Vegna fjölda fyrirspurna um hvort að Náttúran.is hafi kennsluefni s.s. plaköt og myndir sem nýst gætu til kennslu og upplýsingagjafar, utan vefsins, bjóðum við nú upp á að afhenda sérsniðin plaköt með því mynd- og textaefni sem óskað er eftir. Plakötin geta verið í þeim stærðum sem henta hverjum og einum.

Einnig er hægt að fá kynningar til ...

Plastmerkin eru sjö og gefa til kynna að plastefnið sé endurnýtanlegt eða endurvinnanlegt. Á Íslandi er úrvinnslugjald á heyrúlluplast og umbúðaplasti úr plastfilmu, stífu plasti, frauðplasti og öðru plasti. Gjaldið er lagt á til að greiða fyrir meðhöndlun umbúðanna og endurnýtingu eftir að þær hafa þjónað upphaflegum tilgangi sínum. Sjá nánar á vef Úrvinnslusjóðs.

Til þess að gera endurvinnslu plasts ...

Fyrirtækið Grænar lausnir ehf við Mývatn var stofnað á árinu 2005 með það í huga að þróa aðferðir til framleiðslu á vörubrettum úr pappír og pappa. Eftir langt þróunarferi og 600 milljónir króna hefur verksmiðjan nú hafið framleiðslu á vörubrettum úr dagblaðaúrgangi en tilraunir leiddu í ljós að dagblöð henta ágætlega sem hráefni í bretti til vöruflutninga. Tæknin munu vera ...

Yung Chang (CAN) 2007 - 93 min.  Leikstjórinn myndarinnar „Up the Yangtze“ verður viðstaddur sýningu myndarinnar í Iðnó í dag!

Kapítalisminn hefur hafið innreið sína í hið kommúníska Kína. Stærsta stífla sögunnar, “Þriggja gljúfra stíflan” er um það bil að gjörbreyta hinu goðsagnakennda Yangtze fljóti. Fljótið hefur lengi verið talin eitt helsta náttúrundur Kína. Á bökkum hennar býr fjöldi fólks sem ...

30. september 2008

Alþjóðleg fjármálakreppa ætti ekki að hafa mikil áhrif gerð ný s alþjóðasamnings um loftslagsmál.

Sérfræðingar hafa bent á það að ef núverandi efnahagslægð sé komin til að vera þá muni lítið fé standa eftir til þess að verja í baráttuna gegn losun gróðurhúsalofttegunda. Allra augu beinist nú að fjárhagslegum vandamálum og loftslangsvandamálin verði því útundan.

Sameinuðu Þjóðirnar vinna nú að ...

Rauðpunktaherferð Glitnis sem dundi á þjóðinni í allt of langan tíma hefur nú loks verið sjúkdómsgreind og meðhöndluð sem „græðgi, sólund og forsjárleysi“.

Í annarri herferð bankans fyrir Save&Save sparnaðarreikninginn var einnig auglýst út í hið óendanleg að verið væri að bjarga náttúrunni þar sem bankinn myndi leggja 0,1 prósent mótframlag „til umhverfismála“ í Glitnir Globe, sjóð sem á ...

Mikilvægi mataræðis

Matur er sá umhverfisþáttur sem hefur hvað mest áhrif á lífeðlisfræðilegt kerfi okkar.  Meginlþðheilsuvandamál í heiminum eru ofneysla og vannæring, hjarta- og æðasjúkdómar, krabbamein og sýkingar. Mataræði hefur afgerandi áhrif á alla þessa þætti. Lélegt mataræði eykur hættu á langvinnum sjúkdómum og talið er að rétt mataræði geti haft fyrirbyggjandi áhrif og hjálpað til og/eða flýtt fyrir ...

29. september 2008
Landvernd stendur fyrir kynningu á Vistvernd í verki fyrir atvinnulífið í sal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 1. október kl. 14:00. Á fyrirlestrinum segja brautryðjendur Global Action Plan (GAP) í Evrópu,  þau Marilyn og Alexander Mehlmann og  Peter van Luttervelt, frá vinnustaðaverkefni GAP í Evrópu og víðar. Farið verður í helstu þætti verkefnisins og rætt um mögulega þróun þess á Íslandi. Gert ...
29. september 2008

Þalöt, parabenar, moskussambönd og triclosan voru meðal þeirra efna sem fundust í blóði og þvagi bandarískra unglingsstúlkna í ný legri rannsókn umhverfisverndarsamtakanna Environmental Working Group (EWG).

Tuttugu stúlkur á aldrinum 14-19 ára víða að úr Bandaríkjunum tóku þátt í rannsókninni, sem beindist að efnum sem algeng eru í snyrtivörum af ýmsu tagi. Leitað var að 25 mismunandi efnum. Á bilinu ...

Gísla Tryggvasyni talsmanni neytenda var boðið til Silfur Egils í hádeginu á sunnudaginn og dró hann þar fram skýra mynd af stöðu mála neytenda í landinu. Gísli kallaði eftir aðgerðum „strax“ því staða heimilanna væri nú þannig orðin að fólk gæti hreinlega ekki mætt fjárhagslegum skuldbindingum sínum sem hækkað hafa um tugir prósenta við hrun krónunnar og vaxtaprósentuna á undanförnum ...

