Í dag er Bóndadagur svokallaður eða fyrsti dagur Þorra, en hann á sér langa sögu sem hefur ekkert með kaup á gjöfum að gera heldur á hann meira sammerkt með „ritúölum“ til að vingast við náttúruöflin.
Það er „skylda bænda“ „að fagna þorra” eða „bjóða honum í garð” með því að fara fyrstir á fætur allra manna á bænum þann ...



Á þessu ári ætla japönsk stjórnvöld að setja í gang 5 ára áætlun um nýtingu timburúrgangs sem orkugjafa. Meðal annars er ætlunin að verja allt að 10 milljörðum jena (um 6 milljörðum ísl. kr.) til að styðja við framleiðslu á etanóli úr sellulósa (beðmi), sem myndi þá leysa jarðefnaeldsneyti af hólmi, bæði sem orkugjafi og hráefni í efnaiðnaði. Gert er ...
Svo virðist sem framleiðendur freistist í auknum mæli til að skreyta vöruna sína með heimatilbúnum vörumerkjum, sem fá neytendur til að halda það þar sé eitthvað umhverfisvænt á ferðinni. Þessi merki eru oft með grænum laufblöðum eða einhverju því um líku. Þessi þróun tengist vafalítið vaxandi umhverfisvitund neytenda, sem viðkomandi framleiðendur reyna að mæta með þessum hætti.
Í dag hefst vika hinna endurnýjanlegu orkugjafa hjá Evrópusambandinu (European Union Sustainable Energy Week 2008). Þetta er annað árið í röð sem að slík vika er skipulögð og viðkvæðið í ár er „Taktu vikuna í að hugsa um morgundaginn“. Ný aðgerðaráætlun sambandsins um hvernig það hyggist stemma stigu við losun gróðurhúsalofttegunda á næstu árum verður sérstaklega kynnt.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs. Megin markmið frumvarpsins er að draga úr magni raftækjaúrgangs, auka endurnýtingu og endurnotkun á slíkum úrgangi og vinna að aukinni umhverfisvitund allra sem höndla með vöruna.
Göngum lengra og hjólum meira er Grænt skref í Reykjavík sem Gísli Marteinn Baldursson ný r formaður umhverfis- og samgönguráðs ætlar að vinna að á þessu ári. „Ég er sannfærður að hægt verði að margfalda þann fjölda í Reykjavík sem fer daglega leiðar sinnar gangandi, hjólandi eða í strætó,“ segir hann.
Um nokkra hríð hefur N1 undirbúið það að geta boðið upp á Biodísel á þjónustustöðvum sínum. Nýlega voru síðan opnaðar dælur fyrir Biodísel á þremur N1 þjónustustöðvum á höfuðborgarsvæðinu og stefnt er að því að hafa þær víðar. Biodísel er nú í boð á þjónustustöðvunum við Hringbraut, Skógarsel og Reykjavíkurveg.
Sviss er umhverfisvænsta land í heimi ef marka má lista bandarískra sérfræðinga sem birtur var í gær í tengslum við heimsviðskiptaráðstefnuna í Davos. Á listanum, sem ber yfirskriftina „Environmental Performance Index“, fær Sviss 95,5 stig af 100 mögulegum. Ísland er í 11. sæti með 87,6 stig. Noregur, Svíþjóð og Finnland raða sér í 2.-4. sæti, en Danmörk ...
Lífríki Norðurheimskautssvæðisins stafar vaxandi ógn af olíu- og gasvinnsla á svæðinu. Í skýrslu
Náttúrufræðistofnun vill vekja athygli á Hrafnaþingi á Hlemmi - opnum fræðsluerindum stofnunarinnar.
Nýja-Sjáland hefur sett sér það markmið að verða fyrsta koltvísýringsjafnaða land í heimi. Ríkisstjórnin í Wellington vill gera landbúnaðinn umhverfisvænan og þróa aðferðir til að draga úr losun nautgripa- og sauðfjárhjarða landsins á metan en nautgripa- og sauðfjárrækt er þar afar umfangsmikil.
