Eðlilega upplifum við hverja fæðingu sem nýja byrjun. Og öll höfum við hafið lífsbraut okkar sem lítið barn. En er það ekki grípandi þetta augnatillit sem getur mætt okkur, þegar lítið barn horfir beint í augu okkar? Svo mikil alvara, slíkur þroski og íhygli er mætir okkur. Ég upplifi oft á slíku augnabliki sterka andlega nærveru, já eiginlega égkraft. Og ...
Á vef Orkuseturs er reiknivél sem hjálpar fólki að bera saman stofn- og rekstrarkostnað metanbíla og hefbundinna bíla með afar einföldum hætti. Reiknivélin sýnir að spara má mörg hundruð þúsund í eldsneytiskostnað og nú eru metanbifreiðar líka á hagstæðara verði. Aukabónusinn er svo tilheyrandi gjaldeyrissparnaður og minni útblástur gróðurhúsalofttegunda.
Sjá metanreiknivél á vef Orkuseturs.
Engin afsökun
Það hefur sjaldan ...

Hvers vegna er mikilvægt að við virkjum náttúruvitund barna?
- Í dag eru börnum veitt færri tækifæri til að vera úti náttúrunni.
- Lítil snerting við náttúruna hefur neikvæð áhrif á þroskun barnsins og dregur úr þekkingu þess.
- Börn sem vaxa upp án nokkurra tengsla við náttúruna fara á mis við þá ánægjulegu og þroskandi reynslu sem hún getur verið.
- Án þessara ...
Sem hluta af þróun Græna Íslandskortsins hefur Náttúran tekið saman yfirlit yfir útsýnisskífur á Íslandi en 39 útsýnisskífur hafa nú verið skráðar og kortlagðar á Græna kortið hér á vefnum. Þrátt fyrir ítarlega leit að útsýnisskífum má vel vera að einhversstaðar á landinu leynist fleiri útsýnisskífur sem við höfum ekki fundið og væri því mikilvægt að fá upplýsingar um þær ...
Ríki Vatnajökuls er ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasi Suð-Austurlands
Áhrifasvæði - frá Lómagnúp í vestri að Hvalnesi í austri
- Sveitafélagið Hornafjörður
- Svæði sunnan Vatnajökuls
- Lónsöræfi
- Vatnajökuls þjóðgarður
- Samstarf við Djúpavog í verkefna og vöruþróun
- Aðild að Markaðsstofu Suðurlands
Hlutverk
- Markaðssetning svæðisins með áherslu á veturinn
- Vöruþróun, verkefnavinna
- Uppbygging á innviðum, bæta grunngerð
- Gerð kynningarefnis
- Móttaka ferðaheildsala, blaðamanna, sjónvarpstöðva
- Stuðla að samstarfi og ...
Meginmarkmið matarklasans „Þingeyska matarbúrið - matur úr héraði“ er að stuðla að auknu heildarvirði svæðisins og meiri sjálfbærni þess í efnahagslegu og menningarlegu tilliti. Lögð er áherslu á að þróa, framleiða og kynna vörur og þjónustu sem byggja á Þingeysku hráefni og matarhefð. Þingeyska matarbúrið tekur þátt í samstarfsverkefnum bæði innanlands og alþjóðlegum enda gefi þau tilefni til aukins árangurs eða ...
Þróunarklasinn Matarkistan Skagafjörður miðar að því að auka þátt skagfirskrar matarmenningar í veitingaframboði á svæðinu þannig að gestir geti notið gæðahráefnis og upplifað menningu svæðisins. Merki Matarkistunnar er ætlað að draga athyglina að mat sem framleiddur er frá grunni eða að hluta í Skagafirði.
Veitingastaðir sem eru þátttakendur í verkefninu merkja þá rétti á matseðli sem eru að stærstum hluta ...
