Það sem áður var skilgreint sem úrgangur eða rusl er í dag hráefni eða auðlind fyrir aðra framleiðslu. Úrgangur og rusl er ekkert annað en auðlind á villigötum. Næstum allt er hægt að endurnota eða endurvinna. Lykillinn er að flokka úrgang rétt til að það sé mögulegt. Röng flokkun getur gert að verkum að ómögulegt sé að endurvinna úrgang á ...
Þrátt fyrir að hægt sé að fá allar mögulegar snyrtivörur í verslunum landsins þá hefur áhuginn á að heimatilbúnum snyrtivörum aukist, sérstaklega hjá þeim sem láta sig varða hvaða efni eru í snyrtivörum. Margir hafa því horfið aftur í tímann til formæðra okkar og búið til sínar snyrtivörur sjálfir. Það er ekki endilega auðveldasta leiðin að búa til eigin snyrtivörur ...
Í bílskúrnum er að finna upplýsingar um fjölmörg atriði sem velta þarf vöngum yfir og taka ákvarðanir um varðandi bílinn. Það má fullyrða að allt sem í bílskúrnum fer fram snerti umhverfið og auðvitað heilsu okkar. Hér í þættinum Húsið og umhverfið er hvert rými hússins tekið fyrir og kafað ofan í einstök atriði sem snerta hið daglega líf okkar ...

Náttúrumarkaðurinn er vefverslun með náttúrlegar og vottaðar vörur, og er byggður upp eins og markaður með mörgum deildum. Þú velur deild eða sérverslun „Deildir“ sem þú vilt skoða vöruúrvalið í og getur síðan farið úr einni deild í aðra hvenær sem er þvi deildirnar eru alltaf sýnilegar hér til hægri á síðunni. Þú getur einnig leitað eftir vöru eftir leitarorðum ...
Oft er talað um eldhúsið sem hjarta heimilisins. Í eldhúsinu tökum við oft hvað stærstu ákvarðanir varðandi heilsuna og umhverfið. Hér í þættinum „Húsið og umhverfið“ er hvert rými hússins tekið fyrir og kafað ofan í einstök atriði sem snerta hið daglega líf okkar. Kíktu á eldhúsið, þú þarft ekki annað en renna yfir myndina og smella á einstaka hluti ...
Í samgönguþættinum er að finna upplýsingar um fjölmörg atriði sem velta þarf vöngum yfir og taka ákvarðanir um frá degi til dags. Flestallt varðandi samgöngur snertir umhverfið og auðvitað heilsu okkar. Hér í þættinum Húsið og umhverfið er hvert rými innan húss og utan tekið fyrir og kafað ofan í einstök atriði sem snerta hið daglega líf okkar, eitt af ...
Í baðherberginu og þvottahúsinu er hægt að finna fjölmörg atriði sem velta þarf vöngum yfir og taka ákvarðanir um. Flest þar snertir umhverfið með einum eða öðrum hætti og auðvitað heilsu okkar. Hér í þættinum „Húsið og umhverfið“ er hvert rými hússins tekið fyrir og kafað ofan í einstök atriði sem snerta hið daglega líf okkar.
Kíktu á baðherbergið og ...
Nú þegar það er farið að kólna og sólarstundum fer fækkandi þá þarf að fara að huga að því að gera garðinn kláran fyrir veturinn. Mikilvægt er að njóta garðsins og einnig fallegu litanna sem haustið býður upp á. Hér að neðan eru ýmis góð ráð um haustverkin.
Það skiptir miklu máli að fólk geri arfahreinsun einu sinni á hausti ...
Þar sem veturinn nálgast óðfluga er tilvalið að birta upplýsingar um harðkornadekk, sem koma í stað nagladekkja. Meðal þeirra sem hafa staðið að þróun harðkornadekkja er fyrirtækið Nýiðn hf.
Harðkornadekk eru einkum ætluð til vetraraksturs en hins vegar er ekkert því til fyrirstöðu að nota þau allt árið. Harðkornadekk fara sérstaklega vel saman með notkun ABS hemlakerfis og njóta sín ...