Nú þegar að umræðan um olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum er farin á stjá á ný vakna spurningar um það hvað slík verksmiðja hefði í för með sér og hvað verið væri að tala um í umhverfislegu tilliti með því að planta niður olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum. Þá er gott að eiga fagfólk að sem að skoðar hlutina ofan í kjölinn og getur ...
Syngenta er fjölþjóðlegt fyrirtæki í líftækni sem starfar í 90 löndum. Þþskur bóndi að nafni Gottfried Glöckner stendur nú í málaferlum við það þar sem hann heldur því fram að erfðabreyttur maís frá fyrirtækinu hafi eitrað mjólkurkþr hans. Dómstóll í Frankfurt komst að þeirri niðurstöðu að fullnaðarsönnun lægi ekki fyrir um sekt en lagði til þá dómsátt að fyrirtækið greiddi ...
Sorphirðan í Reykjavík biður borgarbúa um að moka frá sorptunnum um helgina. „Þetta hefur verið þung vika fyrir starfsfólk sorphirðunnar,“ segir Sigríður Ólafsdóttir rekstrarstjóri hennar.
Hér t.v. á síðunni hefur nú verið opnað fyrir nýja áhugasviðsflokka og undirflokka sem eiga að auðvelda beint aðgengi að einstaka efnisflokkum sem hugur hvers og eins stendur til. Náttúran biður um biðlund lesenda sinna á meðan að verið er að virkja flokkana en það mun taka einhverjn tíma að ljúka við að flokka efni og setja fram á ...
Þrjár af hverjum fjórum tannkremstegundum innihalda efni sem geta verið skaðleg umhverfi og heilsu, svo sem ofnæmisvaldandi ilmefni, rotvarnarefni eða bakteríudrepandi efnið Triclosan. Þess er jafnvel dæmi að tannkrem, sem er sérstaklega ætlað börnum, innihaldi propþlparaben sem talið er geta truflað hormónastarfsemi líkamans.
Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld voru tekin fyrir hættuleg og tilbúin efni í neysluvörurm. Rætt var við Brynhildi Pétursdóttur ritstjóra Neytendablaðsins sem lýsti vel stöðu mála og sagði að hreinlætis- og snyrtivörur innihaldi oftar en ekki efni sem eru ekki einungis umhverfisskaðvaldar heldur hreint og beint hættulegir heilsu fólks.
Sá séríslenski ávani fjölmiðla að taka rannsóknir, niðurstöður umhverfismats og aðra útreikninga frá framkvæmdaaðilanum sjálfum sem heilagan sannleik kristallaðist á nokkuð spaugilegan hátt í kvöldfréttum ríkissjónvarpsins nú í kvöld. Þar var því haldið fram sem blákaldri staðreynd að „vegna lofslagsbreytinga og minnkunar jökla muni Hálslón Kárahnjúkavirkjunar fyllast af aurburði á 10.000 árum en ekki 500 eins og áður var ...
Í viðtali við Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðhera, í fréttum á Stöð2 í gær, kemur skýrt fram að honum finnist að slá eigi áformuðum virkjunum með tilheyrandi lónum í neðri hluta Þjórsár á frest eða hætta alfarið við framkvæmdirnar. Ljóst sé að engin sátt sé um það í samfélaginu að fara í vatnsaflsvirkjanir sem hafa með sér neikvæð umhverfisáhrif.
Nýr múr er risinn í Berlín, ekki til að króa íbúa austurhlutans frá kapítalismanum heldur til að minnka mengun í miðborginni.
Náttúran.is hefur fjallað um málefni sem snerta náttúru og umhverfi frá opnun vefsins þ. 25. apríl sl. Fréttir sem birtust fyrir þann tíma á vefnum Grasagudda.is eru einnig birtar hér á Náttúrunni og spannar Náttúran.is því umhverfistengdar fréttir allt aftur til ágústmánaðar 2005. Til að fá sem best yfirlit yfir það sem borið hefur á góma á ...