Góðir hjólbarðar eru nokkuð afstætt hugtak en hvað varðar áhrif á heilsu okkar þá eru nagladekkin skaðlegust. Rannsóknir hafa leitt í ljós að harðkornadekk hafa álíka viðmót og hemlunarlengd og nagladekk við svipuð skilyrði. Góð vetrardekk geta gert sama gagn. Ákvörðun um kaup á nagladekkjum ætti því aðeins að vera tekin að vandlega íhuguðu máli. Staðreynd er að svifryksmengun orsakast ...
Sem hluta af þróun Græna Íslandskortsins hefur Náttúran tekið saman yfirlit frá Siglingastofnun yfir alla vita á Íslandi, samtals 110 vita og falla þeir undir yfirflokkinn „Opinber verk/kennileiti“. Vitarnir hafa nú verið skráðar og kortlagðar á Græna kortið hér á vefnum en auk staðsetningar má sjá byggingarár, hæð, ljóshæð og hlutverk og hver rekstaraðili vitans er.
Þó að ekki ...
Matarklasi Suðurlands og Vestmannaeyja hefur það að markmiði að varðveita og hefja til vegs og virðingar hefðir úr héraði í matargerð í anda hinna alþjóðlegu „Slow Food/Hægrar matarmenningar“ samtaka. Með því að nýta hráefni úr næsta nágrenni okkar svo sem unnt er styrkjum við matvælaframleiðslu og aukum fæðuöryggi þjóðarinnar. Það styttir auk þess flutningsleiðir, minnkar mengun og sparar flutningskostnað ...
Skógræktarfélagið heldur Freysteinsvöku á Elliðavatni laugardaginn 7. nóvember kl. 13:00-17:00. Umfjöllunarefnið verður náttúrufræðingurinn Freysteinn heitinn Sigurðsson og hin fjölbreytilegu áhugamál hans. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Freysteinn starfaði ötullega fyrir Landvernd og var lengi varaformaður samtakanna.

Árni Bergmann Pétursson, forstjóri Rafs ehf. á Akureyri, hlaut í gær Umhverfisverðlaun LÍÚ 2009. Viðurkenninguna fékk hann fyrir rannsóknar- og þróunarvinnu við svokallaða rafbjögunarsíu. Notkun búnaðarins, sem er framleiddur hjá HBT, um borð í fiskiskipum hefur leitt til allt að tíu prósenta olíusparnaðar með tilheyrandi minnkun útblásturs. Það staðfesta mælingar úr skipum Þorbjarnar hf. í Grindavík, þar sem þessi búnaður ...
Nú er talað um að innleiða ný gildi. Vistvernd í verki svarar kalli tímans með 15 tíma námskeiði fyrir leiðbeinendur dagana 30.-31. október n.k.
Á námskeiðinu læra þátttakendur listina að leiðbeina. Farið verður í gegnum helstu verkefni leiðbeinandans, s.s. að stýra fundum, kveikja áhuga, vinna saman í hóp og miðla fróðleik um leiðir til sparnaðar og vistvænni ...
Reykjavík stefnir að því að verða forystuborg á heimsvísu í rafbílavæðingu. Umhverfis- og samgönguráð stofnaði í dag starfshóp sem á að finna leiðir til að ná þessu markmiði eins fljótt og auðið er. Kjöraðstæður eru taldar vera fyrir hendi í Reykjavík til að gera borgarbúum fært að reka rafbíla í borginni á hagkvæman hátt.
Samgöngur er helsta uppspretta losunar gróðurhúsalofttegunda ...
Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur buðu nemendum í Hjólaríi Snælandsskóla í hjólreiðaferð í liðinni viku. Nemendurnir voru útnefndir Varðliðar umhverfisins á Degi umhverfisins í ár og var ferðin viðurkenning fyrir þann árangur.
Hjólreiðaferðin hófst á ferð í klúbbhús Hjólafélags Reykjavíkur í Nauthólsvík þar sem Pétur Þór Ragnarsson tók á móti hópnum. Pétur sýndi Varðliðunum m.a. nýtt keppnishjól sem er ...
Kristján Viðar Haraldsson heldur fyrirlestur í Manni lifandi Borgartúni 24, fimmtudaginn 28. okt. kl: 17:30 - 19:00 í Borgartúni 24. Fjallað verður um uppbyggingu orkukerfis mannsins
og hvernig við getum haft áhrif á það á meðvitaðan hátt.