Pallborðsumræður um umhverfismál og kvikmyndir í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 29. september Kl. 16.00-18.00

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík stendur fyrir pallborðsumræðum þar sem kvikmyndagerðarmennirnir Yung Chang, Konstanty Kulik, Ben Kempas og Teri McLuhan munu ræða kvikmyndir sem fjalla um umhverfismál og áhrif þeirra. Þarna ættu án efa að skapast spennandi umræður. Andri Snær Magnason stjórnar umræðunum.

Pallborðið er í ...
Neytendasamtökin eru aðilar að Alþjóðasamtökum neytenda (Consumer International) ásamt 240 öðrum samtökum neytenda í samtals 115 löndum. Stefna Alþjóðasamtaka neytenda grundvallast á átta lágmarkskröfum sem um leið eru grundvöllur að starfi Neytendasamtakanna. Þessar kröfur eru:
 
  • Réttur til að fá notið grunný arfa
  • Réttur til öryggis
  • Réttur til upplýsinga
  • Réttur til að velja
  • Réttur til áheyrnar
  • Réttur til bóta
  • Réttur til ...

Vatnsverksmiðja Icelandic Water Holdings ehf. var gangsett á föstudag en verksmiðjan mun veita um 60 manns vinnu og annar hún í fyrsta áfanga átöppun um hundrað milljón lítra af vatni á ári og áætlanir eru um að auka framleiðslugetuna verulega þegar fram líða stundir. Verksmiðjan er í landi Hlíðarenda í Ölfusi við Þorlákshöfn og er um 6.700 fermetrar að ...

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði með óbreyttu sniði frá fyrra ári og standi frá 1. til 30. nóvember. Veiðar verða heimilaðar fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Mælst er til þess að hver veiðimaður skjóti ekki fleiri en tíu fugla. Sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum verður áfram í gildi. Ákvörðunin byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli ...

Ekkert sýni af íslensku grænmeti og ávöxtum innihélt varnarefnaleifar yfir hámarksgildum og einungis 3.3% sýna af erlendu grænmeti  og ávöxtum samkvæmt skýrslu Matvælastofnunar. Varnarefnaleifar í matmælum  er viðfangsefni fræðslufundar fyrir almenning sem Matvælastofnun heldur þriðjudaginn 30. september.

Reglubundnu eftirliti með varnarleifum í ávöxtum og grænmeti var háttað þannig að starfsmenn matvælaeftirlits Umhverfis og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar tóku sýni vikulega hjá ...

Meirihluti neytenda vill að fyrirtæki beiti sér meira í umhverfisvernd. Niðurstaða Internet-könnunar sem 28.000 manns í 51 landi svöruðu er að umhverfisstefna fyrirtækja hefur sífellt meiri áhrif á kauphegðun neytenda.

51% svarenda töldu það mjög mikilvægt að fyrirtæki legðu sitt af mörkum við að bæta umhverfið og 36% töldu það nokkuð mikilvægt.

Aðspurðir hvernig þeir vildu leggja sitt af ...

Orð dagsins 26.september 2008.

Lesendur norska Dagblaðsins geta nú spreytt sig vikulega á dálitlu prófi sem reynir á kunnáttu þeirra í umhverfis- og loftslagsmálum. Fyrsta prófið birtist á vefsíðu Dagblaðsins í gær. Grønn Hverdag sér um prófasmíðina, en verkefnið tengist norska loftslagsklúbbnum sem stofnaður var 1. september sl.
Takið fyrsta prófið á dagbladet.no,
skoðið heimasíðu Loftslagsklúbbsins
og rifjið ...

Sauðamessa verður haldin í Borgarnesi 4. október næstkomandi. Dagskráin verður í senn sauðsleg og kindarleg og má því búast við því að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Fylgist með á vefnum saudamessa.is þar sem ofgnótt er af fáný tum fróðleik og allt um Sauðamessuna.

Dagskráin í stórum drátturm:

13.30 – Fjárrekstur frá Dvalarheimili aldraðra í rétt sem ...

26. september 2008

Orð dagsins 26. september 2008.

Fyrsta sjávarorkuverið sem selur raforku inn á landsnet, var tekið í notkun í Portúgal í fyrradag. Í verinu, sem er staðsett um 5 km frá landi, er notast við svonefnda Pelamis- eða sjósnákatækni, sem byggir á löngum samsettum hólkum sem mara í hálfu kafi og breyta ölduhreyfingum í raforku. Þrír slíkir 140 m langir „snákar ...

Félagið Matur-saga-menning efnir til sýningar um mat og mataræði Reykvíkinga á 20. öld, sem ber nafnið "Reykvíska eldhúsið - matur og mannlíf í hundrað ár." Sýningin opnar formlega föstudaginn 26. september næstkomandi í Aðalstræti 10, elsta hús Reykjavíkur og í hjarta miðbæjarins.

Markmiðið með sýningunni er að bjóða Reykvíkingum og öðrum gestum að fræðast, njóta og bragða á lítt þekktri ...

Skipulagsstofnun býður til málþings um skipulag og loftslagsbreytingar fimmtudaginn 25. september kl. 14:00 á Grand Hótel. Loftslagsbreytingar og aðgerðir til að draga úr þeim eru eitt helsta viðfangsefni stjórnvalda víða um heim. Skipulag byggðar og samgöngumáti eru talin hafa mikil áhrif á losun gróðurhúsalofttegunda og því er skipulag mikilvægt stjórntæki til að draga úr losun. Á málþinginu verður sjónum ...

25. september 2008
Í Fréttablaðinu í dag birtist auglýsing frá Kópavogsbæ um kynningarfund um breytt skipulag á Kársnesi. Þar sem auglýsingin er lþtt áberandi sjá Náttúruverndarsamtök Íslands ástæðu til að benda íbúum sérstakleg á mikilvægi fundarins.

Fundurinn er haldinn til að íbúar á höfuðborgarsvæðinu geti kynnt sér tillögu bæjarins um 1.000 nýjar íbúðir og 13 ha. landfyllingar á Kársnesi. Áhrifin verða stórfelld ...

Orð dagsins 24. september 2008.

Fjórar stærstu dagvöruverslanakeðjurnar í Noregi, þ.e.a.s. NorgesGruppen, Coop, Rema 1000 og ICA, hafa ritað landbúnaðar- og matvælaráðherra Noregs bréf, þar sem skorað er á stjórnvöld að grípa til aðgerða til að stuðla að aukinni framleiðslu lífrænna matvæla. Þetta telja forsvarsmenn verslananna nauðsynlegt til að bregðast við eftirspurn eftir þessum vörum, en eftirspurnin ...

Í frétt í 24 stundum í dag er fjallað um að snyrtivöruframleiðandinn Clarins skoði nú möguleikann á því að framleiða vörur sem Birgir Þórðarson hjá Sunnan Vindum hefur þróað fyrir nuddstofuna Nordica Spa um nokkurra ára skeið. 

Um „eldfjallameðferðina/Volcano treatment - the power of Icelandic nature“ sem boðið er upp á á Nordica Hilton Spa segir Birgir þetta í stuttu ...

Orð dagsisn 23. september 2008

Nokia hefur náð afgerandi forystu í keppni Greenpeace um bestu umhverfisframmistöðu tölvu-, sjónvarps- og farsímaframleiðenda, en skýrsla um umhverfismál rafeindageirans, „Guide to Greener Electronics“, kom út í 9. sinn á dögunum. Frá því að skýrslan kom síðast út fyrir þremur mánuðum hefur Nokia bætt aðstöðu til móttöku á ónýtum rafeindatækjum á Indlandi, og er það ...

Í grein á heimasíðu HB Granda koma fram upplýsingar um væntanlega vottun árbyrgra fiskveiða við Ísland. Í undirbúningshópi eru taldir: dr. Kristján Þórarinsson frá LÍÚ og varaformaður Fiskifélags Íslands, sem er formaður hópsins, Guðbergur Rúnarsson frá Samtökum fiskvinnslustöðva, Rúnar Þór Stefánsson frá HB Granda, Gunnar Tómasson frá Þorbirni hf., Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda og Steinar Ingi Matthíasson frá sjávarútvegs- ...

24. september 2008

Ísinn á Norðurskautinu hefur aðeins einu sinni áður verið minni en í sumar sem leið. Vísindamenn hafa fylgst með ástandi íssins í 50 ár með aðstoð gervihnatta en s.l. áratug hafa orðið meiri breytingarnar en nokkru sinni.

Sjá frétt CNN. Myndefnið er sérlega áhugavert.

Sjá einnig frétt International Herald Tribune um framlag Íslands til að hjálpa smáeyríkum við að ...

Vottunarstofan Tún vekur athygli á málstofu um lífrænt fiskeldi sem haldin verður á Grand Hóteli kl. 10:30 þriðjudaginn 30. september n.k.

Málstofan er haldin á vegum Túns og Hólaskóla, og mun Dr. Helgi Thorarensen kynna nýjar reglur um lífrænt fiskeldi sem eru í burðarliðnum. Að því loknu mun Dr. Stefan Bergleiter, sérfræðingur frá þþsku vottunarstofunni Naturland flytja fyrirlestur ...

Opin sýning á heimildamyndinni Hver drap rafmagnsbílinn?

Bandaríski leikstjórinn Chris Paine sýnir heimildamynd sína Hver drap rafmagnsbílinn? - Who Killed The Electric Car? og situr fyrir svörum í sal 101 í Háskólanum í Reykjavík við Ofanleiti þriðjudagskvöldið 23 september, klukkan átta. Aðgangur er ókeypis.

Leikararnir Mel Gibson og Tom Hanks, auk James Woolsey, fyrrverandi forstjóra CIA, eru á meðal viðmælenda í ...

Þann 18. september var opnaður ný r vefur til stuðnings Skjálfandafljóti. Á vefnum segir svo um tilurð vefsins: „Sameiginlegur áhugi fólks fyrir náttúruvernd og áhyggjur þess af því hve hugsunarlaust er oft gengið á verðmæti náttúrunnar, leiddi það saman í Kiðagili í Bárðardal miðvikudaginn 23. júlí sl. Þar ræddi fólk um hvort enn myndu uppi hugmyndir um virkjun Skjálfandafljóts og ...

Útflutningsráð og Hönnunarmiðstöð ÍslandsHönnun auglýsa eftir umsóknum fyrirtækja um þátttöku í þróunarverkefninu Frá hönnun til útflutnings. Markmið verkefnisins er að leiða saman hönnuði og fyrirtæki í samvinnu um hönnun og framleiðslu á útflutningsvörum. Verkefnið stendur í 8 mánuði frá því að þátttakendur hafa verið valdir og verða niðurstöðurnar kynntar á sérstakri sýningu. Umsóknarfrestur fyrirtækja er til 24. september nk.

Nánari ...
22. september 2008

Umhverfisstofnun, Samtök iðnaðarains, Samtök verslunar og þjónustu og Félag íslenskra stórkaupmanna stóðu fyrir kynningarráðstefnu um nýja reglugeurð um mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni ("REACH") þann 18. september síðastliðinn. Ráðstefnan var vel sótt af fyrirtækjum sem framleiða, flytja inn eða nota efni á einn eða annan hátt og verða því fyrir áhrifum af REACH.

Á ráðstefnunni kom ...

22. september 2008

Á lokadegi Evrópskrar samgönguviku eru íbúar í 2000 borgum hvattir til að hvíla bílinn og nýta aðra samgöngumáta eins og strætó, reiðhjól og göngur. „Við höfum ekki tekið þátt í bíllausa deginum í nokkur ár en ákváðum að hefja þátttöku aftur í dag,“ segir Pálmi Freyr Randversson verkefnastjóri Samgönguviku fyrir Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar. „Bíllausi dagurinn fer hægt af stað ...

8. stefnumót umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða.

Erindi:

  • „Umfang utanvegaaksturs og aðgerðir stjórnvalda“ - Ólafur Arnar Jónsson hjá Umhverfisstofnun.
  • „Hvernig tökum við á utanvegaakstri?“ - Þorsteinn Víglundsson, umhverfisnefnd Ferðaklúbbsins 4x4.

Umræður að erindum loknum.

Fundurinn verður í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 24. september 2008 kl. 12:00-13:30. Stefnumótin eru opnir fundir um umhverfismál sem efst eru á baugi hverju sinni. Allir velkomnir.

„Strætóreinin bætir hag strætó til muna og á næstu árum mun Reykjavíkurborg halda áfram að bæta við forgangsbrautum víðs vegar um borgina,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri þegar hún opnaði ásamt Kristjáni Möller samgönguráðherra forgangsakrein á Miklubraut fyrir almenningssamgöngur.

„Strætó fær nú aukinn forgang í umferðinni í Reykjavík en það er liður í þeim Grænum skrefum sem stigin hafa verið ...

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, undirritaði í dag ásamt fleirum viljayfirlýsingu um samstarf við Mitsubishi-samsteypuna um innleiðingu rafmagnsbíla og þjónustunets.

Við sama tækifæri var undirrituð yfirlýsing um að Mitsubishi þrói hér á landi DME-eldsneyti (demethyl ether), dísel-eftirlíkingu sem unnin verður úr kolefnisútblæstri álvera.

Iðnaðarráðherra sagði gamlan draum sinn um lausn á ýmsum umhverfisvandamálum loks rætast með samstarfinu, sem hann þakkaði forseta Íslands ...

Evrópusambandið vill nýta sér markaðstækin til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ísland mun falla undir tilskipun ESB þar að lútandi.

Spegill RÚV sendi út í gær var viðtal við Þórunni Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Þar kemur meðal annars fram að álframleiðleiðsla fer inn í kerfið árið 2012 - 2013.
Hlusta á viðtalið hér.

Líkt og við mátti búast leggst ...

Forsætisráðherra Geir H. Haarde hleypti í dag vistakstursverkefni Landverndar formlega af stokkunum við hátíðlega athöfn á Hilton hótelinu. Forsætisráðherra keppti við þetta tækifæri í vistakstri ásamt þeim Guðmundi Erni Gunnarssyni forstjóra VÍS, Magnúsi Kristinssyni stjórnarformanni Toyota á Íslandi og Sigurði Inga Friðleifssyni hjá Orkusetrinu. Úrslit keppninnar urðu þau að Geir H. Haarde sigraði en hann eyddi aðeins 5,67 l ...

19. september 2008

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setti í morgun samgönguráðstefnuna Driving Sustainability á Hilton Nordica.

Þetta er annað árið í röð sem ráðstefnan er haldin, en hún fjallar um vistvæna orkugjafa í samgöngum. Í ár er kastljósinu einkum beint að rafmagni.

Í ávarpi sínu vakti Ólafur Ragnar máls á nauðsyn þess að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Hann sagði að jafnvel olíuauðug ...

Fyrr í mánuðinum birti Náttúrufræðistofnun frétt Orkuveita Reykjavíkur á heimasíðu sinni um skemmdir í mosaþembu í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar. Það var álit stofnunarinnar að skemmdirnar mætti líklega rekja til brennisteinsmengunar frá virkjuninni sem starfað hefur í tvö ár. hefur í kjölfarið undirbúið rannsóknir á mosaskemmdunum og orskökum þeirra.

Við orkuver Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi eru hraun með mosaþembu svipaðri þeirri sem ...

Einkabílinn er klárlega ofnotaður í Reykjavík að mati Sigrúnar Helgu Lund ný kjörins formanns Samtaka um bíllausan lífsstíl. „Við viljum láta rödd okkar heyrast, rödd sem andmælir slæmum tillögum, mælir með öðrum góðum og sem styður jafnræði millli samgöngumáta,“ sagði hún á fjölmennum stofnfundi í gærkvöldi.

„Hver og einn þarf að spyrja sig: Hvernig nota ég bílinn? Gæti ég komist ...

Náttúran.is kynnir græna Íslandskortið á ráðstefnunni Driving Sustainability á Hilton Reykjavík Nordica dagana 18. -19. september.

Green Map byggir á kerfi 169 tákna sem sameina náttúru- og manngert umhverfi og sem hægt er að nota á mismunandi hátt. Í íslensku kortagerðinni höfum við metið hvert og eitt tákn miðað við íslenskar aðstæður, valið úr þau sem helst eiga við ...

17. september 2008
Umhverfisráðherra Spánar, Elena Espinosa, æfði vistakstur á Evrópsku samgönguvikunni í Madríd í dag. Vistvernd í verki (Global Action Plan) á Spáni hóf þar með átak í vistakstri líkt og Landvernd sem fetar í fótspor Spánar á morgun. Forsætisráðherra Geir Haarde hleypir átakinu af stokkunum kl. 10.30 á ráðstefnu á Hilton hótelinu sem ber yfirskriftina 'Driving Sustainability'.

Ríkissjóður Íslands, Toyota ...
17. september 2008
Á vef Landssambands kúabænda (LK) var greint frá því í gær að á undanförnu hefði LK fengið nokkrar fyrirspurnir frá neytendum um hvort og hvernig nálgast megi ógerilsneydda mjólk, „beint úr tanknum“. Þar er greint frá því að samkvæmt núgildandi lögum og reglum sé sala á ógerilsneyddri mjólk óheimil og hefur verið svo um áratuga skeið. Ógerilsneyddrar mjólkur sé þó ...
Forstjóri Toyota, Katsuaki Watanabe tilkynnti ný verið breytingu á áætlunum fyrirtækisins. Vegna breyttra aðstæðna, sem allir þekkja, gerir Toyota ráð fyrir meiri samdrætti í sölu eyðslufrekra bifreiða. Samhliða því tilkynnti hann að Toyota ætli að flýta vinnu við tengiltvinnbíl sinn og bjóða hann jafnvel til prófunar fyrir ákveðna viðskiptavini strax í lok árs 2009 í stað 2010. Einnig minntist hann ...
17. september 2008

„Ísland gæti innan skamms orðið nær óháð erlendum orkugjöfum samhliða komandi fjöldaframleiðslu á rafmagns- og tengil-tvinnbílum,“ segir í fréttatilkynningu um fund bílaframleiðenda og orkufyrirtækja hér á landi í september.

Ráðstefnan er haldin undir yfirskriftinnin Driving Sustainabilty. Í tilkynningu segir að komandi bylting í rafmagsnsamgöngum á næstu fimm árum. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands er verndari ráðstefnunnar sem hefst kl. 9 ...

Á Sjávarútvegssýningunni sem haldin verður 2.-4. október nk. mun íslenskt umhverfismerki fyrir fiskafurðir verða kynnt til leiks. Merkið á að vísa til íslensks uppruna afurðanna og ábyrgra fiskveiða. Heimilt verður að nota það á öllum mörkuðum fyrir sjávarafurðir. Merkið má einnig nota á afla íslenskra fiskiskipa úr deilistofnum sem lúta heildarstjórnun. Frá þessu er skýrt í frétt frá Fiskifélagi ...

Námstefna Vistverndar í verki „Menntun til sjálfbærni - sjálfbær lífstíll - sjálfbær fyrirtækjarekstur - sjálfbær samfélög“ verður haldin að Sólheimum í Grímsnesi dagana 3.-5. október 2008.

Ætlunin með námskeiðinu er að hleypa nýju blóði í æðar Vistverndar í verki á Íslandi. Frumkvöðlar verkefnisins þau Marilyn og Alexander Mehlmann koma til landsins til að leiðbeina á námsstefnunnni en þau hafa unnið að því ...

„Í Samgönguviku 2008 viljum við vekja íbúa til umhugsunar um hreint loft í höfuðborginni, hvað hver og einn getur gert til að bæta loftgæði og til að endurskoða ferðavenjur sínar,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður umhverfis- og samgönguráðs, viðburðir standa yfir 16.-22. september. Samgönguvikna er nú haldin í sjötta sinn og taka yfir 2000 borgir í Evrópu þátt í ...