Það eru margar ástæður fyrir því að velja endurhlaðanlegar rafhlöður:
- Á móti hverri einni endurhlaðanlegri rafhlöðu þarf a.m.k. eittþúsund einnota, bæði vegna þess að það er hægt að hlaða margnota rafhlöður a.m.k 500 sinnum og þar að auki endast þær í hverri hleðslu allt að fjórum sinnum lengur en einnota.
- Mikill sparnaður. Meðal heimili notar gífurlegt ...
Í stóreldhúsum og mötuneytum eru spanhellur útbreiddar vegna hinna mörgu kosta sem þær bjóða upp á. Eftirspurn einkaaðila hefur stigaukist á sama tíma. Spanhellurnrar hafa ótrúlega fljótan upphitunartíma og svara breytingum á stillingum jafn hratt og örugglega og gas. Eina skilyrðið er að potturinn sé með botni sem leiðir segul. Með svona fljótlegri og nákvæmri hitun er meðal annars hægt ...
SagaMedica er tvímælalaust eitt áhugaverðasta fyrirtæki sem sprottið hefur upp á Íslandi á síðustu árum.
SagaMedica - Heilsujurtir ehf. var stofnað þann 27. júní árið 2000. Tilgangur með rekstri fyrirtækisins var að þróa og framleiða hágæða heilsuvörur úr íslenskum lækningajurtum og markaðssetja heima og erlendis. Að stofnun fyrirtækisins stóðu Dr. Sigmundur Guðbjarnason, Steiný ór Sigurðsson, Bændasamtök Íslands, Ævar Jóhannesson og Þráinn ...
![]()
Í gær birtist í Morgunblaðinu grein þar sem Landsnet kemur á framfæri að fyrirtækið hyggist gangast fyrir samkeppni um hönnun háspennumastra. Eins og kunngt er þráast Sandgerðisbær og Grindavík við að leyfa lagningu þrefaldrar háspennumastralínu í gegnum lönd þeirra til fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Landsnet hefur átt undir högg að sækja varðandi línulagnir ofanjarðar undanfarin misseri. Umræðan komst á skrið ...
Í dag var undirritaður samningur þeirra fjögurra aðila sem standa að verkefni sem beinist að því að binda koltvísýring í berg. Að verkefninu standa Orkuveita Reykjavíkur, Háskóli Íslands, Rannsóknarráð Frakklands og Columbia háskóli. Tilkynnt var um verkefnið nú í vor og vakti það strax verðskuldaða athygli enda gæti útkoma þess orðið gífurlega mikilvæg til að losa koltvísýring úr andrúmsloftinu.
Ferlið ...
Umhverfisráðherra kynnti í dag niðurstöður fyrstu úthlutunar losunarheimilda vegna gróðurhúsalofttegunda. Alls bárust nefndinni níu umsóknir og heildarfjöldi losunarheimilda sem sótt var um var 10.966.585 tonn. Úthlutað var til fimm umsækjenda alls 8.633.105 tonna losunarheimildum. Í greinargerð úthlutunarnefndar er gert grein fyrir niðurstöðum hennar og matsforsendum.
Alls hafði nefndin 10.500 þús. tonna losunarheimildir til úthlutunar vegna ...
Í gærkveldi var opinn fundur í félaginu Matur-Saga-Menning í Matarsetrinu Grandagarði 8 undir titlinum „Fróðskaparkvöld um jurtanytjar“. Viðfangsefni fundarins hitti greinilega í mark því gríðarlegt fjölmenni var á fundinum. Þegar mest var voru um tvöhundruð gestir á staðnum. Ræðumenn fundarins voru heldur ekki af lakara taginu og stóðu sig öll með afbrigðum vel.
Guðfinnur Jakobsson forstöðumaður Skaftholtsheimilisins og lífrænn garðyrkjubóndi ...
