn ...
Hópur aðgerðarsinna á vegum Samtaka lífrænna neytenda SLN-VB og NAUST Náttúruverndarsamtaka Austurlands lagði upp í langt ferðalag í gær til að koma því til leiðar að ógn sem hreindýrum stafar af vegna girðinar í landi bænda í Flatey á Mýrum verði útrýmt.
Vandamálið teigir anga sína langt aftur í tímann. Girðingarnar eru ólöglegar skv. girðingarlögum og athafnaleysi við að fjarlægja ...
Loftslagsbreytingar eru komnar á matseðilinn - CO2 merktir hamborgarar
Max hamborgarastaðirnir (Max) eru veitingahúsakeðja sem nær til allrar Svíþjóðar og hóf hún starfsemi 1968. Hún er önnur stærsta hamborgarakeðjan í Svíþjóð og rak 67 veitingahús árið 2008.
Max hefur lengi starfað að því að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar og nýjasta nýjungin er að merkja kolefnisnotkun matarins og að kolefnisjafna matinn. Max ...
Á þriðjudag var haldin ráðstefna um ESB og umhverfismál. Að ráðstefnunni stóðu utanríkisráðuneytið og umhverfisráðuneytið í samvinnu við framkvæmdastjórn ESB. Sjá frétt um ráðstefnuna, smella hér.
Ráðstefnan var mjög fróðleg og varpaði ljósi á það sem að gæti áunnist með þátttöku í Evrópusambandinu hvað varðar umhverfismál. Náttúruvernd og líffræðileg fjölbreytni, þ.e. verndun búsvæða fugla og annarra lífvera er megininntak ...
Í dag afhenti Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, nýbökuðum foreldrum, Auði Jörundsdóttur og Benedikt Hermannssyni fyrsta pokann í verkefninu Ágætis byrjun á heilsugæslunni Miðbæ. Ágætis byrjun er verkefni sem Umhverfisstofnun stendur fyrir til að kynna umhverfismerkið Svaninn og hvetja foreldra til að nota slík merki sem hjálpartæki við vöruval. Svandís lýsti yfir mikilli ánægju með verkefnið og benti á mikilvægi þess að ...
Laugardaginn 29. október kl. 10:00-16:00 verður útsala á ýmsum garðyrkju- og gróðurvörum úr þrotabúi gróðrarstöðvarinnar Borgarprýði á Smiðjuvöllum 12-20, Akranesi, sem Skógræktarfélag Íslands keypti sl. vor.
Upplagt tækifæri fyrir þá sem stunda ræktun.
Helstu gróðurvörur: Plöntubakkar og pottar af ýmsum gerðum og stærðum, bæði fyrir sáningu og framræktun á grænmeti, runnum og trjám. Ýmsar gerðir af jarðvegsdúkum, þykkar ...
Fyrsti opni fundur Vistbyggðarráðs veturinn 2011/2012 verður haldinn í KEX hostel, Skúlatúni 28, föstudaginn 28.október kl. 8:30.
Leitast verður við að finna svör við spurningunni – hvað er vistvænt á Íslandi? Það er einmitt viðfangsefni eins af vinnuhópum Vistbyggðarráðs og mun Halldór Eiríksson arkitekt og hópstjóri gera stuttlega grein fyrir störfum hópsins. En vistvænt hús verður ...
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands (RIKK) boðar til alþjóðlegrar ráðstefnu í tilefni af 20 ára afmæli stofnunarinnar og 100 ára afmælis Háskóla Íslands. Ráðstefnan fer fram dagana 4.–5. nóvember 2011 við Háskóla Íslands og dagskrána má nálgast hér (.pdf).
Ráðstefnan í ár skiptist í 20 málstofur með þátttöku fræðimanna af ólíkum fræðasviðum. Athygli er vakin á ...
Green Drinks eða „Grænir drykkir“ er alþjóðlegt óformlegt samfélag sem starfar óhefðbundið í yfir 500 borgum um allan heim. Grænir drykkir hafa það að markmiði að fólk með áhuga á umhverfismálum hittist og efli með sér tengsl til að vinna að grænum og góðum málefnum. Jafnt áhugafólks sem fagaðilar hvort sem þeir eru íslendingar eða annars staðar að úr heiminum ...
