Náttúran.is óskar öllum velunnurum, viðskiptavinum og lesendum sínum gleðilegrar páskahátíðar.
![]()
![]()
Náttúran.is óskar öllum velunnurum, viðskiptavinum og lesendum sínum gleðilegrar páskahátíðar.
![]()
![]()
Ólafs sögu helga segir frá því að Knútur Danakonungur situr í York á Englandi og vill kalla til erfða í Noregi. Þegar Ólafi berast þær fregnir mælir hann þunglega: „Nú kallar hann til ættleifðar minnar í hendur mér. Kunna skyldi hann hóf að um ágirni sína. Eða mun hann einn ætla að ráða fyrir öllum Norðurlöndum? Eða mun hann einn ...
Krækiber og krækiberjasaft er ein af blá-fjólubláu íslensku fæðutegundunum.
Gott er að hreinsa krækiber, um leið og komið er heim, með því að hella þeim milli íláta við húshorn þar sem svolítil gola leikur um. Til þess þarf bala og best er að leggja klút í botninn til að þau skoppi ekki til. Við að hella þeim varlega fýkur ruslið ...
Kál hefur verið ræktað í nokkur þúsund ár. Líklega óx það fyrst á ströndum Miðjarðarhafsins og nafnið er latneskt. Fyrst er talið að villikál hafi verið tekið til ræktunar og síðan hafi það kál breiðst út úr görðunum um næsta nágrenni og orðið villt á ný. Það kál hafi svo aftur verið tekið til ræktunar og þannig hafi þetta gengið ...
Á vefsíðu Húsakipta er hægt að skrá og fá húsnæði á öllu landinu. Þannig er hægt að ferðast um landið, lána sína íbúð og fá aðra lánaða.
Vefsíða Húsaskipta gerir þér mögulegt að ferðast um Ísland án þess að borga fyrir hótel eða annars konar gistingu. Hugmyndin var lögð inn á Hugmyndatorg Höfuðborgarstofu sl. vor og vakti mikla athygli. Eðli ...
Fyrirtækið Te & Kaffi hefur fyst íslenskra fyrirtækja tekist að fá Fair Trade vottun (sanngirnisvottun, einnig þýtt sem réttlætismerking) á vöru hér á landi.
Kaffihrábaunir sem upprunanlega eru ræktaðar á grundvelli Fair Trade má ekki selja unnar (brenndar, malaðar og pakkaðar) sem slíkar án þess að framleiðsluyrirtækið sjálft fái leyfi FLO Fairtrade Labelling Organization til að merkja vöru sína sem ...
Umhverfis- og orkurannsóknasjóður OR styrkir rannsóknir á rafvæðingu samgangna
Rannsóknir á rafvæðingu samgangna hljóta rausnarlega styrki úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði Orkuveitu Reykjavíkur í ár enda lítur Orkuveitan svo á að grænir valkostir í samgöngum séu meðal helstu viðfangsefna í orkumálum landsins. Nú blæs bílaflotinn milljón tonnum af koltvísýringi út í loftið á hverju ári.
Nú er verið að hleypa af ...
„Ég veit að margir Reykvíkingar eru spenntir að koma áhugamáli sínu um matjurtarækt í framkvæmd, þessi samningur ætti að styðja vel við þann áhuga,“ sagði Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður umhverfis- og samgönguráðs í tilefni af samkomulagi Reykjavíkurborgar og Garðyrkjufélags Íslands um matjurtagarða við Stekkjarbakka í sumar.
„Garðyrkjufélagið getur með þessum samningi stutt við matjurtarækt með fræðslu og tengslum milli ræktenda ...
Vegna fréttar Ríkisútvarpsins um að heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis hafi vakið athygli umhverfisráðuneytisins á því að hún telji að mengun frá Hellisheiðavirkjun sé farin að valda óþægindum á höfuðborgarsvæðinu vill umhverfisráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.
Umhverfisráðuneytið lítur málið alvarlegum augum og hefur haft það til sérstakrar skoðunar undanfarna mánuði. Í kjölfar frétta í vetur af auknum styrk brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu ...
Umhverfisstofnun hefur fest kaup á tveimur nýjum svifryksmælum sem í síðustu viku voru settir upp á Akureyri. Annar mælirinn var settur upp við hlið gamla mælisins við Tryggvabraut en hinn var settur upp við leikskólann Flúðir.
Mælarnir eru af nýrri kynslóð loftgæðamæla, mjög fullkomir og fyrirferðalitlir. Úr gamla mælinum komu aðeins upplýsingar um sólahringsmeðaltal og lágu niðurstöður ekki fyrir fyrr ...
Samráðsfundur Reykjavíkurborgar og borgarbúa um endurnýjað Miklatún verður haldinn miðvikudaginn 6. maí á Kjarvalsstöðum kl. 17:00- 19:00. Fundurinn er liður í því verkefni að móta Miklatúnið til framtíðar. „Markmiðið er að fá sem Reykvíkinga úr öllum hverfum til að segja skoðun sína á Miklatúni og koma með tillögur að borgargarði,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður umhverfis- og samgönguráðs ...