Kristján Viðar mun varpa ljósi á marga þætti varðandi þetta áhugaverða viðfangsefni.
- Leitar þú að jafnvægi, andlegu og/eða líkamlegu?
- Ertu að ...
Við ætlum í þeim tólf athugunum sem hér fara á eftir að líta á þroska mannsins á lífsbrautinni. Mismunandi stigum er lýst, í sjö ára tímabilum og mikilvægar hliðar á þroska mannsins dregnar fram. Áhugi sífellt fleiri hefur vaknað á eigin ævisögu og æ fleiri upplifa þörf fyrir aukna sjálfsþekkingu og sjálfsinnsæi. Hver er ég? Hvernig virka ég eiginlega? Hvað ...
Setjist niður í hring, einhversstaðar úti í náttúrunni, hvort sem það er úti í garði, útí skógi eða útá engi. Það eina sem þarf er ferskt loft og fjölskylduna.
Lokið augunum og segið svo hvort öðru frá því í hverju þið heyrið, hvað þið getið ímyndað ykkur það sé, hvernig litir eru í kringum ykkur. Þið getið t.d. búið ...
Magn úrgangs frá heimilum í Reykjavík hefur dregist saman, gæði drykkjarvatns og strandsjávar er áfram mjög gott og laxastofninn í Elliðaánum tekur aftur við sér eftir lægð, þetta kemur fram í skýrslu um umhverfisvísa í Reykjavík. Samgöngur eru áfram sá þáttur sem helst hefur áhrif á umhverfi borgarinnar.
„Umhverfisvísarnir sýna að við höfum náð miklum árangri, þótt við þurfum að ...
Nú er unnið að endurskoðun á stefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun. Stefnumótunin ber yfirskriftina Velferð til framtíðar 2010-2013. Fyrstu drög voru kynnt á Umhverfisþingi 9. og 10. október þar sem þinggestir tóku virkan þátt í umræðum um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi. Í drögunum er að finna yfirlit yfir helstu lykilverkefni á sviði sjálfbærrar þróunar hér á landi.
Umhverfisráðuneytið óskar ...
Hæstiréttur hefur fallist á kröfur landeigenda, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Fuglaverndarfélags Íslands um að felldur verði úr gildi úrskurður umhverfisráðherra frá því í janúar 2007, sem féllst á svonefnda leið B í öðrum áfanga Vestfjarðavegar um Teigsskóg frá Bjarkarlundi til Eyrar í Reykhólahreppi.
Nokkrir landeigendur á svæðinu, Náttúruverndarsamtök Íslands og Fuglaverndarfélag Íslands höfðuðu málið á hendur Vegagerðinni og kröfðust ógildingar. Vegagerðin ...
Listakokkar munu reiða fram ókeypis kjötsúpu fyrir gesti og gangandi á Skólavörðustígnum á laugardag. Þeir Siggi Hall, Úlfar Eysteinsson, Friðgeir Eiríksson og Snorri Birgir Snorrason munu standa yfir pottunum og seðja hungur þeirra sem eru í bæjarferð. Súpan verður framreidd á fimm stöðum á Skólavörðustígnum frá klukkan eitt, þegar fyrsti skammturinn verður réttur inn í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.
Mynd af ...
Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin taka ekki alvarlega niðurstöður síðustu þingkosninga
Talsmenn Samtaka atvinnulífsins eru meðal þeirra sem hæst hafa kallað á uppbyggingu stóriðju. Þeim er ómögulegt að sjá nýja möguleika í stöðunni eða draga lærdóm af uppbyggingu nýrra útflutningsfyrirtækja svo sem á sviði hugbúnaðar, tölvuleikja og sjónvarpsþátta (Latibær) sem hafa ekki verið gæluverkefni stjórnmálamanna. Svipað má segja um viðsemjendur þeirra í verkalýðshreyfingunni. Stóriðjuframkvæmdir eru sameiginlegt áhugamál þeirra ...