George, 9 ára hundur af Jack Russell Terrier kyni, bjargaði 5 krökkum frá tveimur grimmum Pit Bull hundum. George særðist alvarlega við björgunina og þurfti því að svæfa hann eftir átökin.
Richard Rosewarna, 11 ára drengur sem George bjargaði útskýrir að Pit Bull hundarnir hafi komið aftan að krökkunum og hafi ráðist á 4 ára bróður sinn Darryl Wilson þegar ...
Skemmtilegt atvik hefur komið upp í dýragarði í Indonesíu. Tveir Sumötru tígrisdýraungar og tveir Urangutan apaungar sem allir voru yfirgefnir við fæðingu, eru orðnir óaðskiljanlegir eftir að hafa deilt saman herbergi í dýragarðinum.
Í dag hefst Norrænt heimilsiðnaðarþing og lýkur því þ. 30. september. Þingið er haldið á Grand Hótel í Reykjavík, fjallar um hvernig handverksmenn og hönnuðir geta sótt innblástur í menningararfinn og samanstendur af fjölbreyttri dagskrá með sýníngum í Norræna húsinu, Gerðubergi og Árbæjarsafni, tíu fyrirlestrum og dagsferðum auk þess sem að mynsturbókin íslenska kemur út.
Efnahagsleg og félagsleg áhrif handverks ...
Allir hafa gaman af því að hlæja. Hláturinn lengir lífið. Hér að neðan má sjá "sketch" úr þættinum In Living Color. Í þessu atriði fer Jim Carrey með hlutverk umhverfissinna.
Eins og margir hafa eflaust tekið eftir hefur undanfarið verið umtalsverð umræða um mengun frá bílaumferð, enda hefur hún aukist verulega síðustu ár. Mest hefur þessi umræða snúist um notkun nagladekkja.
Margir ökumenn treysta sér ekki út á göturnar eftir að bera fer á hálku öðruvísi en á negldum dekkjum. Gatnamálayfirvöld kvarta hins vegar sáran yfir mikilli nagladekkjanotkun, enda fræsa ...
Umhverfisþing verður haldið að Hótel Nordica dagana 13.-14. október nk. Dagskrá Umhverfisþings 2007 er sem hér segir:
Föstudagur 12. okt.
09.00 - 10.40 Þingsetning
09.00 - 09.25 Ávarp: Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra
09.25 - 10.00 Ávarp: Achim Steiner, framkvæmdastjóri UNEP
10.00 - 10.10 Ávarp: Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur, fulltrúi umhverfisverndarsamtaka
10.10 - 10.20 Ávarp: Þórður ...
Framtíðarlandið vill í vetur beita sér fyrir sérstakri vitundarvakningu meðal almennings um Árósasamninginn, og boðar af því tilefni til fræðslu- og umræðufundar um samninginn og hugsanlegar afleiðingar af upptöku hans. Fundurinn hefst klukkan 17:00 fimmtudaginn 27. september og verður haldinn á fjórðu hæð í Iðusölum, Lækjargötu.
Mörg ríki heims standa nú frammi fyrir því hvernig eigi að skilgreina lagalega ...
Mexíkóskar konur hafa stofnað samtök til verndunar skóga í Guerrero fylki í Mexíkó. Þessi samtök eru þó ekki ný leg því samtökin voru stofnuð árið 2001. Samtökin nefnast OMESP (Women´s Environmentalist Organisation of the Sierra of Petatlan) og er hlutverk þeirra að efla vistvænan og lífrænan landbúnað, koma í veg fyrir skógarelda, varðveita vatn og jarðveg, og standa að ...
Mikilvægt er að taka tillit til umhverfisins við rannsóknir og kennslu úti í náttúrunni. En hvernig er hægt að samþætta umhverfisvernd, rannsóknir og kennslu?
Á árinu 2004 var hleypt af stokkunum verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um það hvernig best mætti tryggja að tillit verði tekið til umhverfissjónarmiða við rannsóknir og kennslu á háskólastigi á heimsskautssvæðum Norðurlanda, Grænlandi, Íslandi og ...