Í gær hækkaði WHO viðbúnaðarstig sitt yfir á stig 4 og hér á landi var í kjölfarið viðbúnaðarstigið fært af óvissustigi og yfir á hættustig. Engar ferðatakmarkanir gilda aðrar en að fólki er ekki ráðlagt að fara til Mexikó að nauðsynjalausu.
Í kjölfarið hefur verið gripið til eftirfarandi aðgerða hér á landi
Í gær barst Náttúrunni bréf um að vefurinn hafi fengið styrk til áframhaldandi þróunar Græna Íslandskortsins/Green Map frá Iðnaðarráðuneytinu, en grænkortagerðin er samvinnuverkefni milli Náttúran.is, alþjóðlega verkefnisins Green Map Systems og Land- og Ferðamálafræðistofu Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
Styrkurinn gerir okkur kleift að halda áfram með rannsóknarvinnu og skráningar aðila á græna kortið með viðbótarflokkum sem spanna ...
Nýr vefur um tjaldstæði opnaði á dögunum en hjónin Jónína Einarsdóttir og Geir Gígja reka vefinn. Þar er hægt að leita að upplýsingum um tjaldstæði á hinum ýmsu landshlutum og fræðast um aðsæður á hverjum stað, opnunartíma, verð og séð myndir frá stöðunum. Einnig eru fréttir um opnanir tjaldstæða víða um land, grilluppskrfitir eru á síðunni auk þess sem hægt ...
Orð dagsins 28. apríl 2009
Bþflugnarækt í Evrópu gæti lagst af innan 10 ára ef svo heldur sem horfir, að mati alþjóðasamtaka býflugnaræktenda, Apimondia. Gríðarleg afföll hafa orðið í greininni síðustu ár. Þannig eyddust um 30% af öllum býflugnabúum í Evrópu á síðasta ári, eða samtals um 13,6 milljónir búa. Í einstökum löndum voru afföllin enn meiri, eða allt ...

Oliver Peterson heldur fyrirlestur á morgun miðvikudaginn 29. apríl, í stofu N-132 í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Olivier er leiðangursstjóri í 12 mánaða leiðangri, þar sem siglt er kringum Norður-Ameríku og síðan til Grænlands, Íslands og Norður Noregs, í þeim tilgangi að vekja athygli á loftslagsbreytingum og ræða við vísindamenn og heimafólk um sameiginlega ábyrgð jarðarbúa á umhverfi sínu.
Fyrirlesturinn ...
Orð dagsins 27. apríl 2009
Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, hefur viðrað hugmynd um að banna sölu á bensín- og díselbílum eftir 2015. Sala á tvinnbílum yrði þó leyfð eitthvað lengur. Með þessu móti telur Kristin að hægt verði að draga verulega úr neikvæðum áhrifum á umhverfið, um leið og bílaframleiðendum væru færð ný tækifæri upp í hendurnar.
Lesið frétt PlanetArk ...
Skipulagsstofnun í samstarfi við: Arkitektafélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skipulagsfræðingafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands, stendur fyrir ráðstefnu um mótun byggðar í Turninum, Smáratorgi 3, 20. hæð í Kópavogi þ. 30. apríl nk.
Skipulagsstofnun telur að full ástæða sé til að ræða stöðu skipulagsmála eins og hún er í ...
Myndin The World According to Monsanto verður sýnd í Iðnó í kvöld kl. 18:30 en Charlotte Ólöf Jónsdóttir Ferrier stendur fyrir dagsrá á alþjóðlega frædeginum (International Seeds Day) sem samanstendur af sýningu myndarinnar, erindi um erfðabreyttar lífverur og pallborðsumræðum. Charlotte Ólöf er nemandi í líffræði við Háskóla Íslands en hún mun halda erindi um stöðu erfðabreyttra lífvera í heiminum ...
Gavia Travel var eitt þeirra fyrirtækja sem kynnti starfsemi sína á málþinginu Græn störf - vistvænar áherslur í atvinnuppbyggingu sem umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga á Íslandi stóðu fyrir í Iðnó á Degi umhverfisins sl. laugardag.
Gavia Travel er ferðaþjónustufyrirtæki sem skipuleggur náttúru- og fuglaskoðunarferðir á Íslandi. Fyrirtækið er nýtt af nálinni en eins og frumkvöðullinn Hrafn Svavarsson sagði í ...
Strandlengja Reykjavíkur er hrein og hæf sem útivistarsvæði og til að böðunar. „Niðurstöðurnar eru sérlega ánægjulegar fyrir Reykjavíkurborg og alla þá sem leggja stund á sjóböð í Nauthólsvík,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar.
Valdir staðir á strandlengju Reykjavíkurborgar henta vel til útivistar og sjósund í Nauthólsvík ný tur nú mikilla vinsælda Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vaktar strandsjóinn umhverfis ...
Nemendahópar í Grunnskóla Siglufjarðar og Snælandsskóla í Kópavogi eru varðliðar umhverfisins 2009. Útnefningin fór fram á Degi umhverfisins 25. apríl. Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur hjá Umhverfis- og samgöngusviði standa fyrir keppninni.