Græna netið leitar að raforku fyrir 360 þúsund tonna álver á Suðurnesjum – fundur á Sólon laugardaginn 24. október kl. 11:00. Þeir Sigmundur Einarsson jarðfræðingur, Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi og Ágúst Hafberg framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli eru málshefjendur á fundi Græna netsins á laugardag um orkumál, þar sem leitað verður svara við áleitnum spurningum um orku fyrir áformuð álver ...
Umhverfisáhrif ferðalaga - Hvernig getum við dregið úr neikvæðum áhrifum?
Umhverfisdagur Farfugla verður haldinn í Kornhlöðunni, Bankastræti 2 þ. 30. október nk. Heimurinn með allri sinni fegurð og framandleika hvetur okkur til að leggja land undir fót,
en um leið mörkum við spor í umhverfið sem erfitt er að útmá – eða hvað?
Á Umhverfisdegi Farfugla verður fjallað um þessa þversögn sem ...
Orð dagsins 19. október 2009
Á morgun milli kl. 8 árdegis og 8 síðdegis verða haldnir sérstakir réttlætiskaffitímar („Fairtrade kaffepauser“) á hinum Norðurlöndunum. Markmiðið er að fá sem flesta til að drekka réttlætismerkt kaffi og um leið að sem flestir bændur og landbúnaðarverkamenn í þróunarlöndunum njóti góðs af. Þátttakendur fá tvenns konar verðlaun. Annars vegar gefst þeim kostur á að ...
Matti Ósvald heldur tveggja tíma fyrirlestur hjá Manni lifandi í Borgartúni 24 þriðjudaginn 20. okt. kl. 17:30 - 19:30 hjá Manni lifandi í Borgartúni 24. Fyrirlesturinn er sérstaklega ætlaður þeim sem eru ósáttir við óþarfa kíló. Samantekt á einföldum, hagnýtum ráðum.
Þú heyrir um:
"Gildruna" sem flestir lenda í er reyna við aukakílóin.
1 atriði sem við gleymum að ...
Yfirlýsing Landverndar vegna áforma um álver í Helguvík
Stjórn Landverndar harmar linnulausar árásir fylgjenda byggingar álvers í Helguvík á umhverfisráðherra landsins undanfarið og skorar á hlutaðeigandi aðila að útskýra fyrir þjóðinni hvernig það þjóni hagsmunum Íslendinga að verja nær allri orku sem hugsanlega eftir stendur á Suður- og Suðvesturlandi til einnar verksmiðju í þungaiðnaði. Samtökin beina þessari fyrirspurn til þeirra ...
Samtökin Beint frá býli hlutu viðurkenninguna „Fjöreggið 2009“, verðlaun Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands (MNÍ), fyrir lofsvert framtak á matvælasviði. Þetta er í 17. sinn sem verðlaunin eru veitt og þykir mikill heiður fyrir aðila í matvælaframleiðslu að fá þau. Verðlaunin eru afhent á árlegum matvæladegi MNÍ sem að þessu sinni bar yfirskriftina „Matvælaframleiðsla og gjaldeyrissköpun“.
Hlédís Sveinsdóttir, formaður Beint frá ...
„Náttúran í ull“ er nýtt fyrirtæki ungrar konu í Miðfirði, Pálinu F. Skúladóttur, en hún hannar prjónavörur úr einbandi sem hún jurtalitar sjálf en jurtirnar tínir hún að mestu leiti í nágrenni við heimili sitt á Laugarbakka í MIðfirði.
Nú hefur Pálina opnað vefinn natturaniull.is en tilgangur vefsins er að markaðssetja prjónaðar vörur Pálínu úr jurtalitaðri ull. Þar má ...
Miðvikudaginn 21. október verður haldinn opinn fundur í Hvammi, á Hilton Hóteli Reykjavík, undir yfirskriftinni „Sjálfbær nýting jarðhitans“. Að fundinum standa GEORG (Geothermal Research Group), iðnaðarráðuneytið, Jarðhitafélag Íslands, ÍSOR, Orkustofnun og Samorka.