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent utanríkisráðherra bréf* í tilefni sérstaks fundar sem aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban-ki Moon hefur boðað til á mánudag. Markmið aðalritarans er auka þrýstingin á aðildarríkin að ná árangri á næsta fundi Loftslagssamningsins á Bali í Indónesíu í desember n.k. Þar verður að takast samkomulagi um hvernig ná skuli samningum um næsta skref Kyoto-bókunarinnar eigi síðar en ...
Í dag var opnuð fræðslusýning um sjálfbæra þróun í Gamla bókasafninu, Mjósundi 10 í Hafnarfirði. Sýningin byggir á hugmyndum Jarðarsáttmálans, sem saminn var af nefnd skipaðri af Sameinuðu þjóðunum. Í nefndinni sat fólk frá öllum heimshornum og öllum stigum þjóðfélagsins. Sáttmálinn byggist á þeim grundvallaratriðum sem einstaklingar, fyrirtæki og þjóðir þurfa að tileinka sér til að hægt sé að skapa ...Íslensk matarhefð og kynning á möguleikunum sem henni tengist er viðfangsefni félagsins Matur-Saga-Menning, en félagið heldur kynningarfund í Matarsetrinu miðvikudagskvöldið 26. september kl. 20:30. Fundurinn er ókeypis og opinn öllum áhugasömum.
Meðal þeirra sem koma fram á fundinum er Hildur Hákonardóttir og Hannes Lárusson, bæði myndlistarmenn með sterkar taugar til náttúrunnar. Hildur ræðir um sölvatöku og Hannes um notkun ...
Umhverfisstofnun birti nýlega niðurstöður rannsókna frá Lancet frá 6. september sl. sem breska matvælastofnunin (Food Standard Agency) vann í samráði við háskólann í Southampton. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort neysla á blöndu af nokkrum litarefnum og einu rotvarnarefni hefði áhrif á hegðunarmunstur barna. Um er að ræða eftirfarandi efni:
Litarefnin: tartrasín (E 102), quinoline yellow (E104), sunset yellow FCF ...
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur nú um árabil unnið að aukinni fræðslu um neikvæð áhrif útfjólublárrar geislunar og hvernig helst megi verjast henni. Síðastliðið haust sendi framkvæmdastjórnin frá sér svonefnd tilmæli þar sem staða þekkingar á málefninu er rakin, hvatt til samhæfðrar,vandaðrar fræðslu og línur lagðar fyrir framleiðendur sólvarnarvara um prófanir o.fl. Tilmælin má finna hér (á ensku), en ...
Vegagerðin og Roadex efna til ráðstefnu um umferðalitla vegi á norðurslóðum á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík. Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 21. september 9:00 – 16:00
Aðgangur á ráðstefnunna er ókeypis en skráning er nauðsynleg*.
Roadex verkefnið fjallar um gerð, uppbyggingu og rekstur fáfarinna vega á norðurjaðarsvæðum Evrópu. Fjallað verður um eftirtalin efni, en skýrslur Roadex um þau ...
Landvernd skorar á Hitaveitu Suðurnesja vegna Múlavirkjunar.
Orkusamningur verði endurskoðaður ellegar sagt upp
Með ákvörðun sinni um að gera tilteknar breytingar á virkjuninni braut Múlavirkjunar ehf. gegn ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og í ferlinu hefur e.t.v. einnig verið brotið á fleiri lögum. Nánari skoðun mun væntanlega leiða það í ljós. Landvernd telur orkukaup Hitaveitu Suðurnesja ekki samræmast umhverfisstefnu ...
Nú er komið á markað færanlegt eldhús sem gengur fyrir sólarorku. Hönnuðir eldhússins eru starfsmenn argentíska stúdíósins Xcruza. Markmið hönnuðanna er að eldhúsið verði mikið notað í framtíðinni og hafi einnig jákvæð áhrif á nýtingu sólarorku.
