Olíutunnan - oildrum.com hefur sett fram áhugaverðar upplýsingar um það hve mikla orku þarf til að framleiða mismunandi fæðutegundir; Ég setti gögnin upp í súlurit (sjá hér að ofan) og í ljós kom að flestir ættu að hugsa sig um og gerast Vegan eða grænmetisætur a.m.k. á virkum dögum; ostur þarfnaðist álíka mikillar orku í framleiðslu eins og ...
Nú stendur yfir uppfærsla og flutningur gagna á Náttúran.is.
Á meðan á því stendur má búast við skrítinni hegðun.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur falið Umhverfisstofnun að kanna hvernig staðið hefur verið við þau skilyrði sem umhverfisráðuneytið setti í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar í desember 2001.
Í úrskurði ráðuneytisins var fallist á framkvæmdina með 20 tölusettum skilyrðum sem var ætlað að draga úr umhverfisáhrifum virkjunarinnar. Framkvæmdaraðila var falið að sjá til þess að skilyrðunum yrði fullnægt. Rekstur virkjunarinnar ...
Ríki Vatnajökuls stendur fyrir málþing á Vetrarhátíð WOW undir yfirsögninni \342\200\236Óður til hreindýrsins\342\200\234 en málþingið verður haldið í Nýheimum á Höfn í Hornafirði miðvikudaginn 31.mars nk.
Setning 10:30 Signý Ormarsdóttir Menningarráði Austurlands
- Saga hreindýra á Íslandi, Skarphéðinn G. Þórisson Náttúrustofa Austurlands
- Lifnaðarhættir hreindýra í nýju ljósi, Skarphéðinn G. Þórisson NA
- Veiðistjórnun hreindýraveiða, Jóhann ...
Föstudaginn 26. mars kl. 14:30-15:45 býður námsbraut í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands upp á opinn fund um vistferilsgreiningar í Lögbergi, Háskóla Íslands, stofu 101. Fyrirlestrar fara fram á ensku og gert er ráð fyrir umræðum eftir framsögur.
What is LCA? How an LCA tool can help on carrying out LCA.
Some practical examples of industries using ...
Hlutfall negldra dekkja í Reykjavík var talið miðvikudaginn 17. mars. Hlutfallið skiptist þannig að 39% ökutækja voru á negldum dekkjum og 61% var á öðrum dekkjum. Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 42% negld á móti 58% ónegldum. Búist er við að styrkur svifryks verði yfir heilsuverndarmörkum í dag og á morgun.
Hvössum vindi er spáð í Reykjavík í ...
Miðvikudaginn 24. mars næstkomandi verður haldið málþing um jarðminjagarða (Geoparks) á Íslandi í Salnum, Hamraborg 6, Kópavogi.
Dagskrá:
12:30 - 12:40 Setning - Þorsteinn Sæmundsson, formaður Jarðfræðafélags Íslands og forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra
12:40 - 12:50 Ávarp - Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra
12:50 - 13:00 Ávarp - Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs
13:00 - 13:20 Eldfjallagarður og jarðminjar á Reykjanesskaga - Helgi ...
Í tilefni af viku endurnýjanlegrar orku í Evrópu heldur Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Enterprise Europe Network fund fimmtudaginn 25. mars nk. kl. 13.00-15.00 á Grand hótel undir yfirskriftinni Framlag Íslands til þróunar í endurnýjanlegri orku.
Dagskrá:
- Ávarp iðnaðarráðherra - Katrín Júlíusdóttir
- Nýsköpun í orkutækni - Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
- Enterprise Europe Network: Tækifæri fyrir íslensk orkufyrirtæki erlendis ...
Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur óska eftir tilnefningum til Varðliða umhverfisins 2010, verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.
Skilafrestur verkefna er til 25. mars 2010 og ...
Í tilefni af degi vatnsins verður haldin ráðstefna í Víðgelmi, Orkugarði við Grensásveg 9, þann 22. mars frá 13-16. Hinn árlegi dagur vatnsins er helgaður umræðu um sértæk viðfangsefni sem varða vatn og verndun vatnsauðlindarinnar. Viðfangsefnið í ár er að miðla upplýsingum um tækifæri og hættur sem varða vatnsgæði og stuðla að því að vatnsgæði skipi þýðingarmikinn sess í vatnsstjórnun ...