Dagskrá:
13:00 Orkuforði og endurnýjanleiki jarðhitakerfa - Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR – Íslenskra orkurannsókna
13:25 Sjálfbær nýting jarðhitakerfa - Guðni Axelsson, deildarstjóri, ÍSOR
13:50 Sjálfbær nýting á ...
Um sl. aldamót var hafinn faglegur og stjórnsýslulegur undirbúningur friðlýsingar eyðifjarðarins Héðinsfjarðar, en þáverandi umhverfisráðherra stöðvaði þær aðgerðir að beiðni landeigenda Héðinsfjarðar sem væntanlega voru farnir að sjá sér féþúfu af því að láta leggja veginn milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar þar um. Um þetta var fjallað í grein í Degi, sem síðar var sett á vefinn um svipað leyti og ...
Boðað er til aðalfundar samtakanna Umhverfi og vellíðan miðvikudaginn 21. október í Gerðubergi kl 19:30.
Fundarefni:
- Skýrsla formanns um störf félagsins frá stofnfundi þann 5. mars sl.
- Skógar fyrir líkama og sál. Erindi flutt af Sherry Crul skógræktarráðunaut, Skógræktar ríkisins á Egilsstöðum
- Aðferðafræði til að meta gæði skipulagðra útivistarsvæða innan þéttbýlis. Erindi flutt af Kristbjörgu Traustadóttur, mastersnema í umhverfissálarfræði ...
Sjálbær ferðaþjónusta - Umhverfis og skipulagsmál
Ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasinn Ríki Vatnajökuls í samstarfi við Háskólasetur á Hornafirði mun standa fyrir opnu málþingi í Nýheimum á Höfn 21.-22. október 2009. Umfjöllunarefnið verður umhverfis- og skipulagsmál í ferðaþjónustu á Íslandi og er málþingið opið öllum.
Uppskeruhátíð Ríkis Vatnajökuls verður haldin í kjölfar málþingsins á miðvikudagskvöldi. Þar munu aðilar í Ríkinu gæða ...
Á 15. Stefnumóti umhverfisráðuneytisin og Stofnunar Sæmunar fróða verður fjallað um tengsl milli hnattrænna loftslagsbreytinga, sjálfbærrar þróunar og öryggismála. Einnig verður rætt um alþjóðlegar samningaviðræður um loftslagsmál í aðdraganda Kaupmannahafnarfundarins.
Það er dr. Adil Najam, framkvæmdastjóri Pardee Center við Boston University, sem flytur erindið Loftslagsbreytingar, þróun og öryggi. Dr. Adil Najam er einn af aðalhöfundum 3. og 4. skýrslu Vísindanefndar ...
Í ár eru 100 ár frá því vatnsveita tók til starfa í Reykjavík og olli hún byltingu í lífsskilyrðum borgarbúa. Þessa hefur verið minnst með margvíslegum allt þetta ár sem og þess að Orkuveita Reykjavíkur er 10 ára.
Lokahnykkur hátíðarhaldanna er málþing um vatns- og veitumál. Það er haldið á morgun, föstudaginn 16. október í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi ...
Reykjavíkurborg veitti í sumar styrki til nýsköpunar í ferðaþjónustu í fyrsta sinn. Efnt var til hugmyndasamkeppni af þessu tilefni og bárust á sjöunda tug hugmynda til Höfuðborgarstofu. Skipaður var starfshópur til að fara yfir hugmyndirnar en í honum sátu fulltrúar frá menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur, Höfuðborgarstofu, Nýsköpunarmiðstöð, Útflutningsráði og Samtökum ferðaþjónustunnar.
Sjö verkefni hlutu styrki, samanlagt 7 m.kr.
Reykjavíkurborg og Hönnunarmiðstöð Íslands standa fyrir keppni um hönnun minjagrips fyrir Reykjavíkurborg
Keppnin er öllum opin og felst í því að hanna nýjan og einkennandi minjagrip fyrir Reykjavíkurborg. Verðlaunatillagan skal endurspegla vörumerki Reykjavíkurborgar, Reykjavík - Pure Energy. Vörumerkið vísar til þeirrar hreinu orku sem sem Reykjavík býr yfir í fleiri en einni merkingu: í náttúrunni, vatninu, menningunni og sköpunarkraftinum.