Þó sólarorku-eldhús séu fáanleg í Evrópu og Bandaríkjunum þá hafa þau ekki verið fáanleg í Argentínu. "Tæknin á bak við eldhúsið er það einföld ...
Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt tillögu Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra um að settur verði á fót starfshópur ráðherra sem hafi það hlutverk að móta samningsmarkmið Íslands í væntanlegum viðræðum um samkomulag um loftslagsmál eftir 2012. Umhverfisráðherra mun leiða hópinn en auk hennar eiga sæti í hópnum Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Á alþjóðavettvangi fer nú ...
Í 1.300 borgum Evrópu er um þessar mundir haldin Samgönguvika. Vitundarvakning um nauðsyn þess að draga úr mengun af völdum umferðar og hvatning til breyttra og betri samgönguhátta er hvatinn að átakinu. Samgönguvikan í Reykjavík hófst á sunnudaginn og nefnist „Samgönguvikan 2007 - Stræti fyrir alla“.
Auknar hjóreiðar er einn af þeim samgöngumátum sem lögð er áhersla á á Samgönguviku ...
Fimmtudaginn 13. september fór fram ökutækjakeppni VOR (vettvangur um orku- og stóriðjurannsóknir) og Orkuveitu Reykjavíkur. Vistvænustu bifreiðar landsins tóku þátt í keppninni þar sem kappið í akstrinum snerist um sparneytni og lágan eldsneytiskostnað.
Markmið keppninnar var að vekja athygli á mengun frá ökutækjum ásamt orkueyðslu og beinum orkukostnaði ökutækja. Jafnframt var tilgangurinn að vekja almenning til meðvitundar um þá valkosti ...
Í hádeginu í dag mánudaginn 17. september opnaði forseti Íslands, Herra Ólafur Ragnar Grímsson fyrstu etanól (E85) dælustöðina á Íslandi. Eftir stutt ávörp fyllti forsetinn svo á etanól/bensín bifreið sem Gísli Marteinn Baldursson ók síðan á brott. Farþegar Gísla voru fulltrúar sænskra aðila en etanólið er unnið úr afgangsvið sjálfbærra skóga í Svíþjóð.
Í ávarpi sínu nefndi Herra Ólafur ...
Kostir Reva rafmagnsbílsins eru endalausir. Einn þessara kosta er hversu hljóðlátur bíllinn er ...
Mörg íslensk stórfyrirtæki höfðu lýst yfir miklum áhuga á að hafa möguleika á vistvænum leigubílum og því hafi þeir hjá Leigubílastöðinni verið að svara aukinni eftirspurn segir Björn Þorvarðarson, framkvæmdastjóra hjá Leigubílastöðinni 5678910 ...
Í gær opnaði umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir sýninguna „Framhaldslíf hlutanna“ í Hönnunarsafni Íslands að Garðatorgi 9 í Garðabæ. Hún stendur til 30. september og er opin frá klukkan 14:00 til 18:00 alla daga nema mánudaga.
Boðskapur sýningarinnar er sá að varla sé lengur hægt að ræða fagurfræði og nytsemi hönnunar án þess að taka tillit til þeirra áhrifa sem ...
Í dag opnaði bílaþningin „Visthæf farartæki“ en sýningin er fyrsti liður í átaki Framtíðarorku sem stendur einnig fyrir ráðstefnunni Driving Sustainability ´07 þ. 17. og 28. september n.k.
Á morgun hefst síðan Samgönguviku í Reykjavík. Formleg opnun Samgönguvikunnar verður á morgun sunndaginn 16. september kl. 14:00 i Perlunni. Sjá sérblað um Samgönguviku í pdf. Hálftíma seinna verður verðlaunahafi ...
Í frétt á vef Landverndar kemur fram að forsendur fyrir byggingu álvers í Helguvík séu í raun brosnar þar sem byggingarnefnd Grindavíkur hafnaði nýjum háspennulínum nema að þær yrðu lagðar í jörðu eða lægju samhliða núverandi háspennulínum. Í fréttinni segir m.a.:
Á fundi hjá skipulags og bygginganefnd Grindavíkur þann 13. september 2007 var öllum valkostum Landsnets um orkuflutninga í ...