Matvælastofnun - MAST heldur fræðslufund um nýja matvælalöggjöf og áhrif hennar á bændur þriðjudaginn 1. nóvember 2011 kl. 15:30 - 16:30 í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Á fundinum verður fjallað um nýja löggjöf um framleiðslu búfjárafurða sem tekur gildi 1.nóvember n.k. Jafnframt verður fjallað um breytingar á umdæmum héraðsdýralækna og dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum.
Ný matvælalöggjöf um hollustuhætti ...
Vitlu taka þátt í að móta leiðir til að auka veg staðbundinna matvæla innan ferðaþjónustunnar? Ráðstefna og málstofa á sveitahótelinu Smyrlabjörgum í Suðursveit dagana 26. - 27. október nk.
Sjálfbærni í staðbundinni matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu
- Hvernig getur staðbundin matvælaframleiðsla stuðlað að sjálfbærni í ferðaþjónustu?
- Hvernig skal staðið að markaðssetningu staðbundinna matvæla, hvaða kröfur skal setja?
- Er til mælikvarði fyrir vottun á ...
Utanríkisráðuneyti og umhverfisráðuneyti í samvinnu við framkvæmdastjórn ESB standa þann 25. október fyrir málþingi um ESB og umhverfismál. Ráðstefnan verður haldin í CenterHotel Plaza Aðalstræti 4.
Á málþinginu verður fjallað um hvaða áhrif þátttaka Íslands í Evrópska efnhagssvæðinu (EES) hefur haft á umhverfislöggjöf landsins og hvaða breytingar hugsanleg aðild að Evrópusambandinu myndi hafa í för með sér á því sviði ...
Dómnefnd sem skipuð var til að leggja mat á tillögur sem bárust í hugmyndaleit Þingvallanefndar, sem fram fór í sumar um framtíð þjóðgarðsins á Þingvöllum, greindi frá niðurstöðu sinni í dag. Alls bárust 102 tillögur frá 88 þátttakendum og veitti dómnefndin viðurkenningar fyrir 5 áhugaverðustu tillögurnar, sem jafnframt uppfylltu þau skilyrði sem nefndin setti. Afhending viðurkenninganna fór fram í ...
Nú þegar farið er að hausta og laufin falla af trjánum er tilvalið að fríska upp á heimilið með plöntum. Fyrir marga er það hægara sagt en gert að halda lífi í plöntum, þ.a.m. mig. Það eru þó ekki allar plöntur sem þarfnast mikillar athygli og hér að neðan er listi yfir 5 plöntur sem auðvelt er að ...

Sæl Svandís. Ég man eftir því fyrir nokkrum árum að sjá heimagerðan brjóstsykur hjá þér og minntist þess þá að amma mín Guðbjörg Pálsdóttir gerði oft brjóstsykur. Hvítan piparmyntubrjóstsykur með rauðum röndum sem hún klippti í mola á listifenginn hátt. Við börnin sátum agndofa og horfðum á þennan galdur. Hún amma mín gekk í húsmæðraskóla í Danmörku og hefur sennileg ...
Áskorun Náttúruverndarsamtaka Austurlands (NAUST) til ábúenda, umráðamanna og sveitarfélaga á Austur- og Suðausturlandi
Að undanförnu hefur fjöldi hreindýra fests í girðingum, tarfar hafa fests saman á hornum í girðingaflækjum og jafnvel drepist vegna girðingadræsa sem skildar hafa verið eftir á víðavangi. Þetta ástand er óviðunandi.
NAUST skorar á bændur á Mýrum í Hornafirði, sem og aðra landeigendur og sveitarfélög á ...
Völuspá - A Nordic Food Experience er samstarfsverkefni leikhússins Republique í Kaupmannahöfn, Norræna hússins og DILL veitingastaðar og byggist bæði á ævafornum textum Völuspár og norrænni matarmenningu. Sýningin er ferðalag um heima skilningarvitanna þar sem mæri hefðbundinnar leiksýningar og máltíðar eru könnuð og þeim ögrað. Um er að ræða einstaka sýningu þar sem öll skilningarvitin spila saman, sjón, heyrn og tilfinning ...
Taubleiumarkaður verður haldin nk. laugardag, 22. október frá kl. 12:00 til 16:00 í Lifandi markaði, Borgartúni 24.
Notkun taubleia er betri fyrir umhverfið auk þess að spara heimilum töluverð útgjöld. Því hafa taubleiur notið aukinna vinsælda hér á landi. Hvert barn notar, að meðaltali, um 6.000 bréfbleiur á bleiutímabilinu. Þetta gerir u.þ.b. tvö tonn af ...