Minjagripurinn verður ...
Dagur námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands verður haldinn föstudaginn 16. október kl. 15:00-18:00 í fundarsal Öskju, 3. hæð.
Dagskrá:
15:00 Opnunarávarp - Guðrún Gísladóttir, formaður stjórnar námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræðum.
15:05 Hvers vegna nám í umhverfis- og auðlindafræðum? / Why an interdisciplinary study programme in Environment and Natural Resources? - Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar ...
Ríkisstjórn Írlands hefur ákveðið að banna ræktun á erfðabreyttum plöntum. Jafnframt hefur verið ákveðið að heimilt verði að merkja matvörur sem ekki eru erfðabreyttar né innihalda erfðabreytt hráefni að hluta með sérstöku merki, sjá hér að neðan. Þetta á meðal annars við um kjöt, egg, fisk og mjólkurafurðir.
Þessar fréttir vekja athygli. Á sama tíma og írsk stjórnvöld taka þessa ...
Vegna umræða í fjölmiðlum um að umhverfisráðherra hafi brotið lög með úrskurði sínum um Suðvesturlínu vill umhverfisráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:
Fullyrðingar þess efnis að úrskurðurinn sé ólögmætur vegna þess að málshraðareglur hafi verið brotnar eiga ekki við rök að styðjast. Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum er frestur ráðherra til að úrskurða vegna mats á umhverfisáhrifum tveir mánuðir frá ...
Íbúasamtökin Betra Breiðholt standa fyrir markaði í göngugötunni Mjódd, í tengslum við Breiðholtsdaga 2009, laugardaginn 17. október kl. 11:00 - 14:00. Þarftu að rýma geymsluna? Er bílskúrinn fullur? Sultaðir þú of mikið? Geturðu ekki borðað allar rófurnar og berin? Viltu skipta á skólabókum og plötum? Er saumaklúbburinn, kórinn, foreldrafélagið, bekkurinn eða íþróttafélagið að safna? Þetta er tilvalið tækifæri til ...
![]()
Vegna stigvaxandi þrýstings frá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum, Landbúnaðarnefnd Evrópusambandsins, Samtökum fjárfesta og fjölda annarra hagsmunaaðila, vina vandamanna og velunnara, hefur verið ákveðið að blása enn einu sinni til Sauðamessu í Borgarnesi. Sauðamessan verður eins og undanfarin ár haldin í Skallagrímsgarði í Borgarnesi þ. 17. október n.k. og hefst kl. 13:30.
- Fjárrekstur í gegnum Borgarnes- Réttarstemmning.
- Ærlegt handverk og fleira ...
Fyrir nákvæmlega einu ári síðan kom út bók Þorsteins Úlfars Björnssonar Hjalladalur –síðasta sumarið en um er að ræða sérstæða ljósmyndabók með rúmlega 200 ljósmyndum, einskonar Road-Movie“ í bókarformi, grafískt verk um dal sem ekki er lengur sýnilegur enda kúrir hann nú á botni Hálslóns. Minningin um Hjalladal og fagra ásýnd hans er haldið á lofti í orði og myndum ...
Vegna fréttar á Visi.is með fyrirsögninni Afþakkar 15 milljarða loftslagskvóta vill umhverfisráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:
Ísland er þegar aðili að viðskiptakerfi ESB og frá og með 1. janúar 2013 mun nærri helmingur losunar Íslands falla undir það samkvæmt ákvæðum EES-samningsins, þar á meðal öll losun frá stóriðju. Það liggur því fyrir að stóriðja á Íslandi á að búa ...
Í bloggi á ejunni.is í dag fer Dofri Hermannsson myrkum orðum um stóriðjuáform á landinu. Í inngangi segir hann:
Lengi hefur verið ljóst að ekki er til næg orka í 360 þt álver í Helguvík. Það er m.a.s. mjög ótryggt að hægt sé að útvega orku í 180 þt álver eins og nú er verið að reyna ...