Hér fara tilkynningar Almannavarna:
| 20.3.2010 |
Eldgos hafið í Eyjafjallajökli |
| Eldgos er hafið í Eyjafjallajökli. Öskufall er staðfest í Fljótshlíðinni. Almannavarnir hafa lýst yfir neyðarstigi vegna eldgossins og áætlun vegna eldgoss í Eyjafjallajökli hefur verið virkjuð. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð er virkjuð og áhöfn er að hefja störf: Verið er að boða viðbragðsaðila á vettvang og náið er fylgst með ... |
„Endurvinnsla á að verða algjör skylda allra í landinu."
Grein sem birtist í Fréttablaðinu 27. jan. undir fyrirsögninni „Ísland umhverfisvænasta land í heimi“ fékk mig til að verða hálfleiður og dapur. Í skýrslu frá Davos-ráðstefnunni, þar sem valdamestu menn í heimi ráða ráðum sínum í umhverfismálum, kemur þetta fram. Ekki skánaði það daginn eftir þegar birtist í Fréttablaðinu að núna ...
Nýr enskur vefur Orkustofnunar hefur nú litið dagsins ljós. Vefinn, sem inniheldur umfangsmiklar upplýsingar um orku- og auðlindamál á Íslandi, er að finna á slóðinni www.nea.is
Reynsla Íslendinga af orku- og auðlindanýtingu, og sér í lagi nýting jarðhita, hefur vakið mikla athygli erlendra aðila síðasta áratuginn. Stöðugt flæði fyrirspurna varð til þess að Orkustofnun hóf vinnu við enskan ...
Sálfræðingurinn Don Beck hefur unnið mikið og merkilegt starf til að ná að skilja þróun hugsunar (evolution of thought) sem byggist á þróun þjóðflokka. Hann heldur fyrirlestur í Háskóla Íslands föstudaginn 19. mars kl 12:20 undir titlinum; "Sustainable Cultures, Sustainable Planet: A Values System Perspective on Consctructive Dialogue and Cooperative Action".
Allir velkomnir!
Sjá nánar á vef Háskóla Íslands.
Skipulagsstofnun vekur athygli sveitarstjórna á því að þann 29. janúar 2010 synjaði umhverfisráðherra staðfestingu aðalskipulags Flóahrepps að hluta annars vegar og aðalskipulagsbreytingar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hins vegar. Ástæða þess að umhverfisráðherra synjaði um staðfestingu er sú að Landsvirkjun hafði tekið þátt í kostnaði við aðalskipulagsgerð, en í niðurstöðu ráðherra segir m.a.:
"Samkvæmt þeim ákvæðum (3. tl. og 4 ...
ReykjavíkurAkademían stendur fyrir tveimur málstofum um áhrif loftslagsbreytinga á náttúru, lífríki og samfélag.
Markmiðið er að fá gott yfirlit yfir staðreyndir og hugsanlegar afleiðingar fyrir Ísland og Norðurslóðir, þær breytingar sem orðið hafa og þær sem kunna að verða. Málstofurnar verða í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar á Hringbraut121, 4. hæð, laugardagana 20. mars og 10. apríl, kl. 13:00 - 15:30
Laugardaginn ...
Garðyrkjufélag Akureyrar í samstarfi við Náttúrulækningafélag Akureyrar halda námskeið í lífrænni ræktun mat og kryddjurta. Komið verður inná ræktunarstefnurnar vistvænt, lífrænt og lífelft.
Námskeiðið verðu haldið laugardaginn 20 mars. kl 10:00-15:30.
Leiðbeinandi er Gunný ór Guðfinnssons garðyrkjufræðingur.
Námskeiðsgjald kr. 5.000 (4.000 fyrir félaga GA & NLFA)
Innifalinn léttur hádegisverður
Skráning og nánari upplýsingar veitir Jóhann 898-7332 ...