Náttúran.is verður einn sýningaraðila á sýningu um visthæf ökutæki í nútíð og framtíð. Þetta er málefni sem margir hafa áhuga á enda er það einmitt með vali á ökutæki og samgönguháttum sem flestir geta látið til sín taka í takmörkun gróðurhúsalofttegunda.Markmiðið með sýningunni er að búa til vettvang þar sem bifreiðaumboð geta komið á framfæri og almenningur, fjölmiðlar ...
Tilraunir með að „krydda“ lambakjöt áður en lömbunum er slátrað hefur skilað góðum árangri en fyrstu sérræktuðu hvannarlömbunum var slátrað í Dölunum nú í haust.
Síðustu vikur fyrir slátrun var lömbunum beitt á hvönn [Angelica Archangelica] og þannig fékkst merkjanlegur munur á bragði kjötsins. Verkefnið er talið vera vísir að skemmtilegri tilbreytingu í lambakjötsframleiðslu og geta gefið framleiðendum forsköt í ...
Flöskuvatn inniheldur mun meira af bakteríum en venjulegt kranavatn samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var fyrir Aftonbladet í Svíþjóð. Franskt vatn frá Evian kom verst út, en í því mældust 5.000 bakteríur í millilítra eftir þriggja sólarhringa ræktun. Leyfilegt hámark fyrir kranavatn er 100 bakteríur, en í Svíþjóð eru ekki gerðar sambærilegar kröfur til flöskuvatns. Sérfræðingar benda á að ...
Við þurfum nauðsynlega á hjálp ykkar að halda.
„Við“ erum nokkrir íbúar við neðri hluta Þjórsár þar sem áætlað er að reisa þrjár nýjar vatnsaflsvirkjanir þ.e. „Urriðafossvirkjun“, „Holtavirkjun“ og „Hvammsvirkjun“.
Þetta svæði og reyndar stórir hlutar alls Suðurlands er eitt virkasta jarðskjálftasvæði á Íslandi. Afleiðingar stíflurofs yrðu geigvænlegar fyrir allt svæðið en þó að stíflurof komi ekki til er ...
Umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun boða til málstofu föstudaginn 14. september í tilefni af 20 ára afmæli Montrealbókunarinnar. Málþingið fer fram á Hótel Loftleiðum og stendur frá kl. 9:00 til 12:00. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Montrealbókunin um verndun ósonlagsins var undirrituð 16. september 1987 í Montreal í Kanada og hefur þessi dagur verið valinn „Dagur ósonlagsins“. Montrealbókunin er talin ...
Rjúpum fækkar nú annað árið í röð frá síðasta uppsveifluskeiði, en ...
Eftirspurn eftir fiski sem hefur hlotið vottun um sjálfbærar veiðar hefur aukist mikið á síðustu árum og ...
Reykjavik Energy Invest, nýstofnað fjárfestingafélag Orkuveitu Reykjavíkur bætist í orku- útrásarsveitina í dag. Undir stjórn Bjarna Ármannssonar fv. forstjóra Glitnis hyggst fyrirtækið standa að djúpborunarverkefnum ásamt Geysir Green Energy og kostnaðarsömum rannsóknum með það að markmiði að flytja út tækniþekkingu á þessu sviði. Útrás REi hefst í raun formlega Í dag þegar forsvarsmenn fyrirtækisins undirrita viljayfirlýsingu um samstarf við stærsta ...
Nú er að hefjast háskólanám í umhverfisfræðum á Sólheimum eftir um árs þróunarvinnu Sesseljuhúss umhverfisseturs á Sólheimum og bandarísku menntasamtakanna CELL. Það var Dave Oakes, forsvarsmaður CELL, sem átti frumkvæðið að þessu samstarfi en CELL stendur fyrir “Center for Ecological Learning and Living”. Þessi menntasamtök bjóða bandarískum háskólanemum upp á svokallað “study abroad” nám en þá gefst nemendum tækifæri á ...
