Náttúran óskar öllum stelpum stórum og smáum til hamingju með daginn en dagurinn er helgaður kvenréttindabaráttu hér á landi. 19. júní í ár eru liðin 93 ár frá því að konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla.
Baráttunni er þó að sjálfsögðu ekki lokið og raunar er ansi langt i land, ekki aðeins á launasviðinu heldur kannski sérstaklega inni ...




Alþingi samþykkti nýverið
Í frétt á DV
Rafbílaframleiðandinn Tesla Motors Inc. veðjar óhikað á velgengni rafbílanna í framtíðinni og hóf sölu nýrra hlutabréfa á almennum markaði í dag til að fjármagna nýjan fólksbíl. Með þessu er stjórn félagsins að auka áður fyrirhugaða hlutabréfasölu í félaginu úr 11,1 í 13,3 milljónir hluta. Vonast er til að verðið sem fæst fyrir hlutinn verði á bilinu 14 til ...
Samstöðuatburður með nímenningunum sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi verður haldin í Nýlistasafnið (NÝLÓ) – Skúlagötu 28, laugardaginn 3. júlí kl. 17:00.
Art of living er „öndunartækni“, sem er streitulosandi og hefur reynst vel sem áfallahjálp. Aðferðin hefur m.a. verið notuð eftir flóðbylgjuna miklu í Asíu, eftir stríðið í Kósóvó og á Haítí eftir jarðskjálftann mikla þar núna í vor. Art of Living, AOL, er öndunartækni og hugmyndafræði, sem Sri Sri Ravi Shankar er höfundur að. Upprunnið úr fræðum Yoga, Bhagavad ...
Ný stjórn tók við á aðalfundi OR í dag. Á fundinum lagði Jón Gnarr borgarstjóri fram áherslur Reykjavíkurborgar í rekstrinum. Haraldur Flosi Tryggvason er nýr stjórnarformaður og auk hans skipa stjórnina þau Helga Jónsdóttir, Aðalsteinn Leifsson, Kjartan Magnússon, Sóley Tómasdóttir og Hrönn Ríkharðsdóttir. Áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar er Björn Bjarki Þorsteinsson.
Útstreymi gróðurhúsalofttegunda hér á landi jókst um 8% milli áranna 2007 og 2008 og hefur aukist um 43% frá 1990. Þetta kemur fram í skýrslu sem Umhverfisstofnun hefur skilað til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna.
Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“ er nú haldin í annað sinn, í Hveragerði, en með sýningunni í fyrra var í fyrsta sinn á Íslandi haldin heildstæði garðyrkjusýning sem tók mið af faginu í heild sinni. Garðplöntur, afskorin blóm, skrúðgarðyrkju, blómaskreytingar, landslagsarkitektúr, grænmetisræktun og annað sem tengist græna geiranum á Íslandi mátti sjá á sýningunni. Ýmsar uppákomur voru í gangi ...
Jónsvaka er ný og spennandi listahátíð sem haldin verður í hjarta Reykjavíkur dagana 24.-27. júní. Hátíðin dregur nafn sitt af Jónsmessunótt sem er fimmtudagin 24. júní en hér á árum áður voru dagurinn fyrir Jónsmessu og Jónsmessunóttin sjálf nefnd einu nafni Jónsvaka.
Sextíu ár eru liðin frá því að Heiðmörk var opnuð sem útivistar- og friðland. Skógræktarfélagi Reykjavíkur var jafnframt falin varðveisla og umsýsla um henni. Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur flytur ræðu á fjölskylduhátíð í Heiðmörk á laugardaginn og gróðursetur garðahlyn í tilefni dagsins.
Að undanförnu hefur rutt sér til rúms ný aðferðafræði við hönnun, byggingu, rekstur og viðhald mannvirkja sem nefnd er BIM, Building Information Modeling en hún byggist á því að allir hlutaðeigandi aðilar verkefnis vinna í sameiginlegu upplýsingalíkani fyrir viðkomandi mannvirki.
Í síðustu viku kom út ný bók um jurtalitun sem heitir Foldarskart í ull og fat - Jurtalitun.