Mikið verður um að vera á HönnunarMars nú þegar hann er haldinn í annað sinn en honum er ætlað að vekja athygli á íslenskum hönnuðum og hönnun þeirra hjá almenningi, fjölmiðlum og stjórnvöldum. Íslenskir hönnuðir hafa verið að sækja mjög í sig veðrið undanfarin ár sem sést í þeirri miklu grósku sem er í íslenskri hönnun í dag.
Eitt af ...

Í dag var tilkynnt um að Erlendur Björnsson bóndi í Seglbúðum við Kirkjubæjarklaustur hljóti umhverfisverðlaun ELO samtakanna 2010 \342\200\236European Landowner's Organization\342\200\234 fyrir uppgræðslu lands.
Erlendur hefur unnið að þessu verkefni í tengslum við verkefnið \342\200\236Bændur græða landið" í samstarfi við Landgræðslu ríkisins. Verðlaunin verða afhent á ráðstefnu ELO á morgun. Bændur ...
Páll Jakob Línda, doktorsnemi í umhverfissálarfræði í háskólanum í Sidney heldur fyrirlestur í Gerðubergi miðvikudaginn 17. mars frá kl. 19:00-21:30. Fyrirlesturinn verður haldinn í Gerðubergi.
Í lítilli könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum kom í ljós að Austurvöllur hafði meira aðdráttarafl en Hlemmur í huga langsamlegra flesta sem spurðir voru. Fyrir þá sem þekkja til þessara tveggja ...
Dagana 18. - 21. mars 2010 stendur Hönnunarmiðstöðin öðru sinni fyrir HönnunarMars. Markmiðið er að halda áfram því góða starfi sem farið var af stað með, þar sem grasrótin í hönnunarsamfélagi landsins stendur fyrir stærsta hluta dagskrárinnar.
Kynning á glæsilegri dagskrá HönnunarMars 2010 fer fram í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur nk. fimmtudag 11. mars kl. 20:00.
HönnunarMars er ætlað að vekja ...
Nýlega opnaði Orkuveita Reykjavíkur fésbókarsíðu undir nafni þessa spengilega náunga „Orkuboltans“ en tilgangurinn er að ráðleggja fólki um það hvernig hægt er að nýta orkuna á sem bestan og umhverfisvænstan hátt án þess þó að minnka lífsgæði okkar.
Orkuboltinn vill ítreka það að orkan er eitt af því dýrmætasta sem við eigum og verðum við því að nýta hana sem ...
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að hefja undirbúning að friðlýsingu Gjástykkis í Þingeyjarsveit. Ákvörðun þess efnis var tilkynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
Umhverfisráðuneytið óskaði eftir því í ágúst síðastliðnum að Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands sendu ráðuneytinu álit á hugmyndum sem fram höfðu komið um friðlýsingu Gjástykkis, þar á meðal frá Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi. Í áliti Náttúrufræðistofnunar kemur ...
Á bandaríska umhverfisvefnum Treehugger.com stendur nú yfir skoðanakönnun þar sem lesendur geta valið það sem þeim finnst skara fram úr á græna sviðinu í ár. Hægt er að velja úr 8 flokkum, þ.e.; Hönnun og arkitektúr, Menning og fræga fólkið, Tækni og vísindi, Viðskipti og stjórnmál, Ferðalög og náttúran, Bílar og samgöngur, Matur og heilsa og Tíska og ...
Efling Svansins
Svanurinn náði góðum árangri á árinu 2009. Mikill áhugi er meðal íslenskra fyrirtækja fyrir Svansvottun í kreppunni. Ein af ástæðum þessa aukna áhuga fyrir vottun er vistvæn innkaupastefna ríkisins sem var innleidd í vor. Stefnan hefur að leiðarljósi að minnka umhverfisáhrif opinberra innkaupa og bæta samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja sem þurfa að bjóða umhverfisvænni valkosti til að mæta kröfum ...
Íslandsnefnd Alþjóðaorkuráðsins (ICE-WEC) í samstarfi við tækni og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík standa fyrir erindi, föstudaginn 5. mars kl. 15:00-16:00 í stofu M.1.01 (Bellatrix) í húsnæði HR við Nauthólsvík.
Global Energy - Building 21st Century Bridges
Dr. Scott W. Tinker, Bureau of Economic Geology, University of Texas
The bridge from a fossil energy present to an alternate ...