Anita Roddick, stofnandi Body Shop er látin 64 ára að aldri. Hún lést í gær, 10. september 2007.
Árum saman voru örfáar vörur sem merktar voru "against animal testing" en eftir að Anita Roddick stofnaði Body Shop hefur hún átt mikinn þátt í því að stuðla að hollum og grænum vörum.
John Sauven, framkvæmdarstjóri Greenpace sagði um Roddick:
"Hún var ...
Í fréttatilkynningu frá Saving Iceland segir:
Þann 12. September n.k. verða haldin mótmæli af ýmsum toga gegn útbreiðslu stóriðju, víða um heim. Saving Iceland hreyfingin er hluti af þessu átaki en útfrá baráttunni á Íslandi hafa Saving Iceland liðar lagt sig fram um að mynda tengsl við baráttuhópa gegn stóriðju í öðrum löndum. Fyrirtækin sem barist er gegn er ...
Mercedes er mikill frumkvöðull hvað varðar "græna" bíla. Af þeim 19 bílum sem verða sýndir ...
Þessa dagana er unnið að því að breyta Toyota Prius tvinnbíl í tengiltvinnbíl. Breytingin sem slík er einföld en mjög kostnaðarsöm. Breskir sérfræðingar vinna nú að breytingunum í húsakynnum Arctic Trucks. Aðeins eru til örfáir tengilbílar í heiminum enda tæknin enn á tilraunastigi. Bílaframleiðendur keppast nú um að verða fyrstir til að geta boðið upp á fjöldaframleidda tengiltvinnbíla. Sá sem ...
Kiva er smálánasjóður sem er starfræktur af hugsjón og án væntinga um efnhagslegan gróða. Einstaklingar leggja til fjármagn í litlum og stórum skömmtum og því er síðan úthlutað sem lánum til einstaklinga í þróunarlöndum sem þurfa oft smástuðning til að komast af stað með rekstur eða stækka hann í hagkvæmara form. Láný egar greiða síðan til baka og þá fær ...
Á vef Sorpu getur þú farið í skemmtilega leiki t.d. orðaruglið, krossgátuna, fundið samstæður, fundið rétt dót í eiturefnakörfuna, búið til moltu úr lífrænum afgöngum, flokkað rusl og litað í litabókina. Fara í leiki.
Foreldrarni get líka lesið sig til og fengið leiðbeiningar og lært og leikið sér í leiðinni.
Þann 17. september nk. verður fyrsta etanóldælan á Íslandi opnuð. Brimborg er í forsvari fyrir framtakinu sem er tilraunaverkefni en dælan verður staðsett á eldsneytisstöð Olís við Álfheima. Þó að aðeins tveir etanólbílar séu um hituna, báðir innfluttir af Brimborg, markar þetta tímamót á Íslandi. Bílarnir eru af gerðinni Volvo C-30 og Ford C-Max, báðir „flexifuel“ sem þýðir að einnig ...
Í Bretlandi hefur broddgelti og gráspör verið bætt á lista yfir dýr í útrýmingarhættu, einkum vegna eyðileggingar á heimkynnum.
Gaukurinn, uppskerumúsin og önnur þekkt dýr úr breskum bókmenntum og tónlist munu hljóta sérstaka vernd og aukningu á fjölda villtra heimkynna. (Sjá glærusýningu af breskum dýrum í útrýmingarhættu.)
Aðgerðaáætlunin, sem er endurskoðuð á hverjum áratugi, hefur tvöfaldað fjölda tegunda úr 577 ...
Enn og aftur hefur leikfangarisinn Mattel þurft að innkalla framleiðslu frá Kína. Í þetta sinn hafa 850 þúsund leikföng verið innkölluð. Um ellefu einstaka hluti er að ræða, þ.á.m. Barbie-fylgihluti. Neytendastofu barst tilkynning frá Mattel um að tíu af þeim ellefu leikföngum sem um ræðir séu í verslunum hérlendis. Það liggur í augum uppi að ekki tekst að ...