Norræna félagið á Akureyri mun í samstarfi við Handverkshátíðina að Hrafnagili og Menningarráð Eyþings standa fyrir Norrænum Handverksdögum dagana 10. – 12. ágúst. Í ár höfum við fengið til liðs við okkur Hildi Rosenkjær og Svíana Kerstin Lindroth og Sune Oskarsson.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnaði Undirheima Vatnshellis í gær og staðfesti um leið verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn Snæfellsjökul.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett
Kæru félagar og velunnarar Landverndar
Helgina 19. - 20. júní munu þær Kristbjörg Kristmundsdóttir yogakennari og blómadropaframleiðandi og Hildur Hákonardóttir myndlistarmaður og höfundur bókanna
Málþing um friðlandið í Vatnsmýrinni verður haldið í Norræna húsinu þann 24. júní kl. 10:00-12:00. Markmið með málþinginu er að kynna þá möguleika sem felast í því að hafa friðland í miðri höfuðborg og finna leiðir til að endurbæta friðlandið ásamt því að koma á samtali milli manns og náttúru.
Árlega er haldið upp á sameiginlegan Dag villtra blóma á Norðurlöndum. Grasagarðurinn í Reykjavík býður af því tilefni upp á leiðsögn um Laugarnestanga sunnudaginn 13. júní, kl. 11-13. Plöntur verða greindar til tegunda, fjallað um gróður svæðisins og starfsemi Flóruvina kynnt. Ekkert gjald er tekið fyrir þátttökuna. Leiðsögn er í höndum Hjartar Þorbjörnssonar safnvarðar Grasagarðsins.
Vinnu við að kortleggja og skilgreina vegi á hálendinu hefur miðað vel að undanförnu og hefur starfshópur umhverfisráðuneytisins, Landmælinga, Umhverfisstofnunar og Vegagerðarinnar átt fundi með fulltrúum allra sveitarfélaga sem fara með skipulagsvald á hálendinu.
Orkusetur hefur smíðað nýja reiknivél sem aðstoðar bifreiðaeigendur að taka skynsamlegar ákvarðanir í bílakaupum. Samhliða nýju reiknivélinni voru eldri reiknivélar uppfærðar og settar í nýjan búning.
Saga og Jökull á Vesturlandi er vöruþróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu með áherslu á afþreyingu, náttúru- og menningarfræðslu fyrir alla fjölskylduna. Að verkefninu standa 10 aðilar víðsvegar á Vesturlandi.
Þörf er á alþjóðlegum samningum um notkun og losun kvikasilfurs. Norrænu umhverfisráðherrarnir ítreka þetta sjónarmið í sameiginlegri blaðagrein. Tekið verður stórt skref fram á við í ferlinu þegar Sameinuðu þjóðirnar halda fyrsta samningafundinn um alþjóðlegan samning í Stokkhólmi dagana 7.-11. júní.
Styrkur svifryks á höfuðborgarsvæðinu fer yfir heilsuverndarmörkin í dag, 4. júní. Hálftímagildið klukkan 12.30 í dag á mælistöð Reykjavíkurborgar við Grensásveg mældist 116 míkrógrömm á rúmmetra og í Fjölskyldu – og húsdýragarðinum var 86. Meðalgildið frá miðnætti við Grensásveg í hádeginu var 85 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsuverndarmörk svifryks á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Svifryk berst sennilega að mestu ...
Í erli nútímans gefst oft lítill tími til að njóta þess sem náttúran og umhverfið hefur upp á að bjóða. Hér áður fyrr var þekking á landslagi, fuglum og jurtum og eitthvað sem hvert barn lærði í æsku en nú eru aðrar áherslur. Það þýðir þó ekki að áhugi á náttúru og umhverfi fari minnkandi en tækifærin til þekkingaröflunar eru ...
Þann 12. maí sl. var fyrsta formlega metanverkstæði landsins Vélamiðstöðin opnað en verkstæðið er sjálfstætt einkahlutafélag í eigu Íslenska Gámafélagsins ehf.