Nú fer í hönd mikil kertatíð. En ef manni er annt um komandi kynslóðir er ekki alveg sama hvernig kerti maður kaupir. Uppruni kertanna er nefnilega ærið misjafn.
Almennt talað er um tvo valkosti að ræða varðandi hráefni til kertaframleiðslu, annars vegar hráolíuafurðir og hins vegar afurðir úr (nýlegri) dýra- og plöntufitu. Líklega er parafín langalgengasta hráefnið. Það telst alls ...




Fjöldi félaga sem koma að náttúruvernd á Íslandi eykst stöðugt sem vísar til gríðarlegs áhuga breiðs hóps landsmanna á að taka þátt í verndun náttúrunnar. Hér er stutt yfirlit yfir félagaflóruna og starfsemi félaganna en þau hafa flest ákveðna sérstöðu og verja ákveðna hagsmuni umfram aðra:
Umhverfisráðuneytið vekur athygli útgerðarmanna og eigenda báta og skipa á að frá 31. desember 2008 er óheimilt að hafa og nota halón 1301 slökkvikerfi um borð í skipum og bátum. Þá vekur umhverfisráðuneytið athygli innflytjenda og notenda ósoneyðandi kælimiðla (vetnisklórflúorkolefna) að árið 2009 er síðasta árið sem heimilt verður að flytja þessi efni inn til landsins.
SORPA bs vill koma því á framfæri við íbúa höfuðborgarsvæðisins að nú um áramótin munu breytingar eiga sér stað á grenndargámakerfinu. Aukin tæki í flokkunarmálum gerir okkur nú kleift að endurvinna pappír og pappírsumbúðir á sama hátt. Móttökuaðili SORPU fyrir endurvinnanlegan pappír í Svíþjóð getur unnið pappírsefnið enn betur en áður hefur þekkst, flokkað það frekar og endurunnið í nýjar ...
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, ákváðu að árið 2008 yrði alþjóðlegt ár kartöflunnar. Þannig yrði árið notað til að vekja athygli á þessu hnýði, sem hefur verið ræktað hátt uppi í Andesfjöllum í Suður-Ameríku í 8.000 ár. Þar er erfðauppspretta kartöflunnar, það er að segja að þar er erfðafjölbreytni hennar mest.
Búið er að opna heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs á slóðinni
Orð dagsins 18. desember 2008.
Orð dagsins 17. desember.
Orð dagsins 16. desember 2008.
Umhverfisstofnun vill vekja athygli á eftirfarandi vegna innleiðingar reglugerðar
Á bloggsíðu Stefáns Gíslason „sjálfbæru bloggi“ fjallar hann um upplifun sína á fundi með Paul Hawken í Þjóðmenningarhúsinu þ. 14. desember:
Orð dagsins 12. desember 2008.
Leiðtogar Evrópusambandsins náðu í dag saman um aðgerðir í orku- og loftslagsmálum.
Tilskipun Evrópusambandsins um notkun og miðlun landupplýsinga (INSPIRE) tók gildi í maí á liðnu ári. Tilskipunin mun taka gildi hér á landi á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og nú er unnið að því í umhverfisráðuneytinu að undirbúa nauðsynlegar lagabreytingar vegna þess. Áskilið er að tilskipunin verði innleidd í íslenska löggjöf fyrir 15. maí 2009.
Orð dagsin 11. desember 2008.
Laugardaginn 13. desember kl. 14.00 heldur Paul Hawken opinn fyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu 15, í Bókasal á annarri hæð. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir!
Orð dagsins 10. desember 2008.
Smíðafélagið ehf í Keflavík hefur um nokkurra ára skeið endurnýtt tréspænir sem falla til á verkstæðinu og framleitt úr þeim eldivið fyrir arna og kamínur. Eldiviðarkubbarnir eru úr samanpressuðu sagi og spænum, án allra aukaefna. Bruni kubbanna er hægur og neistalaus. Eldiviðarkubbarnir eru náttúrulegur eldiviður úr efni sem annars væri sópað í ruslið og hent á haugana. 
Í
Föstudaginn 28. nóvember 2008, opnaði Samhjálp nytjamarkaðinn Allt milli himins og jarðar. 
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í dag í Poznan í Póllandi. Markmið fundarins er að færast nær samkomulagi um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda þegar Kýótó-sáttmáli rennur sitt skeið á enda árið 2012. Stefnt er að því að ljúka samningaviðræðunum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn á næsta ári.