Nemendaárgangur 1997 í Grunnskóla Siglufjarðar hlaut viðurkenninguna fyrir verkefnið Jaðrakan. Nemendur fylgdust með ferðum merktra jaðrakana frá Bretlandi til Íslands og tóku þátt í merkingum fugla. Einnig hafa ...
Í dag á „degi umhverfisins“ stóð umhverfisráðuneytið fyrir málþingi um græn störf í Iðnó en auk þess var úthlutað umhverfisverðlaunum umhverfisráðuneytisns „Kuðungnum“. Að þessu sinni hlaut sorphirðufyrirtækið Íslenska gámafélagið ehf Kuðunginn.
Áður hafa 14 fyrirtæki hlotið Kuðunginn en umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1994. Sjá nánar um hver hefur fengið Kuðunginn hér á Grænum síðum.
Íslenska gámafélagið hefur verið leiðandi ...
Málþing um strandmenningu á Norðausturlandi „Spegill fortíðar – silfur framtíðar“ verður haldið í Safnahúsinu á Húsavík laugardaginn 2. maí.
Dagskrá:

Í dag, 25. apríl, á degi umhverfisins eru 2 ár síðan þáverandi umhverfisráðherra Jónína Bjartmarz opnaði vefinn Náttúran.is við athöfn á Kjarvalsstöðum. Síðan þá hafa tvær konur sest í stól umhverfisráðherra og margt drifið á daga þjóðarinnar. Árið 2007 var útrásin á fullri ferð og ef til vill lítill hljómgrunnur fyrir sjálfbærum lífsháttum og nægjusemi í neyslu. Nú ...
Fyrir nokkrum vikum fékk Náttúran.is styrk frá Menntamálaráðuneytinu til að standa straum af kostnaði við að senda „Náttúruspil 52 góð ráð fyrir þig og umhverfið“ í skóla landsins. Stokkarnir fóru í póst í dag svo allir grunn- og framhaldsskólar mega því búast við að fá stokkinn sinn með póstinum á mánudaginn eða í síðasta lagi á þriðjudaginn.
Náttúran.is ...

Menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti, síðar iðnaðarráðuneyti, hafa frá árinu 2001 gert menningarsamninga við sjö samtök sveitarfélaga á Íslandi. Landið allt, utan höfuðborgarsvæðisins, er þannig tengt saman með menningasamningum og starfi sjö menningarráða. Samningarnir fela í sér markvissan stuðning ríkisins við menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði.
Ráðstefna 11.-12. maí
Nú er tímabært að ...
Síðasta vetrardag var rannsóknadeild Selaseturs Íslands á Hvammstanga opnuð með pompi og prakt. Við þetta tækifæri voru undirritaðir samstarfssamningar setursins við Veiðimálastofnun og Hólaskóla en starfsmenn frá báðum stofnunum hafa nú aðsetur í setrinu.
Starfsmaður Veiðimálastofnunar er Sandra Magdalena Granquist og mun hún stunda selarannsóknir en starfsmaður Hólaskóla er Per Åke Nilsson sem auk kennslu við skólann mun sinna rannsóknum ...
Orð dagsins 24. apríl 2008
Þrátt fyrir þrengingar í efnahagslífinu seldust vörur úr lífrænni bómull á heimsmarkaði fyrir um 3,2 milljarða Bandaríkjadala á árinu 2008, en það samsvarar um 63% aukningu frá fyrra ári! Gert er ráð fyrir að veltan í þessari verslun haldi áfram að aukast um 24-33% milli ára næstu tvö árin. Við hefðbundna bómullarræktun er notað ...
Vefur um Kaupmannahafnarfund Rammaáætlunar Sameinuðu þjóðanna um lofslagsbreytingar COP15 hefur litið dagsins ljós en á fundinum munu þjóðir heims reyna að ná samkomulagi um framhaldsaðgerðir við Kyoto bókunina en hún fellur úr gildi árið 2012. Kaupmannahafnarfundurinn verður haldinn dagana 7. - 18. desember nk. og er undirbúningur í fullum gangi á öllum vígstöðvum. Bæði undirbýr hver þjóð sig og leggur mikla ...
Blátunna er sorptunna, svipuð þeirri sem nú þegar eru við hvert heimili undir almennt sorp. Blátunna er þó með bláu loki til aðgreiningar frá hinni. Blátunna er ætluð undir pappírsúrgang eins og dagblöð, hvítan prentpappír, sléttan pappa eins og fernur og morgunkornskassa og einnig minni bylgjupappakassa.
Blátunnan er val íbúa þ.e.a.s. það er val hvers heimilis að ...
Orð dagsins 22. apríl 2008
Vísindamenn við Háskólann í San Fransisco segjast hafa fundið nýja aðferð til að framleiða bensín úr plöntuúrgangi. Aðferðin byggir á „samstarfi“ bakteríu, sem upphaflega fannst á frönskum ruslahaug upp úr 1980, og gersvepps.