Náttúrumarkaðurinn bætir stöðugt við úrvalið og getur nú boðið upp á fjórar vörur frá Forever Living Products. Aloe Vera geldrykk til inntöku , Aloe Vera húðgel, Aloe Vera tannkrem og býflugnaprópólistöflur.
Sjá nánar um eiginleika Aloe Vera plöntunnar.
Eygerður Þorvaldsdóttir sjúkraliði er sjálfstæður dreifingaraðili fyrir vörurnar og veitir persónulega ráðgjöf í síma 858- 7681 eða á hammers@isl.is. Eygerður er ...
Það eru til um 200 tegundir af Aloe Vera plöntum í heiminum en sú sem hefur mestu næringar- og lækningaeigileika er Aloe Vera Barbadensis Miller. Þessi planta hefur þykk og safarík blöð og vex best í heitu og þurru loftslagi, hún líkist kaktus en er meðlimur í liljulauksfjölskyldunni íkt og hvítlaukur. Báðar plönturnar hafa mikla næringar- og lækningaeiginleika. Lækningareiginleikar Aloe ...
Náttúrumarkaðurinn vex stöðugt og býður nú einnig til sölu vörur frá Heilsu hf. Mikið úrval af lífrænum matvörum, vítamínum, bætiefnum, hreinlætisvörum og snyrtivörum hafa því bæst við vöruúrvalið á markaðinum.
Náttúrumarkaðurinn hefur það markmið að vera tengiliður milli neytenda og söluaðila sem stunda vistvæn og umhverfismeðvituð viðskipti og byggja upp óháð markaðstorg til að auka veg umhverfisvænna viðskipta. Vottanir og ...
Vegna umræðu um fyrirhugaða álþynnuverksmiðju á Akureyri vill Áhugahópurinn um verndun Jökulsánna í Skagafirði koma eftirfarandi á framfæri:
Á sama tíma og unnið er að undirbúningi álverksmiðju við Húsavík með tilheyrandi virkjunum, stendur til að afgreiða samning um álþynnuverksmiðju á Akureyri. Landsvirkjun hefur undirritað orkusölusamning við Becromal, eiganda fyrirhugaðrar álþynnuverksmiðju, um að selja því 75 MW í byrjun. Auk þess ...
Alþjóðlegu samráðsþingi um jarðveg, þjóðlíf og loftslagsbreytingar lauk í gær með hátíðardagskrá á Hótel Selfossi. Landgræðsla ríkisins stóð fyrir samráðsþinginu til að minnast 100 ára afmælis landgræðslustarfs hér á landi. Samráðsþingið var haldið í samstarfi við þrjár innlendar stofnanir og átján erlendar stofnanir og samtök á sviði jarðvegsverndar og þróunarmála.
Forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson flutti hátíðarræðu. Hann byrjaði ...
Landgræðsla ríkisins vekur athygli á áhugaverðri lokadagskrá samráðsþingsins um jarðveg, samfélög og hnattrænar breytingar (International Forum on Soils, Society and Global Change), sem öllum er opin. Samráðsþingið er haldið í tilefni af 100 ára afmæli landgræðslu í landinu.
Hátíðarerindi heldur forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, verndari samráðsþingsins.
Gerð verður grein fyrir niðurstöðum samráðsþingsins. Meðal annarra fyrirlesara eru Rajendra Pachauri ...
Landsvirkjun sótti um leyfi ...
Enn hefur bæst í sólarflóruna á Suðurlandi. Í kjölfar stofnun Sólar á Suðurlandi og Sólar í Flóa var nú í vikunni fundað í Rangárþingi þar sem Sólin í Rangárþingi fæddist. Baráttan um Þjórsá og andstaða heimafólks við áformaðar virkjanir i neðri hluta Þjórsár magnast þvi stig af stigi. Rökin gegn virkjununum hrannast upp, sérfræðingar kveða sér hljóðs og skýrslur eru ...