Umhverfisþing hefst á morgun á Hótel Nordica í Reykjavík. Rúmlega 400 hafa skráð sig til þátttöku á þinginu og verður það því fjölmennasta Umhverfisþing sem haldið hefur verið. Sjálfbær þróun verður meginefni þingsins að þessu sinni. Lögð verður áhersla á virka þátttöku þinggesta og því verður efnt til umræðna í heimskaffistíl sem nýtast svo við gerð stefnumörkunar stjórnvalda um sjálfbæra ...
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, hafa undirritað friðlýsingar Gálgahrauns í Garðabæ og Skerjafjarðar innan lögsögu Garðabæjar.
Markmiðið með friðlýsingu Gálgahrauns er að vernda nyrsta hluta Búrfellshrauns, þann hluta hraunsins sem runnið hefur í sjó fram, bæði vegna jarðmyndana og lífríkis. Verndargildi hraunsins byggir m.a. á því að Gálgahraunið er að mestu ósnortið á þessu svæði. Þar ...
Sænska verkefnið I ur og skur hlaut náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Dómnefnd verðlaunanna ákvað þetta á fundi, sem haldinn var hér á landi í gær.
Í rökstuðningi dómnefndar segir að aðferðir I Ur og skur hvetji til til útivistar og séu frábært dæmi um verkefni sem stuðlar að velferð barna og auki skilning þeirra á náttúrunni. Verkefnið er ...
Dregið hefur jafnt og þétt úr notkun nagladekkja í Reykjavík undanfarin ár. Á liðnum vetri töldust 42% bifreiða á nöglum í marsmánuði en 44% árið áður. Veturinn 2004-2005 voru 58% bifreiða á nöglum í mars. Nagladekk spæna upp malbikið hundrað sinnum hraðar en önnur dekk og valda með því meira svifryki og auknum kostnaði við viðhald gatna.
Svifryk hefur farið ...
Fimmtudaginn 8. október kl. 20:00 verður haldið hið árlega vetrarundirbúningsnámskeið þar sem Magnús Bergsson sjálfur mun deila reynslu sinni með okkur. Er virkilega hægt að hjóla allan veturinn? Hvað þarf til að geta hjólað að vetrarlagi? Geta allir hjólað í hálku? Þola dempararnir kuldann? Frþs ekki keðjan? Hvað er hamingja? Hver er tilgangur lífsins? Öllum þessum spurningum verður svarað ...
Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar þann 30. september s.l. var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða vegna liðar 1 í fundargerð skipulags- og bygginganefndar frá 15. september s.l. þar sem fjallað er um "Tillögu að breytingum á aðalskipulagi Ölfuss, vegna Bitruvirkjunar, Hellisheiðarvirkjunar, iðnaðarsvæða við Þorlákshöfn og Gráuhnúka [...]" :
Bæjarstjórn tekur undir álit skipulags- og bygginganefndar með eftirfarandi bókun:
Bæjarstjórn mótmælir harðlega tillögum ...
Náttúruverndarsamtök Suðurlands gera hér með athugasemdir við auglýstar breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss, dags. 20. ágúst 2009.
Auglýst breytingartillaga gerir m.a. ráð fyrir því að 285 ha. svæði á Bitru verði breytt í iðnaðarsvæði fyrir jarðgufuvirkjun.
Náttúruverndarsamtök Suðurlands leggjast alfarið gegn þessari breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss og telja að áform um virkjun á Bitru og aðliggjandi svæði rþri ...
Hellisheiðin hefur lengi verið eitt af vinsælustu útivistarsvæðum íbúa höfuðborgarsvæðisins. Nú hefur friðsæld og upplifun af náttúru heiðarinnar verið rofin með stórvirkum vinnuvélum og hvæsandi borholum upp um allar hlíðar. Stór hluti Hellisheiðar er orðin að iðnðarsvæði fyrir jarðhitavirkjanir, með tilheyrandi jarðraski.