Umrædd baktería getur framleitt asetöt úr plöntuleifum, sem gerillinn breytir síðan í metþlhalíðgas, sem hægt er að safna og breyta í vökva ...
Í dag er Dagur Jarðar haldinn hátíðlegur um allan heim en Dagur Jarðar var fyrst haldlinn hátíðlegur þ. 22. apríl 1970 í Bandaríkjunum þegar um 20 milljónir manna tólku þátt í hátíðahöldunum. Ákvörðun um að efna til Dags Jarðar var tekin árið áður á ráðstefnu grasrótarsamtaka á sviði umhverfisverndar í Bandaríkjunum. Á þeim tíma var umræðan um offjölgun í heiminum ...
Samkvæmt öruggum heimildum Saving Iceland voru aðgerðirnar gerðar af þremur mismunandi hópum, en ekki einum, eins og háðar fréttastofur hafa talið. Saving Iceland er einnig kunnugt um að aðgerðasinnarnir séu allir Íslendingar. Þetta gefur til kynna að um sé að ræða öflugan hóp aðgerðasinna sem beitir sér gegn stóriðjustefnunni hér á landi. Saving
Iceland lýsir yfir fullum stuðningi við hópinn ...
Málþing um framtíð Ólafsdals í Gilsfirði, veður haldið fimmtudaginn 23. apríl, sumardaginn fyrsta, í Dalabúð, Búðardal kl. 13:00-17:30.
Málþingið er haldið í samvinnu við Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri. Það er öllum opið en æskilegt að skrá sig fyrirfram.
Dagskrá:
13:00 Málþingið sett - Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsdalsfélagsins
13:15 Saga Ólafsdals - Árni Daníel Júlíusson, sagnfræðingur
13:45 Svartárkot ...
Á höfuðborgarsvæðinu er úrval heilsumatstaða orðið mjög fjölbreytt þó að það sama sé ekki upp á teninginn þegar fjær dregur borginni.
Aðeins á nokkrum stöðum á landinu t.d.. á Staðnum - náttúrulega og Friðriki V á Akureyri, Heislustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði og Grænu könnunni að Sólheimum eru starfandi matstaðir sem gefa sig sérstaklega út fyrir að elda heilsusamlega grænmetisrétti með ...
Orð dagsins 21. apríl 2008
Í Noregi jókst sala á réttlætismerktum (sanngirnisvottuðum) vörum um tæp 74% milli áranna 2007 og 2008, en veltan í þessum viðskiptum fór upp í rúmlega 250 milljónir norskra króna á síðasta ári. Þar munar mestu um stóraukna blómasölu, en blómin eru nú komin fram úr kaffi hvað norskar sölutölur varðar. Þá jókst sala á réttlætismerktum ...
Umhverfisstofnun auglýsir, í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð, námskeið fyrir áhugafólk um sjálfboðastörf í náttúruvernd. Námskeiðið fer fram í Skaftafelli dagana 1. til 3. maí. Sjálfboðastörf fela í sér góðan félagsskap í náttúru Íslands þar sem fólk leggur sitt af mörkum til náttúruverndar. Ekki má heldur gera lítið úr því hversu heilsusamleg slík útivinna getur verið. Þátttaka í námskeiðinu gefur kost á ...
Orð dagsins 20. apríl 2009
Norska krónprinsparið Hákon og Mette Marit hefur ákveðið að taka upp lífræna búskaparhætti á búgarði sínum, Skaugen. Lífrænn búskapur er nú stundaður á um 2.500 bæjum í Noregi, en Skaugen verður einn af þeim stærstu þegar hann bætist í hópinn. Þar er nú ræktað korn og fóður á um 125 hekturum, búið hefur 220 ...
Á vef Fuglaáhugamanna í Hornafirði fuglar.is segir að fyrstu kríurnar séu komnar til landsins, en 10-15 fuglar hafa sést við Ósland á Höfn. Það var Björn Arnarson sem sá fuglana. Fyrstu kríurnar sjást yfirleitt á bilinu 20.-22. apríl en meginn þorri fuglana kemur svo um mánaðarmótin apríl/maí.
Krían var einn þeirra fugla sem nefndur var sem mögulegur ...
Art of Living, AOL, er einstök öndunartækni og hugmyndafræði, sem Sri Sri Ravi Shankar er höfundur að. Upprunnið úr fræðum Yoga, Bhagavad Gita, og öðrum indverskum Vedic fræðum og heimspeki.
„Hugsanir okkar er á endalausu flakki milli fortíðar og framtíðar. Við höfum áhyggjur af einhverju sem sem koma skal eða erum að velta okkur uppúr einhverju sem er löngu liðið ...
Michelle Obama forsetafrú Bandaríkjanna hóf matjurtarækt við Hvíta húsið í gær. „Eldhúsgarðurinn“ er staðsettur nálægt gosbrunninum á suðurflötinni.
Nemendur úr Bancroft grunnskólanum frá Columbia hjálpuðu forsetafrúnni með fyrstu handtökin í garðinum og munu halda áfram að taka þátt í sáningu og ræktun í matjurtagarðinum. Á dagskrá er að gróðursetja ávextatré, grænmeti og kryddjurtir á næstu vikum og munu börnin einnig ...
