Lærðu að þekkja plönturnar, íslenskt nafn, latneskt nafn, blómskipun, lauf, vaxtarlag, vaxtarstað og blómgunartíma. Aðeins ef þú þekkir jurt verðurðu þess umkomin að finna hana út í náttúrunni, eða gróðrarstöðinni, og veist hvort þig langar að hafa hana í garðinum.
Þetta er auðveldasti hluti garðyrkjunnar, eins konar „hægindastólsgarðyrkja“. Allar skyndamlegar ákvarðanir sem þú tekur um nánasta umhverfi þitt verða að ...


KRAV merkið er opinbert merki fyrir lífræna ræktun matvæla í Svíþjóð skv. stöðlum IFOAM og hefur einnig þróað staðla fyrir m.a. sjálfbærar visthæfar fiskveiðar.
Christopher Vasey heldur fyrirlestur á Háskólatorgi i dag kl. 17:00 undir yfirsögninni: Þekking heimsins á náttúruvættum.
Mávi hefur nú fjölgað aftur við Tjörnina í Reykjavík, sennilega vegna þess að fæða hans í sjó hefur brugðist. Mávar leita fæðis í borginni og því er mikilvægt að draga úr óbeinum matargjöfum bæði með tryggum frágangi á matarleifum og með því að draga úr brauðgjöfum á Tjörninni á sumrin.
Grettishátíð er árlegur viðburður í Húnaþingi, sem verður nú haldin í 13. skipti helgina 8.-9. ágúst næstkomandi. Hátíðin er skemmtun heimafólks haldin til heiðurs kappanum Gretti sterka Ásmundarsyni. Fjölbreytt dagskrá er á hverju ári, sögustund að Bjargi, aflraunakeppni heimafólks, leikir fyrir börn, veitingar og ýmis önnur skemmtan, breytilegt á milli ára.
Sveitamarkaður með sögualdarívafi er nú starfræktur í Grettisbóli á Laugarbakka.
Í Bændablaðinu 12. tbl., frá 25. júní sl., var greint frá því á bls. 4 að líftæknifyrirtækið ORF-Líftækni ehf. hafi fengið leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi í Gunnarsholti á Rangárvöllum, fyrst á 200 fermetrum og síðan næstu árin á allt að 10 hekturum.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögur Orkuráðs um styrki úr Orkusjóði til rannsóknar- og kynningarverkefna fyrir árið 2009.

Umhverfisstofnun vinnur að undirbúningi friðlýsingar Skerjafjarðarsvæðisins í samræmi við náttúruverndaráætlun. Drög að tillögu til umhverfisráðherra um friðlýsingu innan bæjarmarka Garðabæjar, alls um 4,27 km2 liggja nú fyrir. Einnig er unnið að friðlýsingu nyrsta hluta Búrfellshrauns, Gálgahrauns í Garðabæ, alls um 1,08 km2.

Pósthússtræti var lokað í gær og verður áfram lokað um helgina vegna góðviðris. Betri aðstaða fyrir gangandi vegfarendur í miðborginni er eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík. Lokun götunnar í blíðviðri hefur lagst vel í bæði gangandi vegfarendur og þá sem reka veitingahús umhverfis Austurvöll.
„Örlandið Ísland er oft tekið sem fyrirmyndardæmi um virkjun endurnýjanlegrar orku. Næstum allt rafmagn er framleitt í jarðvarma- og vatnsaflsvirkjunum. Ég var nýlega í bíltúr á Íslandi og sá gufustrókana bera við himinn, öruggt merki um borholur á háhitasvæði. Sumir íslendingar spyrja sig hvursu lengi endurnýjanlega orkan er í raun endurnýjanleg“ en þannig byrjar blogggrein Kate Galbraith í New York ...
í maímánuði var tilkynnt um samkeppni um hönnun úr íslenskri ull undir yfirskriftinni „Þráður fortíðar til framtíðar“ en markmiðið með samkeppninni er að auka áhuga á fjölbreyttri hönnun þar sem notuð er íslensk ull, annað hvort eingöngu eða með öðrum efnisviði og verðlauna þá sem fara þar fremstir í flokki.