Sjónræn áhrif þessara framkvæmda eru mikill og útivistargildi svæðisins hefur minnkað verulega. Upplifun þeirra sem vilja njóta ósnortinnar ...
Athugasemdir 1061 einstaklinga voru afhent sveitarstjórn Ölfuss í hádeginu í dag. Við það tilefni flutti Björn Pálsson eftirfarandi ræðu:
Ágætu áheyrendur!
Í tilefni þess að hér eru nú afhent 977 bréf, þar sem 1061 einstaklingar og þar af 712 með búsetu í Hveragerði mótmæla auglýstri breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss, vil ég gera stutta grein fyrir aðkomu minni að þeim ...
Umhverfisráðuneytið hefur gefið út skýrsluna Umhverfi og auðlindir sem fjallar um stöðu umhverfismála hér á landi. Skýrslan verður til umfjöllunar á Umhverfisþingi sem hefst næstkomandi föstudag, 9. október. Þar mun Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu, kynna skýrsluna og Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor við Háskóla Íslands mun flytja sínar hugleiðingar um umhverfismál með hliðsjón af skýrslunni.
Eitt af helstu verkefnum umhverfisráðuneytisins ...
Landvernd gerir athugasemdir við auglýstar breytingar á aðalskipulagi Ölfuss en breytingin gerir m.a. ráð fyrir því að 285 ha opnu svæði á Bitru og Ölkelduhálsi verði breytt í iðnaðarsvæði fyrir jarðgufuvirkjun en jafnframt gert ráð fyrir nýju rannsóknar- og vinnslusvæði við Gráuhnúka. Svipuð tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014, sem náði m.a. til virkjunarsvæða við Hverahlíð og ...
Athugasemdir vegna auglýsingar um skipulagsbreytingu Ölfuss þar sem gert er ráð fyrir stóraukinni sókn Orkuveitu Reykjavíkur í verðmæta náttúru með tilheyrandi fórnum á náttúruverðmætum, landslagi og loftgæðum.
Náttúruverndarsamtök Íslands leggjast gegn auglýstri skipulagsbreytingu þar sem gert er ráð fyrir stóraukinni ásókn í orkuauðlindir á Hengilssvæðinu með tilheyrandi fórnum á stórbrotinni náttúru svæðisins. Náttúruverndarsamtök Íslands hafa lagst eindregið gegn frekari virkjunum ...
Köstulum og sandkössum er markvisst fækkað þegar opin leiksvæði eru endurnýjuð og fallundirlag leiktækja bætt. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur eftirlit með opnum leiksvæðum í borginni og gerðu heilbrigðisfulltrúar úttekt á þeim í vor. 144 leiksvæði voru skoðuð eða rúmlega helmingur þeirra með áherslu á öryggismál.
Niðurstaðan var að athugasemdir Heilbrigðiseftirlits vegna opinna leiksvæða í Miðbænum og Vesturbænum reyndust töluvert fleiri en ...
Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur skrifar ítarlega úttekt á vef Smugunnar í dag þar sem hann spyr hvort við getum virkjað endalaust. Niðurstaða hans er eftirfarandi:
Álver í Helguvík og á Bakka myndu soga til sín nær alla orkuna frá orkulindum á Suður-, Suðvestur- og Norðausturlandi, ekki bara frá jarðvarmavirkjunum heldur einnig frá vatnsaflsvirkjunum. Þar með er farin nánast öll hagkvæmasta orkan ...
Frú Lauga er bændamarkaður eða sveitavörumarkaður sem selur Reykvíkingum og nærsveitamönnum góðar vörur frá metnaðarfullum íslenskum bændum, segir á heimasíðu fyrirtækisins. Frú Lauga er að Laugalæk 6 í Reykjavík en opnunartímar eru miðvikudaga til föstudaga frá kl. 12:00-18:00 og á laugardögum frá kl. 12:00-16:00.
Alls kyns fisk og kjötafurðir má finna hjá Frú Laugu s.s ...