Frumvarp Össurar Skarphéðinssonar um heimild til samninga um álver í Helguvík var samþykkt á Alþingi í dag og féllu atkvæði svo: 38 já, 9 nei, 1 greiddu ekki atkv., 15 fjarstaddir. Það voru þingmenn VG ásamt Merði Árnasyni (S) sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Þórunn Sveinbjarnardóttir sat hjá. En aðrir viðstaddir þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu. Á síðustu dögum þingsins ...
Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna EPA lýsti því yfir í dag að útblástur gróðurhúsalofttegunda ógnaði heilsufari manna og lífsskilyrðum, bæði fyrir núverandi og komandi kynslóðir.
EPA sagði að niðurstöður þessar leiddu ekki sjálfkrafa til setningu laga og reglna, en ...
Orð dagsins 17. apríl 2009
Vísindamenn í Singapúr segjast hafa fundið nýja leið til að vinna metanól úr koltvísýringi. Koltvísýringurinn er þá látinn hvarfast við vetnissílön (sem að grunni til innihalda kísil og vetni) í návist tiltekinna efnahvata (N-heterocyclic carbenes (NHCs)), sem sagðir eru lausir við eitrunaráhrif. Þessi efnahvörf geta átt sér stað við stofuhita, sem gerir það að verkum ...
Orð dagsins 16. apríl 2008
Finnska ríkisstjórnin hefur ákveðið að tekið skuli tillit til umhverfisþátta í öllum innkaupum ríkisins og stofnana þess frá og með árinu 2015. Jafnframt er mælst til þess að a.m.k. 25% innkaupa til sveitarfélaga verði orðin vistvæn árið 2010 og 50% árið 2015. Árleg innkaup opinbera geirans í Finnlandi nema um 27 milljörðum evra ...
Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri í dag um kl. 16:45.
Gestastofan verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum (Sjá frétt).
Við þetta tækifæri mun umhverfisráðherra jafnframt undirrita reglugerð um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs til norðurs og verður þá Trölladyngja í heild, Askja og stór hluti Ódáðahrauns hluti af þjóðgarðinum ...
„Það er við hæfi að fyrsta vistgatan í Reykjavík verði í Grófinni því þar er miðja Reykjavíkur og þaðan liggja allar leiðir,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkurborgar í tilefni af því að ráðið hefur samþykkt að auka umhverfisgæði norðan til í Kvosinni með því að gera nokkra götukafla að vistgötum í samræmi við umferðarlög.
„Ímynd Íslands“ fyrirlestraröð INOR og ReykjavíkurAkademíunnar heldur áfram í kvöld með fyrirlestrunum:
Athugasemdir og viðbrögð: Guðmundur Oddur Magnússon. Allir velkomnir.
ReykjavíkurAkademían er í gamla JL-húsinu að Hringbraut 121, 4 hæð í Reykjavík. Sjá nánar um Ísland og ímynd norðursins á ...
Orð dagsins 16. apríl 2009
Vegna hlýnandi loftslags gætu farfuglar þurft að leggja á sig allt að 400 km aukaflug vor og haust þegar líður á 21. öldina. Eftir því sem hlýnar færast sumarstöðvarnar norðar, en minni breytingar verða væntanlega á vetrarheimkynnunum. Meðal fugla sem gætu orðið illa úti í þessu má nefna ýmsa söngvara, en sumir þeirra eru allt ...
Þegar ég kom til Íslands í fyrsta sinn, fyrir 13 árum síðan, var ég hissa að sjá að þótt landið byggi yfir gríðarlegu magni af hreinni orku, sérstaklega miðað við mannfjölda, væri Ísland samt ekki skuldlaust og ríkasta landið í heimi. Ég fann svo svarið mjög fljótlega. Auðlindir , sérstaklega orkuauðlindir Íslands, voru notaðar einfaldlega sem pólitískt vopn og aðallega í ...
Myndakvöld Ferðafélags Íslands í kvöld miðvikudagskvöldið 15. apríl fjallar um Austurdal í Skagafirði. Sýndar verða myndir og sagt frá dalnum. Kynntar verða gönguferðir um dalinn, bæði dags- og helgarferðir. Myndasýningin verður í húsnæði Ferðafélags Íslands að Mörkinni 6 í Reykjavík.
Austurdalur er afar friðsæll, býr yfir mikilli náttúrufegurð og lætur engan ósnortinn sem um hann fer. Gísli Rúnar Konráðsson sýnir ...
Á degi umhverfisins 25. apríl boða umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga til málþings um vistvæna nýsköpun og nýjar áherslur í atvinnuuppbyggingu. Málþingið fer fram í Iðnó frá kl. 13:00 til 15:00.
Margar þjóðir heims hafa nú mikinn áhuga á að leggja sig fram við að skapa atvinnutækifæri á sviði vistvænnar nýsköpunar, þróunar og þjónustu. Fyrirsjáanlegt er að ...
Njörður P. Njarðvík, prófessor emeritus í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur um Dalai Lama, andlegan og veraldlegan leiðtoga Tíbeta og friðarverðlaunarhafa Nóbels, í tilefni heimsóknar hans til Íslands í byrjun júní. Fyrirlesturinn verður haldinn á vegum Trúarbragðafræðistofu Hugvísindasviðs HÍ miðvikudaginn 15. apríl kl. 15:00 á Háskólatorgi í stofu 102. Buddamunkurinn Tenzin Gyatso, fjórtándi Dalai Lama í Tíbet ...
Ferðafagnaður verður haldinn í sjötta sinn laugardaginn 18. apríl næstkomandi. Viðburðurinn býður upp á möguleika í nýsköpun og hugmyndaflæði í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Hugmyndatorg á Höfuðborgarstofu
Hugmyndatorg verður opið milli 15:00 – 18:00 dagana 16. – 20. apríl í glerskálanum fyrir framan Upplýsingamiðstöð ferðamanna, Aðalstræti 2. Þar verða fulltrúar ferðaþjónustunnar* – sem og aðrir áhugasamir íbúar höfuðborgarinnar hvattir til að koma ...
Samtök um sögutengda ferðaþjónustu (SSF) stendur fyrir málþingi í Þjóðmenningarhúsinu þ. 16. apríl n.k. í samvinnu við Menntamálaráðuneytið og Útflutningsráð Íslands. Fjallað verður um menningar- og söguferðaþjónustu á Mön, Gotlandi og á Íslandi og tækifæri til nýsköpunar á þeim vettangi hérlendis.
Dagskrá:
Öll strandlengja Höfuðborgarsvæðisins með í Ferðafagnaði
Umhverfisvænn ferðamáti er framtíðareinkenni Höfuðborgarinnar og því býður Íslenski fjallahjólaklúbburinn öllum í ratleik á Ferðafagnaði sem best er að leysa á reiðhjóli. Ferðafagnaður fer fram laugardaginn 18. apríl nk. Frá kl. 12:00 – 18:00 verða 34 póstar staðsettir við strandlengjuna frá Korpúlfsstaðagolfvelli í norðri að Ástorgi í Hafnarfirði í suðri. Bilið á milli ...
Áform eru uppi um að láta sólarorku sjá heilli borg á vesturströnd Florída fyrir rafmagni. Borgin, sem nefnist Babcock Ranch, verður byggð upp á næstu árum, og er ætlunin að hefjast handa árið 2011. Þarna eiga að rísa 19.500 íbúðir sem rúmað geta um 45.000 manns. Sett verður upp 75 MW sólarorkuver sem á að geta framleitt alla ...
Sigríður Erla Guðmundsdóttir keramikhönnuður hefur hannað séríslenskan leirpott í samvinnu við vöruhönnuðina Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Brynhildi Pálsdóttur. Leirinn fá þær úr landi Steinólfs Lárussonar bónda og dóttur hans Höllu Steinólfsdóttur í Ytri-Fagradal en notagildi pottsins var í byrjun sérstaklega hugsað fyrir eldamennsku á hvannarlambakjöti sem kemur frá búi Höllu. Sigríður Erla rekur fyrirtækið LEIR7 í Stykkishólmi en Guðfinna og ...
Alvarlegar athugasemd hafa borist frá Félagi umhverfisfræðinga á Íslandi vegna auglýsingar þingmanna Sjálfstæðisflokks í Morgunblaðinu þann 8. apríl 2009.
Í Morgunblaðinu í gær, 8. apríl, birtist heilsíðuauglýsing þingmanna Sjálfstæðisflokksins þar sem vitnað er í nokkrar umsagnir fræðimanna og sérfræðinga og talað um harða gagnrýni þeirra á frumvarp til breytinga á stjórnarskrá. Félag umhverfisfræðinga á Íslandi vill koma eftirfarandi á framfæri ...
Guðmundur H. Gunnarsson leiðir starf Matvælasmiðjunnar á Höfn
Þann fimmta nóvember síðastliðinn opnaði Matís Matvælasmiðju á Höfn í Hornafirði. Um er að ræða starfsemi sem á að styðja við frumkvöðla og fyrirtæki sem vilja hefja virðisaukandi smáframleiðslu matvæla úr íslensku hráefni. Markmiðið með Matvælasmiðjunni er að hægt verði að fullgera vörur sem hægt er að selja beint til neytenda. Í ...
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur auglýst eftir tilboðum í byggingu Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri, en hún verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum. Útboðið er unnið samkvæmt ný samþykktri stefnu ríkisstjórnarinnar um vistvæn innkaup.
Í stefnu ríkisstjórnarinnar er sagt fyrir um hvernig samþætta eigi umhverfissjónarmið í innkaupum hjá ríkinu. Íslenska ríkið kaupir vörur, þjónustu og verk ...
Umhverfisráðuneytið mun styðja uppbyggingu og rekstur upplýsingamiðstöðvar og gestastofu á Álftanesi samkvæmt viljayfirlýsingu sem Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra skrifað undir í dag.
