Sá gamli íslenski siður að borða kæsta skötu á Þorláksmessu er upprunninn á Vestfjörðum. Á Suðurlandi var ekki alltaf kæsta skötu að fá og var því horaðasti harðfiskurinn oft soðinn og snæddur á Þorláksmessu. Á Þorláksmessu mætti fnykurinn / lyktin af kæstri skötunni hangikjötsilminum, og jók þannig á tilhlökkunina eftir hangiketinu.
Grafík: Skata, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.


Jólasveinninn ber poka fullan af gjöfum til byggða. Á táknrænan hátt hengjum við síðan poka á jólatréð, eins og til að taka við gjöfum náttúrunnar.
Kertaljósið er í hefðbundnu jólahaldi okkar jólaljósið sjálft. Ljósið býr yfir djúpstæðri merkingu um jólaboðskapinn. Það býr yfir frumkraftinum; eldinum sem er táknrænn fyrir lífið sjálft, einkum hið innra líf. Það er ljósið innra með okkur; trúin, vonin og kærleikurinn.
Húsið sem slíkt stendur fyrir okkur sjálf, sálina og bústað hennar í líkamanum. Húsið er bakað í ofni (hreinsunareldi), skreytt og borðað til næringar og gleði, ekki síst til að halda upp á lífið sjálft.
Stjörnutáknið er eitt elsta tákn mannkyns og var notað löngu fyrir ritmál. Stjarnan var notuð sem vörn gegn illum öndum og er tákn öryggis og innri hamingju. Í kristinni trú er stjarnan tákn boðunar og komu ...
Á Íslandi er til aragrúi upplýsingakorta og vefsjáa með upplýsingum um allt milli himins og jarðar, allt frá staðsetningum brunahana í Reykjavík;
Tækifæriskort Skógræktarfélags Íslands nýtast við margvísleg tækifæri - sem jólakort, afmæliskort, boðskort og margt fleira. Kortin eru auð að innan, þannig að þau nýtast sem jólakort, afmæliskort, boðskort eða hvað sem fólki dettur í hug.
Samkvæmt vefsíðunni WTD “hafa 2,5 milljarðar manna í heiminum ekki aðgang að góðri hreinlætisaðstöðu sem veldur miklum heilbrigðisvandamálum og hefur þær afleiðingar að 1, 8 milljón manna látast árlega, aðallega börn.” og “tilfellið er að meira að segja ríkustu þjóðir heims eiga við salernisvandamál að stríða – allt frá skítugum almenningssalernum að frárennslum sem menga umhverfi okkar.”
„Sóley” – spánný íslensk húðsnyrtivörulína, sem er 100% náttúruleg, umhverfisvæn og án allra óæskilegra aukaefna, er nú komin á markað á Íslandi. “Sóley” samanstendur af eyGLÓ andlitskremi, fersk andlitsfroðu, nærð hreinsivatni, hrein andlitsmjólk, mjúk líkamsskrúbbi og GRÆÐIR fjölskyldusjampói, ásamt birkiR, sérstakri herrasápu fyrir húð og hár.
Á vefsíðunnni
Í vikunni hleypti sænski bílaframleiðandinn Volvo af stað viðamiklu verkefni sem er ætlað að vekja athygli á hvernig sé hægt að hafa jákvæð áhrif á umhverfi okkar allra.
Það var ánægjulegt að sjá í frétt Morgunblaðsins síðastliðinn laugardag að mengun af völdum brennisteinsvetnis mældist undir viðmiðunarmörkum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í Hveragerði.
Fulltrúar Breytenda, ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar, afhentu Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, undirskriftir sem hreyfingin safnaði undir yfirskriftinni hlýnun jarðar er mannréttindamál. Undirskriftunum hafði verið safnað á íspinnaprik við ýmsa gjörninga og atburði í sumar og haust og úr þeim var byggður hvirfilbylur sem er táknrænn fyrir þann vanda sem steðjar að jörðinni, verði ekkert að gert. (Sjá myndir í viðhengi)
Landið er okkar dýrmætasta auðlind og tilgangslaus skemmdarverk á því eru óþolandi. Þetta er meðal þess sem segir í meðfylgjandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um átak gegn akstri utan vega. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. nóvember síðastliðinn. Hún segist ætla að herða róðurinn í baráttu gegn akstri utan vega og vilja vinna að því máli með öllum ábyrgum samtökum ...
Hvað býr að baki lífefldri ræktun?
Alls bárust 27 tilnefningar til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2009 en frestur rann út í lok október. Tilkynnt verður um verðlaunahafann þann 19. nóvember næstkomandi.