:
Flugeldarusl, sprengitertur og jólapappír til Sorpu, ekki í heimilissorpið!
Um hver jól og áramót „framleiðum“ við gífurlegt magn af rusli. Til að minnka neikvæð áhrif af sorpi sem hlaðið er eiturefnum og óendurvinnanlegum ögnum, bendir Sorpa á bestu leiðirnar til að koma slíku rusli til endurvinnslu eða förgunar.
T.a.m. flokkast jólapappír með glimmeri og málmögnum ekki undir venjulegt pappírsrusl og verður að flokka sem óendurvinnanlegt sorp.
Í tilkynningu frá Umhverfissviði Reykjavíkur segir að búast megi við því að skotkökur og flugeldar liggi eins og hráviði um borgina á nýársmorgun og segir rekstrarstjóri sorphirðunnar að ekki sé æskilegt að setja skotterturnar í ruslatunnurnar.
this article continues, read more...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. December 2006 18:44
Origin:
Sitt af hvoru tagi - Fjáröflun Hjálparsveitanna
Nú stendur hinn árlegi atburður „sprengjum gamla árið í tætlur“ fyrir dyrum. Sprengigleði landsmanna virðist aukast ár frá ári og hafa verð eða mengun þar engin áhrif á. Talið er að hér á landi verði skotið á loft þúsund tonnum af sprengiefni í ár.
Í stóra samhenginu eru áhrifin gífurlega neikvæð fyrir umhverfið og er í raun ófyrirgefanleg forheimskun að úða þessum eiturefnum út í andrúmsloftið, jarðveginn og í lungun á okkur. En viljinn til að sprengja og hrökkva í kút eitt og eitt augnarblik í senn og gapa af undrun og aðdáun yfir ljósarósum á lofti einn dag á ári, er kannski skárra en að sprengiþörfin brjótist út á enn neikvæðari hátt, út allt árið.
Kannski verðum við mennirnir að viðurkenna fyrir sjálfum okkur að við séum villidýr, getum ekki annað en unnið spellvirki á umhverfinu vegna árásargirni okkar, sem verður að fá útrás, hvað sem það kostar.
this article continues, read more...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. December 2006 01:06
Origin: Náttúran.is
Að ræna Héraðsvötnum - Fundur Áhugahóps um verndun Jökulsánna í Skagafirði vel sóttur
Rúmlega tvö hundruð manns sóttu baráttufund fyrir verndun Jökulsánna í Skagafirði sem haldinn var í félagsheimilinu Árgarði, þriðjudagskvöldið, 28. 11. 2006 og var þar með orðinn húsfyllir. Á fundinum voru flutt erindi um náttúru, virkjanamál og framtíð Skagafjarðar og Sigurður Hansen bóndi og skáld í Kringlumýri flutti ljóð.Fundurinn samþykkti ályktun um að skora á sveitarstjórnir Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps að gera ekki ráð fyrir virkjunum í Jökulsám Skagafjarðar í tillögum að aðalskipulagi.
this article continues, read more...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
30. December 2006 03:41
Origin: jokulsar.org
Svartolía og dísilolía úr tönkum Wilson Muuga endaði að hluta til í sjónum
this article continues, read more...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
29. December 2006 01:23
Origin: Umhverfisstofnun

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | may |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | may |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | may |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | may |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
sunday 19. may
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Ávextir
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013



Náttúran.is á Facebook.




