Andri Snær um Stopp söfnunina

Andri Snær Magnason
höfundur

None

Náttúran.is
framleiðandi

Náttúran.is er sjálfstætt starfandi vefsetur með aðaláherslu á að þjóna hinum almenna neytanda með áreiðanlegum upplýsingum um allt sem snertir umhverfi okkar og heilsu. Í raun er hér allt undir, nærumhverfi okkar og náttúran sjálf sem og heimilið, neyslan og fyrirtækin sem upplýstir borgarar vilja fá til aðstoðar við að skapa sjálfbæra framtíð.

Náttúran.is var stofnuð árið 2006.
Stofnandi og framkvæmdastjóri Náttúrunnar er Guðrún Arndís Tryggvadóttir.

Náttúran.is hlaut Kuðunginn fyrir árið 2011 fyrir „framúrskarandi vefsíðu um umhverfismál, og jákvæð áhrif þess á almenning og fyrirtæki.“  Segir í ...


Tengt efni:

Kvikmynd Darrens Aronofsky, Noah, var tekin upp hér á landi að hluta til á árinu 2012. Við tökur á myndinni lagði Darren mikla áherslu á valda engu raski á náttúrunni. Kvikmyndin Noah verður frumsýnd í Sambíóunum Egilshöll þann 18. mars kl. 17.30. Um kvöldið þ. 18. mars verða síðan haldnir tónleikar í Hörpu til stuðnings náttúruvernd á Íslandi, þar sem fram koma; Björk, Lykke li, Patti Smith, Of Monsters and Men, Retro Stefson og fleiri. 

Tilkynnt var um stórtónleikanaþ. 3. mars en þeir verða haldnir til verndar „garðinum okkar, Íslandi“ sem vegið er að úr öllum áttum um þessar mundir. Á blaðamannafundinum sem boðið var til í Hörpu síðdegis í dag lýsti kvikmyndleikstjórrinn Darren Aronofsky og Björk Guðmundsdóttir, á Scype, yfir stuðningi við baráttu Náttúverndarsamtaka Íslands og Landverndar og ánafna öllum ágóða af tónleikunum og heimsfrumsýningu kvikmyndarinnar Noah, samtökunum báðum sem axla það brýna verkefni að standa vörð um „garðinn“ okkar. Forsala á tónleikana hefst á morgun.

Takmarkað magn miða er í boði á bæði kvikmyndasýninguna og tónleikana. Allir listamenn gefa vinnu sína og sérstakur söfnunarreikningur hefur verið opnaður og renna öll framlög óskipt til Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands: kt. 640971-0459/0301-26-302792

Eftirfarandi manifesto var lesið upp á fundinum:

Manifesto fyrir náttúruvernd - Stopp Gætum garðsins

Um heim allan hefur náttúru og umhverfi verið fórnað á altari þróunar sem aldrei getur talist sjálfbær. Regnskógum er eytt, vatnsföll stífluð, landi eytt, vatn og höf menguð, loftslagi jarðar breytt og höfin súrna ört.Á Íslandi hefur Kárahnjúkavirkjun orðið táknmynd þeirra eyðileggingar sem ógnar tilvist mannsins á jörðinni. Það er skylda okkar að vernda íslenska náttúru og skila henni heilli til framtíðarkynslóða.

Hálendi Íslands, stærsta víðerni í Evrópu þar sem ósnortin og lítt snortin náttúra fá enn notið sín, er ekki bara athvarf og fjársjóður okkar sem erfðum og munu erfa þetta land heldur heimsins alls. Hvergi annars staðar er að finna Mývatn, Þjórsárver, Sprengisand, Skaftafell og Langasjó.

Við krefjumst þess að Þjórsárver, víðernin vestan Þjórsár og fossarnir í Þjórsá verði verndaðir til allrar framtíðar. Við mótmælum harðlega áformum umhverfis- og auðlindaráðherra um breytt friðlandsmörk í Þjórsárverum til að skapa rými fyrir Norðlingaölduveitu eða annað miðlunarlón við Þjórsárver. Sú lagatúlkun ráðherra að allir virkjunarkostir eða náttúrusvæði séu undir í hverjum nýjum áfanga rammaáætlunar er aðför náttúru landsins og stenst vart lög.

Við höfum einstakt tækifæri núna til að gera hálendið allt að einum þjóðgarði með lögum frá Alþingi. Þar með verði hálendi Íslands sett undir eina skipulagsstjórn og skýrt afmarkað. Þar með heyri öll áform um lagningu raflína, vegagerð eða önnur mannvirki sem kljúfa eða sundra dýrmætum landslagsheildum hálendisins sögunni til.

Við vörum eindregið við hvers kyns áformum um virkjun jarðvarma við Mývatn. Bygging Bjarnarflagsvirkjunar er ekki áhættunar virði. Hvergi í heiminum er annað Mývatn til. Ábyrgð okkar er því mikil.

Við krefjumst þess að einstök náttúra Reykjaness verði vernduð með stofnun eldfjallaþjóðgarðs og að allar nýjar raflínur verði lagðar í jörð.

Við teljum afar brýnt að ríkisvaldið tryggi landvörslu og verji dýrmæt náttúrusvæði gegn sívaxandi ágangi ferðamanna.

Við mótmælum sérstaklega aðför yfirvalda að náttúruverndarfólki, þar sem fordæmalaus yfirgangur lögreglu og ákærur gagnvart þeim sem vilja vernda Gálgahraun var grimmur og óþarfur. Við minnum á að réttur almennings til að mótmæla náttúruspjöllum hvarvetna um heim allan er heilagur og grunnforsenda þess að mannkyni takist að forða tortímingu mannlífs á jörðinni.

Grafík: Veggspjald tónleikanna, hannað af Hugleiki Dagssyni.

Tengd myndbönd:

Sprengisandur
Andri Snær um Stopp söfnunina


Birt:
3. mars 2014
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Stopp! Gætum garðsins“, Náttúran.is: 3. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/03/stopp-gaetum-gardsins/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 17. mars 2014

Skilaboð: