Hreinlætisvörur
Vistvænar hreinlætisvörur eru til í miklu úrvali og margar þeirra umhverfisvottaðar. Oft er hægt að sleppa hreingerningarefnum við þrif ef notaðir eru örtrefjaklútar og náttúruleg efni eins og edik eða salt. Ofnotkun hreinsiefna er mikil og dýrkeypt fyrir umhverfið. Efnin hverfa ekki þegar þau eru komin í skolpleiðslurnar heldur enda þau í hafinu. Efnin eru áfram virk og geta ...




Náttúran.is hefur látið merkja sér EarthPositive™ stuttermaboli en við innkaup hér á Nátttúrumarkaði yfir 7.000 IKR netto fylgir bolur með sem gjöf. Bolirnir eru til í þremur stærðum og þremur litum, bæði fyrir dömur og herra.
Í Rømskog í Noregi er verið að byggja 4.000 fermetra heilsuhótel, sem verður eingöngu eingangrað með notuðum fötum. Það er fyrirtækið Ultimax, sem framleiðir einangrunina, en hún er sögð standa jafnfætis hefðbundinni einangrun að gæðum, auk þess að vera endurvinnanleg. Framleiðsla á einangrunarmottum úr notuðum fötum hófst hjá Ultimax í desember 2006. Nóg er til af hráefni, því að ...
George Osborne, sem fer með fjármál í skuggaráðuneyti Íhaldsmanna á Bretlandi, hefur lagt fram tillögur um að setja fót sérstakan hlutabréfamarkað til hliðar við Kauphöll Lundúna sem sérhæfi sig í grænum tæknifyrirtækjum.
Danmörk hefur verið útnefnd „Lífræna landið 2009“. Þetta var tilkynnt á stærstu alþjóðlegu lífrænu vörusýningunni í heimi,
Nú stendur yfir Norræn matarhátíð Kræsingar og kæti í Norræna húsinu í Reykjavík en hátíðin tengist Food & Fun hátíðinni að nokkuru leiti.
Stefán Gíslason umhverfisstjórnunar- fræðingur segist fá um 1-2 símtöl daglega frá fólki sem er að velta fyrir sér umhverfisþáttum í rekstri olíuhreinsistöðva, og þá aðallega orkunotkuninni. Hann fjallaði um það atriði í viðtali í Speglinum á RÚV 16. janúar sl. og skrifaði í framhaldinu vangaveltur í athugasemdadálk á bloggsíðunni sinni.
Nú stendur yfir hátíð um Norræna matarmenningu í Norræna húsinu en hátíðin var sett á sunnudaginn var og stendur fram á næsta stunnudag. Í dag miðvikudaginn 20. febrúar er dagkráin sem hér segir:
Nú stendur yfir hátíð um Norræna matarmenningu í Norræna húsinu en hátíðin var sett á sunnudaginn var og stendur fram á næsta stunnudag. Í dag þriðjudaginn 19. febrúar er dagkráin sem hér segir:
Samkvæmt nýrri rannsókn Sænsku þróunarsamvinnustofnunarinnar SIDA (Swedish Institute of Development Aid) er ástandið svo óstöðugt í um 50 ríkjum að loftslagsbreytingar geta leitt til alvarlegra stríðsátaka. Um 50 lönd til viðbótar eru í hættu samkvæmt skýrslu stofnunarinnar sem kom út í dag.
Græna netið, félag áhugamanna um umhverfismál í tengslum við Samfylkinguna, stendur á laugardaginn, 16. febrúar, fyrir heimsókn á Varmársvæðið í Mosfellsbæinn að skoða sig um undir leiðsögn heimamanna, njóta útivistar og þiggja veitingar. Samfylkingarfélagar og aðrir áhugamenn um samfélag og náttúru eru velkomnir með í skemmtilega og fróðlega ferð.
Að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Landbúnaðarháskóla Íslands er því haldið fram að hægt sé að auka hollustu brauðvara með því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti. Í byggi eru trefjaefni sem geta lækkað kólestról í blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur. “Miklar framfarir hafa orðið í kynbótum og ræktun ...
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra mælir fyrir þremur frumvörpum til laga á Alþingi í dag; frumvarpi til laga um mannvirki, frumvarpi til skipulagslaga og frumvarpi um breytingu á lögum um brunavarnir. Í frumvarpi til skipulagslaga er m.a. lögð áhersla á að auka þátttöku almennings að gerð skipulagsáætlana og að ríkisvaldið geti lagt fram heildstæða sýn í skipulagsmálum sem varða almannahagsmuni. Í ...
Á hverju ári eru þrjár milljónir ársgamalla norskra varphænsna aflífaðar með gasi og hent. Sala á kjúklingakjöti fer hins vegar ört vaxandi.
Bæjaryfirvöld í Björgvin í Noregi hafa bannað dreifingu fjölpósts í sveitarfélaginu, nema til þeirra sem merkja póstkassa og bréfalúgur með áletruninni „Já, takk“. Sams konar samþykkt var gerð í Aurskog-Høland á síðasta ári, en var síðan dregin til baka vegna utanaðkomandi þrýstings, m.a. frá norska Póstinum.
Írska ríkisstjórnin ætlar að gera mið-vesturhluta landsins að sérstöku fyrirmyndarsvæði með tilliti til orkunýtingar. Á svæðinu verður m.a. lögð áhersla á nýtingu vindorku og sjávarölduorku. Með þessu telja stjórnvöld skapast ný tækifæri fyrir framsækin fyrirtæki, sérfræðinga og sveitarfélög á svæðinu.
Á árinu 2007 voru byggð ný vindorkuver í löndum Evrópusambandsins (ESB) með uppsett afl upp á samtals 8.554 MW. Uppbyggingin í vindorku í álfunni varð þar með meiri en í nokkrum öðrum orkugjafa, en gasorkuver voru í öðru sæti með samtals 8.226 MW. Samanlagt afl kolaorkuvera og kjarnorkuvera minnkaði hins vegar á árinu. Í árslok 2007 var uppsett ...


Þalöt fundust í þvagi allra bandarískra ungbarna sem tóku þátt í þarlendri rannsókn, sem sagt er frá í febrúarhefti tímaritsins
Áhugi á „grænum fjárfestingum“ fer mjög vaxandi vestanhafs ef marka má nýja könnun sem gerð var fyrir