Sveitarfélagið Álftanes hyggst í tengslum við friðlýsingu Skerjafjarðar setja á stofn upplýsingamiðstöð sem verður hluti af fyrirhuguðu menningar- og náttúrufræðasetri á Álftanesi. Markmið með rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar er að samflétta kynningu á náttúru Álftaness og Skerjafjarðar, svo og sögu Bessastaða ...
Samkvæmt Facebook hópnum „Búsáhaldabyltingin taka 2“ munu 294 hafa staðfest þátttöku sína á boðuðum mótmælum kl. 18:00 í dag. Aðrir 521 munu reyna að mæta (staðan kl. 13:40).
Í fundarboði segir:
„Sjálfstæðismenn ætla sér að tala fram að kosningum og koma þannig í veg fyrir að stjórnlagaþing verði sett á fót og að stjórnarskránni verði breytt.
Í því ...
Íslenski fjallahjólaklúbburinn býður landsmönnum á reiðhjóla viðgerðanámskeið
Með hækkandi sól og hlýnandi veðri gerist það árvisst að reiðhjólin eru tekin út úr bílskúrnum, keðjan smurð og hjólað af stað; nema hvað: Fljótlega kemur í ljós að gírarnir eru vanstilltir, bremsurnar ekki alveg í lagi og jafnvel rifjast það upp hvers vegna hjólið fór inn í skúr síðastliðið haust – jú það ...
Draumalandsins í kvikmyndaformi hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og á forsýningu myndarinnar gærkveldi var Háskólabíó pakkfullt.
Kvikmyndin Draumalandið er allt öðruvísi en bókin enda var ekki við öðru að búast. Draumalandið er heimildamynd þar sem efni bókar er tekið úr hugarfylgsum höfundarins Andra Snæs Magnasonar og fært inn í raunveruleikann. Verkið, sem áður var hreint hugverk eins manns, Andra ...
Síðastliðin 40 ár hefur Ísland, lítið land í norðurhöfum, leitað stórra lausna í orku-, atvinnu-, og efnahagsmálum. Á þessu málþingi var fjallað um stóriðjustefnu stjórnvalda í ljósi náttúruverndar, hnattvæðingar og efnahaglegs sjálfstæðis.
Sérstakur gestur á málþinginu var bandaríski rithöfundurinn John Perkins, höfundur The Confessions of an Economic Hitman. Perkins er staddur hér á landi í tilefni af frumsýningu heimildamyndarinnar Draumalandið ...
Michael Hudson rannsóknarprófessor í hagfræði í Missouriháskóla kom fram í Silfri Egils á sunnudaginn og vakti framsaga hans að vonum mikla athygli. Michael Hudson telur það óraunhæft að íslenska þjóðin taki á sig skuldir „sem hún geti hvort eð er ekki greitt“. Með því að semja við IMF (Alþjóðagjaldeyrissjóðinn) værum við að kalla yfir okkur ógæfu sem aðeins gæti haft ...

Umhverfisnefnd Alþingis tók í gærkvöldi ákvörðun um að stefna að því að Íslendingar verði enn meiri umhverfismengarar á grundvelli ákvæðis 14/CP.7, [íslenska ákvæðið]* en þegar er raunin með því að samþykkja þingsályktunartillögu meirihluta nefndarinnar, Framsóknar- og Sjáflstæðismanna sem fjallar um svokallaða „hagsmuni Íslendinga í loftslagsmálum“. Hugmynd nefndarinnar með samþykkt tillögunnar er að knýja á um að ríkisstjórnin ...
John Perkins, höfundur metsólubókar1 um sinn eigin feril sem „efnahagsböðuls“ (Economic Hit Man) er staddur hér á landi vegna væntanlegrar frumsýningar á Draumalandinu kvikmyndar byggðri á samnefndir metsölubók Andra Snæs Magnasonar, en John Perkins kemur einmitt fram í myndinni. John kom í viðtali til Egils Helgasonar í Silfri Egils í gær og var viðtaiðl sannarlega áhrifaríkt, þó ekki sé ...
Barack Obama, bandaríkjaforseti hvatti leiðtoga 20 helstu iðnríkja heims sérstaklega til að bregðast við loftslagsbreytingum á næstu mánuðum og árum.
Hann sagði að verkefni tengd atvinnusköpun og endurbyggingu hagkerfa út um allan heim mættu ekki bitna á umhverfinu.
„Við megum ekki gleyma því sem virkilega skiptir máli,“ sagði Obama.
„Störf koma og fara en sumar náttúruauðlinda koma ekki aftur er ...
Norræna ráðherranefndin hefur gefið út framkvæmdaáætlun í umhverfismálum 2009-2012. Í áætluninni er stefnumótun í norrænu umhverfisstarfi tíunduð og m.a. fjallað um loftslagsmál, hafið, líffræðilega fjölbreytni og sjálfbæra neyslu og framleiðslu.