Grænt loðdýr að nafni Berti hefur verið áberandi í auglýsingamiðlum landsins að undanförnu. Berti leikur í auglýsingum um „græn bílalán“ fyrir Ergo, fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka. Grænt, þýðir í þessu samhengi að Ergo felli niður öll lántökugjöld af bílalánum til kaupa á visthæfum bílum. Tilboðið gildir til lok árs 2011.
Jón Hannes Karlsson, framkvæmdastjóri Ergo, fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka segir að „viðtökur á grænu ...
Í dag kl. 15:15 mun Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur á Náttúrufræðistofnun, flytja erindi um verndun jarðminja á Hrafnaþingi.
Í erindinu verður farið yfir stöðu jarðminja í náttúruvernd á Íslandi og jafnframt rakin hnignun jarðminja í landinu frá landnámsöld til okkar tíma. Fjallað verður um verndun jarðminja á Íslandi og kynntar hugmyndir um flokkunaraðferð sem hentar íslenskum aðstæðum og ætlað er ...
Náttúran.is fagnar því að áður fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík hafi verið slegið út af borðinu. Reyndar er löngu ljóst að fyrirbærið var aldrei nema skýjaborgir fáfróðra stjórnmálamanna og gráðugra heimamanna, en nú er málinu s.s. lokið.
Þann 1. mars 2006 var fjallað um undirritun samkomulags álrisans ALCOA og ríkisstjórnar Íslands um að hefja hagkvæmnikönnun á því ...
Fyrsta regla þegar kemur að því að útbúa súpu er að það eru engar reglur. Súpur er hægt að búa til frá grunni eins og þig lystir.
Eftirfarandi uppskrift er ætluð fyrir 4-6 manns.
Soð:
1,4 – 1,8 l af grænmetis krafti
9 dl af vatni
1 dl af hvítvíni
1 dl af tamari sósu
1/2 dl af ...

Veislusalur Hótel Arkar var troðfullur á fundi sem Orkustofnun boðaði til í kvöld en málefni fundarins voru skjálftahrinur (sjá grein) sem skakið hafa umhverfi Hengilssvæðisins á undanförnum vikum. Fulltrúar Orkuveitunnar, Orkustofnunar, ÍSOR og Veðurstofunnar höfðu langt mál um hvernig jarðskjálftar verða til og hve eðlilegt sé að skjálftar eigi sér stað við niðurdælingu, spennan þyrfti hvort eð er að leysast ...
Matvæladagur MNÍ árið 2011 verður haldinn þann 18. október nk á Hilton Reykjavík Nordica Hóteli.
Yfirskrift Matvæladagsins að þessu sinni er Heilsutengd matvæli og markfæði, Íslensk vöruþróun, þar sem fjallað verður meðal annars um íslenska vöruþróun, framleiðslu, rannsóknir og markaðssetningu.:
Dagskrá
10:30 – 12:00 Uppsetning veggspjalda & kynningarbása
11:15 – 12:00 Afhending ráðstefnugagna
12:00 – 12:30 Ávarp ...
Undanfarið hefur hópur áhugafólks um náttúruvernd undirbúið stofnun náttúruverndarsamtaka á Reykjanesskaga. Stofnfundur samtakanna verður haldinn í Gaflaraleikhúsinu (áður Hafnarfjarðarleikhúsinu), Víkingastræti í Hafnarfirði, þriðjudaginn 18. október næstkomandi kl. 20:00 og er markmiðið að sameina náttúruverndarfólk á Suðvesturlandi í eina öfluga breiðfylkingu sem muni láta til sín taka í umhverfis- og náttúruverndarmálum í landnámi Ingólfs.
Á dagskrá fundarins er að samþykkja ...

Fyrir nokkrum vikum fékk nýtt fyrirtæk, Organic lífstíll ehf., lífræna vottun frá vottunarstofunni Tún (sjá grein) og í kjölfarið setti fyrirtækið fyrstu lífrænu hráfæðivörur sínar á markað. Það er ekki á hverjum degi sem að lífrænar hráfæðivörur eru framleiddar fyrir íslenskan markað og af því tilefni spurði Náttúran Jóhann Örn, einn eigenda fyrirtækisins nokkurra spurninga um þetta merka framtak.
Hverjir ...