Í tilkynningu frá 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði segir:
- Kynningarfundur í Reykjavík á þriðjudaginn, 9. mars, kl. 14:00 í KHÍ
- Efnt verður til kynningarfunda víða um land á næstu vikum.
- Opið umsagnarferli um niðurstöður faghópa stendur yfir 8. mars - 19. apríl.
- Skýrslu og margskonar upplýsingar um niðurstöður faghópa er að ...
Ferðamálastofa hefur tekið ákvörðun um úthlutun styrkja vegna úrbóta á ferðamannastöðum fyrir árið 2010. Alls bárust 260 umsóknir, sem er um 18% fjölgun frá 2009 sem þá var metár.
Mörg áhugaverð verkefni
Heildarupphæð sem sótt var um var um 510 milljónir króna en til úthlutunar að þessu sinni voru 48 milljónir króna, eða 9.4%. Umsóknir voru almennt mjög vel ...
Ráðstefna um framfarir í garðyrkju er afmælisráðstefna Garðyrkjufélags Íslands en hún verður haldin í ráðstefnusal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 þ. 5. mars frá kl. 13:00 - 17:30. Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá:
13:00 - 13:10 Setning ráðstefnunnar Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður GÍ
13:10 - 13:20 Ávarp umhverfisráðherra - Svandís Svavarsdóttir
13:20 - 13:50 ...
Á 17. Stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun verður fjallað um bráðnun jökla í Himalayafjöllum og loftslagsskýrslu Sameinuðu þjóðanna. Þorsteinn Þorsteinsson, jöklafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, mun flytja erindi um útbreiðslu jökla í Himalayafjöllum og stöðu þekkingar á afkomu þeirra. Hann mun einnig greina frá margumtalaðri umfjöllun IPCC skýrslunnar varðandi spár um bráðnun
jöklanna á komandi áratugum. Þá ...
Umhverfisráðuneytið hefur látið þýða á íslensku svör ráðuneytisins við spurningalista framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um umhverfismál. Spurningalistinn var unninn í tengslum við aðildarumsókn Íslands að sambandinu.
Hægt er að nálgast svörin á heimasíðu umhverfisráðuneytisins á slóðinni: www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/IslandESBsvor.pdf.
Í tilefni 20 ára afmæli Svansins undirbýr Umhverfisstofnun markaðsátak til að efla umhverfismerkta vöru og þjónustu á Íslandi. Umhverfisstofnun leitar nú að samstarfsaðilum meðal smásöluverslana, heildsala, innflutningsaðila, leyfishafa og umsækjenda Svansins til að taka þátt í átakinu. Fundurinn verður haldinn á Grand hótel, Háteig B, fimmtudaginn 11. mars, kl. 13:00-16:00
Undirbúning átaksins hefst með hugarflugsfundi og umræðum um ...
Alls eru 15 aðilar tilnefndir til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2010. Átta eru frá Svíþjóð, þrír frá Noregi, tveir frá Finnlandi og tveir frá Danmörku. Engar tilnefningar bárust í þetta sinn frá Íslandi og sjálfstjórnarsvæðunum Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum.
Umhverfisverðlaunin, sem nema 350.000 dönskum krónum, verða nú veitt í sextánda sinn og er þema þeirra vistvæn fjármálaumsýsla. Ekobanken í Svíþjóð ...
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað nefnd til að semja frumvarp til laga vegna innleiðingar reglna um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda (ETS).
Á grundvelli EES samningsins mun stór hluti losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi falla undir viðskiptakerfi ESB frá og með 1. janúar 2013. Þar er meðal annars um að ræða alla losun frá stóriðju, og er reiknað með að rúmlega ...
Húsbúnaðarrisinn Ikea hefur um árabil verið leiðandi afl á sviði umhverfisstarfs og íslenska verslunin tekur stöðugum framförum á því sviði. Lengi vel var erfitt að finna út úr því hvernig íslenska verslunin hygðist taka á umhverfismálum og fylgja stefnu keðjunnar en smátt og smátt bætast við þjónustuþættir gagnvart neytendum sem og innanhússvinna sem vert er að vekja athygli á.
Ingvar ...