Norrænu umhverfisráðherrarnir bera meginábyrgð á pólitískum þáttum umhverfissamstarfsins en embættismannanefnd skipuð af ráðherrunum ber ábyrgð á framkvæmd umhverfisáætlunarinnar. Framkvæmdaáætlun í umhverfismálum 2009-2012.
Þá hefur einnig verið gefin út norræn ...
Austurlensk heimspeki og búddatrú er um 2500 ára. Hæstu hæðum sínum hefur hún náð t.d. á hásléttu Tíbets, þar sem Dalai Lama ríkti áður en hann var hrakinn í útlegð af kínverjum. Það sem tíbetskir búddamunkar iðka öðru fremur er hugleiðsla og er nú hægt að fá kennslu í tíbetskri hugleiðslu hjá Hugleiðslu- og friðarmistöðinni, hugleidsla.is.Nordic Tourism - Inspiration - Innovation - Destination
Iðnaðarráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Norræna Nýsköpunarmiðstöðin, í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina, efna þann 28. apríl næstkomandi til norrænnar ráðstefnu á Ísafirði sem fengið hefur heitið Nordic Tourism. Ráðstefnustjóri er Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri.
Á ráðstefnunni verður áhersla lögð á nýsköpun í ferðaþjónustu, uppbyggingu áfangastaða og viðbrögð ferðaþjónustunnar við efnahagserfiðleikum.
Fjölmargir fyrirlesarar munu koma og miðla ...
Nagladekk eru óleyfileg undir bifreiðum eftir 15. apríl 2009. Nagladekk spæna upp malbik hundrað sinnum hraðar en önnur dekk og eru áhrifamikill valdur að svifryksmengun í Reykjavík. Svifryk fór fjórum sinnum yfir heilsuverndarmörk í marsmánuði og hefur farið sex sinnum yfir á árinu. Ökumenn eru hvattir til að skipta um hjólbara við fyrsta tækifæri.
Sjá nánari upplýsingar um svifryk og ...
Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Lúðvík Geirsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar munu friðlýsa fimm svæði innan marka Hafnarfjarðar kl. 13:00 á morgun, föstudaginn 3. apríl. Athöfn fer fram við Hleina, skammt frá Hrafnistu í Hafnarfirði. Aldrei hafa svo mörg svæði verið friðlýst í sama sveitarfélaginu í einum vettvangi.
Þrír fólkvangar og tvö náttúruvætti verða friðlýst til útivistar og verndunar á lífríki og ...
Náttúruverndarsamtök Íslands vilja vekja athygli á yfirlýsingu Breytenda - ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar:
Við Breytendur, ungliðahreyfing Hjálparstarfs kirkjunnar, lþsum yfir ótta okkar vegna fyrirhugaðrar þingsályktunnar um Íslandsákvæði Kyoto bókunarinnar um takmörkun útblásturs gróðurhúsalofttegunda. Ályktunin felur m.a. í sér að Íslendingar sæki um áframhaldandi undaný águ til að auka útblástur gróðurhúsalofttegunda á meðan önnur lönd heimsins sameinast um að minnka útblástur. Þetta ...
Í tilkynningu ...
Draumalandið verður frumsýnd þ. 8. apríl nk. en myndin hefur verið þrjú ár í vinnslu og er líklega ein viðamesta heimildarmynd sem gerð hefur verið á Íslandi. Draumalandið er ein mest selda og umtalaðasta bók síðustu ára á Íslandi. Kvikmyndinni er leikstýrt af Þorfinni Guðnasyni og Andra Snæ Magnasyni.
Í viðtali í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í gær furðar Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sig á því að fram sé komin skýrsla um mat á umhverfisáhrifum jarðvarmavirkjunar við Gráuhnúka, þegar ekki liggi fyrir rammaáætlun um svæðið. Rannsóknarboranir voru leyfðar við Gráuhnúka í lok nóvember 2007 (Sjá frétt)
Skipulagsstofnun birti á vef sínum seint í gærkvöldi tillögu að áætlun um mat á ...
Samtök um bíllausan lífsstíl hafa það meginmarkmið að stuðla að bættum ferðavenjum á höfuðborgarsvæðinu og telja það afar þýðingarmikið málefni í nútímasamfélagi.
Flestir Íslendingar fara til vinnu einir á einkabíl, með tilheyrandi umferðarþunga, slæmum loftgæðum og kostnaði, sem lendir á þeim sjálfum, vinnuveitendum þeirra og samfélaginu öllu. Þær ferðavenjur verða ekki skýrðar með landfræðilegri legu, veðráttu, þéttleika byggðar eða öðrum ...
Djúpstæður ágreiningur um frumvarp iðnaðarráðherra um Helguvíkurálver kom fram milli ríkisstjórnarflokkanna í iðnaðarnefnd Alþingis í morgun og fékkst málið ekki afgreidd út úr nefndinni. Kristján Már Unnarsson.
Frumvarp Össurar Skarphéðinssonar iðnarráðherra gerir ráð fyrir að ríkisstjórninni verði heimilt að gera sérstakan fjárfestingarsamning við Norðurál vegna álvers sem nú er verið að reisa í Helguvík en samningurinn er talinn forsenda þess ...