Orkuveita Reykjavíkur efnir til opins upplýsingafundar á Hótel Örk í Hveragerði mánudagskvöldið 17. október kl. 20:00.
Tilefnið eru skjálftahrinur síðustu vikna sem raktar eru til niðurdælingar á jarðhitavökva frá Hellisheiðarvirkjun. Hún er skilyrði í starfsleyfi Hellisheiðarvirkjunar og á að efla sjálfbærni auðlindanýtingarinnar.
Á fundinum verður kynnt niðurstaða nýrrar samantektar jarðvísindamanna um skjálftavirknina.
Úttektin er gerð að frumkvæði iðnaðarráðuneytisins. Vísindamenn ...
Umhverfisþing var haldið á Selfossi í gær. Fjölmenni var, um 300 gestir sátu þingið og var dagskráin ágætlega skipulögð.
Áherslur Umhverfisþings 2011 voru náttúruvernd og umræða um hina svokölluðu Hvítbók sem er tæplega 500 síðna rit sem unnið var af hópi lögfræðinga og nokkurra sérfræðinga, nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga, með það fyrir augum að gera tillögur að nýrri heildarlöggjöf fyrir ...

Orkuveitan stígur þungt til jarðar á Hellisheiði þessa dagana. Í morgun skalf jörð enn og aftur í Hveragerði. Og nú var einn skjálftinn nánast við bæjardyrnar. Einmitt á sama tíma og undirritaður var að lesa grein á visir.is um að nú væri þetta allt nánast yfirstaðið og skjálftavirkni vegna niðurdælingar að baki. Skjálftarnir í morgun voru það öflugir að ...
Ráðstefnan Heimsins græna gull verður haldin í Kaldalóni í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu, laugardaginn 22. október n.k. Um er að ræða alþjóðlega ráðstefnu sem allur skógræktargeirinn á Íslandi stendur fyrir á Alþjóðlegu ári skóga og fjallar hún um ástand og horfur skóga heimsins.
Helstu talsmenn og sérfræðingar á málefnum skóga á heimsvísu munu fjalla um þátt skóga og þýðingu ...
Yfir 300 manns eru væntanlegir á VII. Umhverfisþing sem haldið verður á Hótel Selfossi á morgun. Umhverfisþing fjallar að þessu sinni um náttúruvernd. Meðal annars verður nýútkomin hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands kynnt og rædd á þinginu en bókinni er ætlað að leggja grunn að heildarendurskoðun náttúruverndarlaga,.
Í málstofum verður fjallað um friðlýsingar og framkvæmd náttúruverndaráætlunar, vísindaleg viðmið ...
Mánudaginn 17. október verður haldinn hádegisfundur í fyrirlestrarsal Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýri undir yfirsögninni „Matvælaframleiðsla morgundagsins - verður nóg af mat fyrir íbúa jarðar“. Fyrirlesari er Julian Cribb, höfundur bókarinnar „The Coming Famine: The global food crisis and what we can do to avoid it“.
Fæðuöflun fyrir sífellt fleiri jarðarbúa á tímum loftslagsbreytinga, umhverfisvandamála, vaxandi vatnsskorti og dvínandi framboðs af áburðarefnum ...
Landvernd boðar til opins fundar, laugardaginn 15. október frá kl. 11:00-14:00, í Farfuglaheimilinu í Laugardal, um drög að þingsálykuntartillögu um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða. (www.rammaaaetlun.is). Í drögum iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra er gert ráð fyrir skiptingu svæða í orkunýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk.
Á laugardagsfundinum mun Friðrik Dagur Arnarson, fulltrúi frjálsra félagasamtaka í verkefnisstjórn um Rammaáætlun, flytja erindi ...
Samstarf Bjarkar, Háskóla íslands og Reykjavíkurborgar: Náttúra, tónfræði og vísindi. Nám og leikur!
Hljómplata Bjarkar Guðmunsdóttur Biophilia er komin út og hefur nú þegar vakið heimsathygli. Um er að ræða stórvirki á mörgum sviðum, tilraun til nýstárlegrar heildrænnar sýnar á tengsl manns og náttúru, tækni og tónlistar. Og sú þverfaglega margmiðlunartilraun heldur áfram, nú taka grunnskólanemendur þátt í að þróa nýja tónvísindasýn !
Fyrsta af níu Bíófílíu-tónleikasýningum á Iceland Airwaves-hátíðinni í Hörpunni verður haldin ...
Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþingi um sjálfbær sveitarfélög á Hótel Selfossi fimmtudaginn 13. október kl. 13.00-17:00. Málþingið er haldið í samvinnu við umhverfisráðuneytið.
Málþingið ber yfirskriftina: „Sjálfbær sveitarfélög - lífvænlegt umhverfi – félagslegt réttlæti – ábyrg fjármálastjórn“.
Á málþinginu verða kynnt verkefni sem tengjast sjálfbærni með einum eða öðrum hætti og eru í gangi víðs vegar um landið.
Dagskrá:
13 ...
Laugardaginn 8. október nk. kl:14:00, flytur finnski hönnuðurinn Pia Holm fyrirlestur í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ.
Pía er myndskreytir og textílhönnuður og nefnir hún fyrirlesturinn Naturally Happy Patterns eða Náttúrulega hamingjusöm mynstur. Pía mun fjalla um finnska textílhönnun og eigin verk. Hún hefur um árabil unnið fyrir stór norræn fyrirtæki, meðal annars fyrir hið heimsþekkta fyrirtæki MARIMEKKO og ...

Við hvað starfar þú eða hvert er viðfangsefni þitt:
Ég starfa við margt, mest þó skriftir og alþýðurannsóknir. Ég rækta matjurtir til heimilisins og stunda svolitla tóvinnu í hjáverkum. Svo er ég ættmóðir og félagsvera og það tekur allt sinn tíma.
Hvaða menntun eða reynslu hefur þú að baki?
Ég er með myndlistarnám en annað er flest sjálflært í gegnum ...
Umhverfisráðherra hefur fallist á ráðleggingar Náttúrufræðistofnunar um ráðlagða rjúpnaveiði árið 2011 upp á 31.000 fugla. Þetta eru ríflega helmingi færri fuglar en árið 2010, sem skýrist af verri stöðu rjúpnastofnsins. Með því að deila ráðlagðri veiði á fjölda skráðra rjúpnaveiðimanna undanfarin ár má þannig gera ráð fyrir um 6 rjúpum á hvern veiðimann.
Fyrirkomulagi rjúpnaveiða verður vegna þessa breytt ...
Hnetur eru mjög næringarríkar og innihalda hollar fitur sem vernda hjartað og minnka kólesteról. Hnetur eru einnig flokkaðar undir ofurfæðu. Áður en þú teygir þig í skál fulla af mismunandi hnetum er þó gott að vera meðvitaður um hvernig mismunandi hnetur blandast saman, næringarlega séð. Hér að neðan er listi yfir fimm hollustu hneturnar.
1. Valhnetur
Allar hnetur eru þekktar ...
Áskorun til yfirvalda, eftirlitsaðila og Héraðsdóms Austurlands m.a. vegna svonefnds Stórhólsmáls í Álftafirði
Starfshoópur Samtaka lífrænna neytenda - Velferð búfjár (SLN-VB) er 15 manna starfshópur innan Samtaka lífrænna neytenda (www.lifraen.is) Hann skorar á yfirvöld og eftirlitsaðila að fara að lögum og beita öllum tiltækum úrræðum til að stöðva og koma í framtíðinni í veg fyrir langvarandi illa meðferð búfjár á bænum Stórhóli í Álftafirði sem og hjá o ...
Umhverfisþing verður haldið þ. 14. október nk. á Hótel Selfossi. Á þinginu verður fjallað um náttúruverndarmál, þar á meðal nýútkomna hvítbók um endurskoðun náttúruverndarlaga, friðlýsingar, ferðaþjónustu, útivist, náttúruvísindi og viðmið fyrir náttúruvernd.
Heiðursgestur er Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna sem fagna 100 ára afmæli í ár.
Dagskrá þingsins og nánari upplýsingar er að finna á vef umhverfisráðuneytisins.
Nauðsynlegt er ...
Um miðjan september birti Rodale-stofnunin í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum nýjar niðurstöður úr rannsókn sem stofnunin hefur unnið að samfleytt í 30 ár. Í rannsókninni var lífrænn landbúnaður borinn saman við hefðbundinn landbúnað, bæði hvað varðar afkomu bænda og umhverfisáhrif. Niðurstöðurnar eru lífræna landbúnaðinum mjög í hag hvað báða þessa þætti varðar.
Helstu niðurstöður
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þessar:
- Lífræn ræktun ...