Séð frá vegi er liggur út frá Bláfjallavegi í átt að Hafnarfirði. Fjarlægð frá Hellisheiðarvirkjun 12 km - m.y.s. um 400 mÁ næstu dögum hefst söfnun plöntusýna í framhaldi af ábendingum um mosaskemmdir á Hellisheiði. Markmiðið er að leiða í ljós orsakir skemmdanna. Skyndikönnun á mosagróðri í allt upp í 25 km. fjarlægð frá Hellisheiðarvirkjun leiddi í ljós svipaðar gróðurskemmdir og þær sem Náttúrufræðistofnun benti á í næsta nágrenni hennar.

Vísindamenn og annað starfsfólk hjá Orkuveitunni hefur fundað með sérfræðingum vísindamönnum ...

Vikuna 15. – 19. september verður haldin endurvinnsluvika í fyrsta sinn á Íslandi. Úrvinnslusjóður stendur að átakinu í samvinnu við umhverfisráðuneyti, menntamálaráðuneyti, Sorpu, Gámaþjónustuna, Íslenska gámafélagið og Endurvinnsluna.

Lögð verður áhersla á að kynna mikilvægi endurvinnslu fyrir íslenskt samfélag, sérstaklega á pappa, pappír og plasti. Sérstök áhersla verður lögð á kynningu fyrir unglinga þar sem kannanir benda til að fólk á ...

Á vef umhverfisráðuneytisins var í gær birt frétt um að ráðuneytið hafi sett sér umhverfisstefnu og umhverfisstefnan birt í heild sinni (sjá fréttina) Sú staðreynd að áður hafi sjálft ráðuneyti umhverfismála ekki sett sér stefnu í eigin málaflokki er í sjálfu sér fréttnæmt og líklega fréttnæmt út fyrir landsteinana.

Sjálfsagt er því að nota tækifærið og benda á að á ...

Sænski orkurisinn Vattenfall hefur opnað tilraunaorkuver í Þýskalandi knúið kolum sem losar nánast engan koltvísýring út í andrúmsloftið.

Talsmenn fyrirtækisins segja að verið sé það fyrsta sinnar tegundar í heiminum, en umhverfisverndarhópar draga gildi verkefnisins fyrir loftslag jarðarinnar í efa.

Kolaverið, sem er staðsett nálægt Berlín, notfærir sér nýjustu tækni á sviði föngunar og förgunar koltvísýrings (carbon capture and storage ...

Í Listasafni Árnesinga stendur nú yfir sýning á verkum Höskuldar Björnssonar.

Höskuldur fæddist í Dilksnesi í Nesjum á Hornafirði  26. júlí árið 1907 en bjó síðustu sautján ár ævi sinnar í Hveragerði eða þar til hann lést árið 1963. Á starfsferli sínum markaði hann sér sérstöðu sem helsti fuglamálari landsins og í hugum margra landsmanna lifir hann enn sem slíkur ...

Meirihluti Evrópubúa telur loftslagsbreytingar vera eitt alvarlegasta vandamál heimsins, en hefur ekki breytt hegðun sinni til að berjast gegn þeim, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar.

40% þeirra sem svöruðu könnuninni kvörtuðu yfir því að vera ekki nægilega upplýstir um hvað þeir ættu að taka til bragðs og meira en 75% aðspurðra sögðu iðnaðarfyrirtæki ekki leggja næg lóð á vogarskálarnar þegar kæmi ...

Viðmiðunargildi fyrir heilsuverndarmörk eða lyktarmörk vegna brennisteinsvetnis hafa ekki verið sett hér á landi. Ef miðað er við leiðbeiningargildi Alþjóðaheilbrigðisstofnunar (WHO) hefur styrkur brennissteinsvetnis ekki farið yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík. Hins vegar hefur styrkurinn oft  farið yfir lyktarmörkin.

Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar keypti mælitæki árið 2006 til að mæla brennisteinsvetni (H2S) og hóf mælingar 22. febrúar sama ár í mælistöðinni ...
10. september 2008

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Sjóvá standa fyrir málþingi um loftlagsbreytingar og áhrif þeirra 1. október næstkomandi kl. 8:30 til 10:30 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1.

Á málþinginu munu tveir þekkir sérfræðingar, Rowan Douglas og dr. Ernst Rauch, flytja erindi. Einnig mun dr. Halldór Björnsson formaður vísindanefndar um loftlagsbreytingar fjalla um niðurstöður nefndarinnar um náttúruvá á Íslandi og Rögnvaldur ...

Færa má rök fyrir því að aldrei hafi verið eins nauðsynlegt og við núverandi efnahagsaðstæður að meta gaumgæfilega allar afleiðingar stórra ákvarðana, til að mynda á sviði orkunýtingar og þungaiðnaðar. Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra í skýrslu um umhverfismál sem lögð hefur verið fram á Alþingi.
Sjá frétt visir.is.

Sjá hér (á pdf) skýrslu umhverfisráðherra Þórunnar Sveinbjarnardóttur til Alþingis ...

Ríkisstjórn Íslands hefur að tillögu Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra samþykkt stefnumörkun Íslands um framkvæmd Samningsins um líffræðilega fjölbreytni. Með gerð stefnumörkunarinnar er unnið að því að innleiða markmið samningsins í íslenska stjórnsýslu og vera heildarrammi um stefnumótun stjórnvalda sem lþtur að verndun og sjálfbærri nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni landsins.

Í stefnumörkuninni er lögð áhersla á 10 meginmarkmið og 27 aðgerðir í þeim ...

Laugardaginn 13. september stendur AkureyrarAkademían fyrir afmælismálþingi til heiðurs kartöflum. Tilefnið er ekki eingöngu alþjóðlegt ár kartöflunnar í ár, heldur einnig 250 ára ræktunarafmæli kartaflna á Íslandi og það að 200 ár eru liðin síðan ræktun þeirra hófst í Búðargilinu á Akureyri.

Málþingið er styrkt af Menningarráði Eyþings og er hugsað sem blanda af fræðum, listum, ræktun og matargerð með ...
10. september 2008
Norski olíusjóðurinn hefur selt hlut sinn í alþjóðlega námuvinnslu- og hrávörurisanum Rio Tinto vegna skeytingarleysis félagsins í umhverfismálum. Rio Tinto á meðal annars kanadíska álfyrirtækið Alcan sem rekur álverið í Straumsvík. Samkvæmt Dow Jones-fréttaveitunni hefur sjóðurinn selt hlut sinn í Rio Tinto PLC fyrir 4,42 milljarða norskra króna og hlut sinn í Rio Tinto Ltd. Fyrir um 430 milljónir ...
Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna segir að ef fólk vill gera sitt til að berjast gegn loftslagsbreytingum ætti það að hafa einn kjötlausan dag í viku. Dr. Rajendra Pachauri, formaður nefndarinnar, segir breytingarnar á mataræðinu mikilvægar vegna mikillar losunar gróðurhúsalofttegunda frá nautgriparækt, sem og ræktun annarra dýra. „Það er frekar auðvelt að breyta mataræðinu borið saman við að breyta t.d. ferðamáta ...

Brot úr umsögn Skipulagsstofnunar v. stækkunar Hellisheiðarvirkjunar:

5.3.2 Gróður

Í umsögnum og athugasemdum hefur komið fram að áhrif á gróður vegna fyrirhugaðra framkvæmda innan virkjunarsvæðis verði ekki veruleg. Bent hefur verið á að mikil áhrif hafi komið í ljós við útstreymi heits vatns við rannsóknarholu á Hellisheiði, grunnt undir yfirborði og útfellinga úr gufu á gróður, einkum mosa ...

09. september 2008

Dagana 17. - 19. október nk. verður haldið námskeið að Sólheimum í Grímsnnesi og munu önnur þrjú námskeið fylgja í kjölfarið. Námskeiðin byggjast á mannspekikenningum/anthroposopy Rudolf Steiner um 7 ára tímabil lífsins og möguleika manneskjunnar til andlegs þroska. Leiðbeinandi er hollendingurinn Henk-Jan Meyer.

17. - 19. okt. 2008 - „7 ára tímabilin“ - Leiðbeinandi: Henk-Jan Meyer

14. - 16. nóv. 2008  -  „Heilsa og sjúkdómar ...

Ný reglugerð um þvotta- og hreinsiefni hefur tekið gildi. Með reglugerðinni eru innleiddar reglugerðir Evrópusambandsins sama efnis. Samræmdar reglur um markaðssetningu þvotta- og hreinsiefna tóku gildi í Evrópusambandslöndunum fyrir þremur árum og voru að þó nokkru leyti byggðar á eldri tilskipunum og starfsreglna þvottaefnaiðnaðarins.

Þvotta- og hreinsiefni innihalda yfirborðsvirk efni og með reglugerðinni eru gerðar strangari kröfur en fyrr um ...

09. september 2008

Gufa frá HellisheiðarvirkjunÍ framhaldi af fréttum um gróðurskemmdir vestan Reykjafells á Hengilssvæðinu hvetur Orkuveita Reykjavíkur til þess að málið verði rannsakað ofan í kjölinn, sérstaklega með það fyrir augum að kanna hvort starfsemi Hellisheiðarvirkjunar hafi haft áhrif þarna á. Ekki hefur orðið vart svipaðra gróðurskemmda við Nesjavallavirkjun, sem starfrækt hefur verið í tæpa tvo áratugi á sama jarðhitasvæði.

"Orkuveita Reykjavíkur tekur umræðu ...

Að fara í réttir var fastur liður í lífi flestra Íslendinga, fyrir ekki svo löngu síðan. Við réttir hittast sveitungar og fagna því að fé sé komið af fjalli og stutt í ný slátrað. Oft er kátt í réttunum og gaman fyrir börn og fullorðna að upplifa óðagotið og lætin. „Oft er miðað við að réttað sé föstudag eða fimmtudag ...

Soil Association, hin öflugu samtök á Bretlandi um vottun lífrænnar ræktunar, íhuga nú að hætta notkun hugtaksins „lífrænt“ þar sem það hafi fengið á sig neikvæðan blæ. Nýr forseti samtakanna, Monty Don, segir nauðsynlegt að bregðast við þeim vanda að fjöldi fólks telji lífrænt ræktaðar vörur aðeins vera fyrir efnað millistéttarfólk sem sé fyrst og fremst að láta undan löngun ...

Fróðleikur, skemmtun og útivist eru einkunnarorð Alviðru og eru þau í hávegum höfð þessa dagana, því nú er haustönnin hafin.

Það ríkti gleði og góður andi í haustblíðunni í Alviðru í dag þegar 6. bekkur Vallaskóla á Selfossi kom í Alviðru til að fræðast um lífið í vatninu.
Krakkarnir gengu út yfir Sogið og urðu vitni að því þegar veiðimaður ...

Að undanförnu hefur Náttúran.is greinilega náð athygli kennara í skólum landsins. Mikið er hringt og spurt um hvort nota megi upplýsingar af vefnum og af Náttúruspilunum okkar til kennslu og kynningar á hinum ýmsu umhverfisþáttum daglegs lífs.

Náttúran.is gefur að sjálfsögðu leyfi til slíks enda hlutverk vefsins að rata sem viðast og hafa sem mest áhrif á neysluvenjur ...

Stefna Evrópusambandsins um losunarheimildir á koltvísýringi í flugi gæti raskað samkeppnisstöðu Íslands og þrengt rekstrarsvigrúm íslenskra flugrekenda samanborið við aðra í Evrópu.

Þetta er ein niðurstaðan í lokaskýrslu stýrihóps um losunarheimildir í flugi sem samgönguráðuneytið skipaði. Markmiðið með setningu kvóta á losun koltvísýrings í flugi er einkum að draga úr losun hans en einnig að færa flugumferð á eins til ...

Samvinnunefnd um svæðisskipulag miðhálendisins skoðar hugmyndir um Skaftárveitu

Óskar Bergsson, formaður Samvinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendisins, hefur með fundarboði til nefnarinnar, dagsett 20. ágúst, sett á dagskrá ”Veitu í Langasjó og síðan í göngum inn á vatnasvið Tungnaár vestan Grænafjallgarðs. Orkugeta allt að 550 GWst/ári. Langisjór verður nýttur sem miðlun.

Þetta framtak Óskars Bergssonar stangast á við þá stefnu umhverfisráðherra ...

Árið 1999 fengu átta fyrirtæki og stofnanir fimm ráðuneyta styrk frá Rannís til að búa til frumgerð að samræmdum gagnagrunni um náttúru Íslands og var frumgerð skilað í lok árs 2004. Undir forystu Vatnamælinga fékkst styrkur frá stjórnvöldum og mótframlag frá Orkustofnun til loka árs 2008 til þess að halda áfram að þróa kerfið og efla samstarf stofnana sem búa ...

02. september 2008
Skiptar skoðanir eru meðal landsmanna um frekari uppbyggingu álvera hér á landi en næstum 38% landsmanna eru hlynnt frekari uppbyggingu álvera en tæplega 42% segjast andvíg. Landsmenn virðast þó sammála um að uppbygging netþjónabúa eða gagnavera sé eftirsóknarverð, en nálægt 85% landsmanna segjast hlynnt slíkri uppbyggingu en aðeins rúm 2% eru henni andvíg.
Opið bréf til Árna Mathiessen fjármálaráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra, Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, landbúnaðarráðherra og Kristjáns Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála.

Samþykkt aðalskipulag Skeiða-og Gnúpverjarhrepps er nú til skoðunar hjá Skipulagsstofnun. Í ljós hefur komið að skipulagsvinnan var ekki unnin í héraði eins og almennt gerist. Aðalskipulag sem gerir ráð fyrir þremur virkjunum í neðri hluta Þjórsár er unnið að ...

Í gær var undirritaður samstarfssamningur um jarðhitatækni milli ríkisstjórna Íslands, Ástralíu og Bandaríkjanna.

Markmið samningsins er að auka afrakstur jarðhitakerfa og vinna markvisst að þróun nýrrar hátækni við jarðhitanýtingu. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd.

Samkvæmt samningnum skuldbinda stjórnvöld sig til að leggja sig fram um að þróa og kynna hátækni á sviði jarðhitavinnslu, til að tryggja orkuöryggi ...

01. september 2008

Orð dagsins 28. ágúst 2008.

Um 40% af Ástralíu er enn nær ósnert af mönnum að því er fram kemur í nýrri skýrslu. Samtals eru víðerni Ástralíu um 3 milljónir ferkílómetra, eða um þrítugföld stærð Íslands. Í skýrslunni kemur fram að mikilvægt sé að vernda þessi svæði eftir föngum, því að í raun séu þau álíka mikilvæg fyrir lífríkið á ...

Efnisorð:


Grænar síður aðilar

Skilaboð: